Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Blaðsíða 48
c 48 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 Sport DV CjjK V í SJÓNVARPINU Blackbum-Man.Utd. Ekki batnar ástandið hjá Graeme Souness í dag. Fjórir leikir án sigurs og botnsætið staðreynd eftir stórtap íyrir nágrönnunum í Manchester. Nú hlýtur hann að trompast og verður lagður inn. Lau. Skjáreinn kl. 11.45 Chelsca-Southampton Ástarsamband Eiðs Smára og Mourinho riðar til falls eftir að Jose skilur Eið eftir á bekknum annan leikinn í röð. Eiður Smári kveikir aftur eldinn með því að koma inná og Skora tvö. Lau. Skjár einn kl. 14 Norwich-Arsenal Arsenal-liðar eru vísit til þess að fara illa með nýliðanna sem fannst stórt stökk að fara upp í úrvals- deildina en gleyma kannski að stærsta stökkið er að fara að spila við besta lið Bretlandseyja. Lau. Skjár einn kl. 16.10 Bolton-Llverpool Bolton spilar vel eða illa á víxl og Liverpool-menn verða heppnir og hitt á einn af slæmu dögum. Stóri- Sam brjálast og Guðni fær enn eitt símtalið. „Nei, Sam, ég er hættur". Sun. Skjár einn kl. 15 Aston Villa-Newcastle Það gengur allt á afturfótunum hjá Bobby Robson og lærisveinum hans í Newcastle. Liðið glutrar niður forustu leik eftir leik og allir í Newcastíe eru farnir að leita af elliheimili fýrir karlinn. Aston Viila nýtir sér rótíeysi Newcastíe og vinnur góðan heimasigur. Bobby karlinn sættir sig ekki við slæma byrjun og sest í helgan stein. Everton-WBA Jafritefli, nei ég er bara að giska. WBA hefur sett stefnuna á metið yfir flest jafntefli í sögu úrvalsdeild- arinnar og þessi leikur verður engin fyrirstaða þar. 4 jafntefli í 4 leikjum - metíð er komið í mikla hættu. Man. Clty-Charlton Kevin Keegan er búinn að gera ráðstafanir til þess að sjá leikinn og situr nú á barstól með lítið sjónvarpstæki sér við hlið til öryggis. Því miður fýrir City þá virðist það skipta litíu máli hversu mikið Keegan sér af leiknum. Charlton vaknaði upp við vondan draum í Með stærsta hjartað n LIÐIÐ MITT 15 Þorkell Máni Pétursson, um- boðsmaður rokkhljómsveitarinnar Mínus, er mikill aðdáandi Leeds United. „Ég sá einu sinni Leeds tapa fyrir Liverpool 5-4. Þeir voru undir 4-0 í hálfleik en komu svo sterkir til leiks í seinni hálfleik," segir Máni, eins og hann er gjarnan kallaður. „Ég byrj- aði að halda með þeim af því að þetta var svo mikið baráttulið." Ári síðar varð Leeds meistari. „Þá voru leikmenn á borð við McAllister og Strachan í liðinu. Eric Cantona var þarna líka en hann átti ekki mik- inn þátt í að við unnum titilinn," segir Máni og bætir við. „Það eina sem er öruggt með mig og fótbolta er að ég er harður Leedsari. Máni fór í fyrra í pílagrímsferð á Ellan Road, heimavöll Leeds, ásamt rokkurunum í Mínus. „Þá hittum við Alan Smith og fengum mynd af okkur með honum. Við buðum honum á tónleika en hann mátti ekki fara út svo hann bauð okkur á leikinn í staðinn. Frosti, gítarleikari Mínus, er einnig harður Leedsari og við fengum mynd af okkur með honurn," segir Máni sem grætur það sáran að Smith hafi verið seldur til Manchest- er United. „Það var hrikalega sárt þegar hann fór enda er hann besti leik- maður í heimi. Ég varð að hugsa hvað væri honum fyrir bestu en þú sérð hann aldrei brosa þegar hann skorar fyrir United," segir Máni. Umboðsmaðurinn segir að leik- menn Leeds séu mjög hollir félag- inu. „Þegar Smith fór til United gaf hann félaginu þann hluta kaup- verðsins sem hann átti að fá. Sömu sögu er að segja af James Milner þegar hann fór til Newcastíe." Máni segist vissulega hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar Leeds féll niður í 1. deild. „En það er bara tímabundið. Við erum ennþá besti klúbbur í heimi með stærsta hjartað." Er komínn timi á þig? LowCarb Léttur lífsstíll www.lowcarb.is BOLTINN EFTIRVTNNU Kapphlaupið um Wayne Rooney stendur sem hæst. Manchest- er United hefur boðið 25 milljónir punda auk David Bellion. Newcastle er einnig á höttunum eftir framherjanum snjalla. toiniy vil í OldMrd ast á Old Trafford. Hann hefur því neitað að skrifa undir nýjan samn- ing við Everton. Kenwright segist hins vegar ekki tilbúinn selja hann á útsöluverði." Wayne eftirsóttur Rooneyvill spila Utd. Manchester United er að undirbúa 25 milljón punda boð í fram- herjann Wayne Rooney hjá Everton, auk þess sem liðið fengi David Bellion í kaupbæti. United hafði boðið 20 milljónir í ensku súperstjörnuna en stjórn Everton hafnaði því. Nú ætla rauðu djöflarnir að gera hvað sem þeir geta til að landa stráksa. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, var á Old Trafford þegar hinn franski Bellion sýndi snilldar- takta gegn Dinamo Búkarest í for- keppni Meistaradeildar Evrópu. Hann kom inn á sem varamaður og skoraði annað markið sitt í viður- eign liðanna. Heimildir herma þó að Moyes vilji fá írska landsliðsmanninn John O’Shea í staðinn. O’Shea þarf að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarlið- inu þegar Gabriel Heinze kemur aft- ur eftir Ólympíuleikana þar sem hann hefur leikið með argentínska landsliðinu og svo getur farið að Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, sé tilbúinn að láta O’Shea fara. Everton ætíar að reyna fá eins mikið og það getur fýrir Rooney áður en leikmannaglugginn lokast á fimmtudaginn kemur. Fjárhagur liðsins hefur þó batnað til muna eft- ir að rússneski auðjöfurinn Anton Zingarevich, setti peninga inn í liðið og vill stjórnin meina að þeir þurfi ekki að selja Rooney. „Við þurfum ekki að selja Roon- ey," sagði Bill Kenwright, stjórnar- formaður Everton. „Við erum við það að tryggja framtíðina." Fleiri lið eru á höttun- um eftir Wayne Rooney en Newcastle United bauð einnig tutt- ugu millj- ónir punda leik- manninn. Þeir hækkuðu síðan boðið um 3,5 milljónir en því var hafnað. Rooney minna en tvö ár eftir af samningi sínum og vill ólmur kom- Fleiri Spánverjartil Arsenal Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, er við það að ganga frá kaupum á Miguel Angulo hjá Valencia fyrir 2,7 milljónir punda.' Wenger verður nú að bíða og vona eftir að Cladio Ranieri, fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea, sam- þykki boðið í hinn 27 ára gamla mið- vallarleikmann. Angulo, sem á aðeins ár eftir af núverandi samningi og hefur hafnað nýjum, hefur lýst þvf yfir að hann vilji komast til Arsenal. Wenger hefur mikirm hug á að fá kappann til sín en þá yrðu Spánverjarnir í herbúðum Arsenal fjórir talsins en Angulo myndi hitta fýrir Jose Reyes, Francesc Fabregas og markvörðinn Manuel Almunia. Þeir Reyes og Fabregas hafa þegar slegið í gegn hjá liðinu. Wenger teiur að reynsla Angulo í Evrópukeppni getí komið Arsenal til góða en liðið á enn eftir að vinna Meistaradeild Evrópu. Angulo hefur eytt sjö árum hjá Valencia en liðið vann meðal annars spænsku deildina og Evrópukeppni félagsliða. Nýr maður Arsene Wenger er við það að ganga frá kaupum á Miguel Angulo. fýrsta leik en hefur síðan verið á hraðri uppleið. Þrjú stig í viðbót hér. Middlesbrough-C. Palace Mark Viduka er mættur í sóknina við hliðina á Hasselbaink og setur tvö mörk í öruggum heimasigri, nýliðarnir eru dæmdir til að falla frá fyrstu umferð og Boro sýnir þeim enga miskunn í þessum leik. Tottenham-Birmingham Það hefur verið margt jákvætt í leik Tottenham engin risastökk en liðið er og verður enn taplaust eftir heimsókn Birmingham. 1 £ REMBINGURINN Er Arsenal ósigrandi í enska boltanum. Liðið hefur ekki tapað í 43 leikjum í röð og hefur unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins með markatölunni 12-4. Sígandi lukka er best „Það liggur við að Arsenal sé ósigrandi. En það er þó ekki alveg þannig," segir knattspyrnumaður- inn Reynir Leósson. „Ég held að það sé alveg hægt að vinna Arsenal en til þess þarf liðið að eiga slæman dag og andstæðingarnir þurfa að eiga frábæran dag. Það er ekkert lið ósigrandi." Reynir, sem hefur leikið stórt hlutverk í vörn Skagamanna í sum- ar, er harður stuðningsmaður Manchester United. Hann hefur þó hrifist af leik Arsenal. „Ég er gríðar- lega hrifinn af þessu liði. Það er ann- að hægt en að hrífast af þessari glæsilegu spilamennsku og það er gaman að horfa á það," segir Reynir sem telur þó að Manchester United eigi eftir að veita Arsenal harða keppni. „Sígandi lukka er best og United á eftir að koma sterkt inn núna og taka titilinn. Arsenal fer að gefa eftir finnst liðið er búið að slá þetta met." Reynir telur að vömin sé veikleiki Arsenal, sérstak- lega þegar Sol Campbell er fjarri góðu gamni. „Ég myndi halda að vörnin væri veikasti hlekkur- inn. En það virð- ist ekki skipta máli því liðið fékk þrjú mörk á sig um daginn en skoraði i bara fimm í staðinn." Einfalt og hratt spil Jón Víkingur er formaður Arsenal-klúbbsins á fslandi og var slfyjum ofar þegar DV sló á þráðinn. „Ég er nýkominn af Highbury þar sem ég var viðstaddur 5-3 sigur á Middlesbrough" sagði Jón. Leikur- inn var þó ekki eini tilgangur ferðar- innar því klúbburinn fer árlega til Englands með hóp af ungum ís- lenskum knattspyrnumönnum. „Við höfum gert þetta í töluverðan tíma og það er skemmtilegt að segja frá því að krakkarnir unnu leik gegn Englendingum” sagði Jón stoltur. David Dein, einn af forráða- mönnum félagsins, kom í heimsókn og sleit skólanum þarna úti og fengu krakkarnir að bauna á hann spurn- ingum.Hann var spurður hvort liðið gæti nokkuð tapað Ieik. Svarið var að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vildi að menn hefðu hlutina einfalda og væru snöggir að því. Arsenal-aðdáendur eru náttúru- lega himinlifandi með nýslegið met liðsins. Jón hlær við þeirri spurningu hvort liðið ættí ekki bara að setjast í helgan stein, fyrst að enn eitt metið hefði verið slegið. „Nei, alls ekki. Þetta er síbreytilegt og tekur sífellt á sig nýja mynd. Það er frábært að fá að fylgjast með þessu mikla starfi sem Arsenal vinnur" sagði Jón Vfk- ingur, og er ástríðan uppmáluð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.