Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Side 32
32 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 Helgarblað DV DV Helgarblað LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 33 sions [ Julia Stiles Mætti til að taka þátt I mynd Baltasars Kormáks og vildi Ibúð þarsem 101 hótelvarekki nógu gott Fleiri frægir leikarar taka þáttlmyndinni eins og fólki ætti að vera kunnugt um. Pink og papparassarnir Söngkonan Pink fór mikinn á Fróni og barist meðal annars við papparassaljósmyndara Bláa lóninu. Blaðamanni DV brá nokkuð í brún þegar hann tók saman lista yfir öll frægðar- og fyrirmennin sem hafa sótt ísland heim í sum- ar. Listinn er ótrúlega langur og litríkur. Magnús Oddsson ferða- málastjóri ríkisins hefur sagt eitthvað á þá leið að hann voni að ísland sé ekki í tísku. Því það sem er í tísku fer úr tísku. Það má svo sem til sanns vegar færa. Hins vegar verður ekki hjá því litið að nú um nokkurra ára skeið hefur verið rætt um að ísland sé „in“ eða „cool", oft í samhengi við hina stöðugu frægðarsól Bjarkar Guðmundsdóttur. Hingað hafa reglulega komið popparar frá Bretlandi umliðin ár. Nú virðist sem þetta sé að springa út með látum. Og ekki stefnir í að flóðið sé í rénun. Sögur eru um að U2 komi næsta sumar, að ekki sé minnst á að Reykjavík mun hýsa MTV-tónlistarhátíðina, líklega á næsta ári, í síðasta lagi árið 2006. Þá má búast við Christinu Aguilera á Nasa, Britney Spears fær sér súkkulaðiköku á Sólon og Justin Timberlake fær sér pylsu. Listahátíð Reykjavíkur er nú haldin árlega og henni fylgja jafnan frægir gestir. Þó verður að segjast eins og er að Listahátíð er í al- gjöru statistahlutverki þegar fræga fólkið er annars vegar - helst er það að undirlagi sjálfstæðra tónleikahaldara á borð við ísleif Þórhallsson, Einar Bárðarson og Ragnheiði Hansen sem þeir streyma hingað í stríðum straumum. Nískir rokkarar og gítarstuldur Tónlistarmenn hafa þyrpst hingað og líklega er ástæðan ekki einungis sú að ísland sé svona ofboðslega „cool“. Dollarinn stendur iila og því borgar sig fynr erlenda tónlistarmenn að koma hingað og seilast í vasa tón- leikagesta auk þess sem plötusala hefur dregist saman og því verða þeir að fara að vinna fyrir kaupinu sínu með tónleikahaldi. Stórhljómsveit- imar Metallica, Pixies, Kraftwerk, Kom og Placebo hafa þegar haldið hér velheppnaða tónleika. Mest var látið með Metallica, kannski að von- um. 18 þúsund manns komu til að sjá tónleika sveitarinnar í Egilshöll. Var talað um hversu aðsjálir þeir sem standa að hljómsveitinni em, engir boðsmiðar og þeir fóm af landi brott með digran sjóð. Þeir em enda í fimmta sæti þeirra sem þénuðu mest í Bandaríkjunum á síðasta ári. Einnig var rætt um falsaða miða og svarta- markaðsbrask í tengslum við tón- leikana. Korn kom og hélt dúndurtón- leika en það sem menn þó helst muna frá þeirri heimsókn er að gít- arleikarinn í Kom, Munky, fór á galeiðuna eftir tónleika, og hvarf hann inn í nóttina ásamt óþekktri ljósku sem gerði sér h'úð fyrir og rændi kapp- ann. Þeg- Lou og Laurie í leikhúsi Lou Reed fór ásamt Laurie Anderson ogJónatan Garðarssyni aö sjá Rómeó og Júllu. Þau gáfust þó upp og fóru heim íhléi. Munky vaknaði að morgni næsta dags í hótelherbergi sínu var snótin horfin og gítarinn hans með. Papparass og íslandsvinir Og svo em það hinar lifandi goðsagnir sem hafa drepið niður fæú, eða em í þann veginn að fara að gera svo: Kris Kristofferson, Lou Reed, Van Morrison, James Brown, Marianne Faithful, Laurie Anderson og Ian Gill- an í Deep Purple. Enginn smá hópur þarna. Miðar á tvenna tónleika Deep Purple bókstaflega runnu út eins og heitar lummur, nokkuð sem kom flestum í opna skjöldu. Faithful og Van Morrison eiga enn eftir að koma en Kris Kristoffer- son hélt fremur lág- stemmda tónleika á Broadway sem tókust ljómandi vel. James Brown á án efa eftir að gera allt viúaust í Laugardals- höll í kvöld en líklega var mest láúð með heimsókn Lou Reed. Honum var fenginn sérlegur fylgdarsveinn og var sá Jónatan Garðarsson. Fór vel á með þeim enda kom Jónatan fram við Lou Reed sem jafningja og á inni hjá hon- um heimboð. Papparassinn ungi á Suðurnesjum, Aúi Már Gylfason, lenti í stælum við lífverði Reeds sem fór víða, lét vel af heimsókn sinni hér en með honum í för var listamaðurinn og sambýliskonan Laurie Anderson. Þau bmgðu sér meðai annars á sýn- inguna Rómeó og Júh'u en Lou varð frá að hverfa í lúéi örþreyttur vegna þess hversu óvanur hann er að rísa árla úr rekkju og svo jöklaferðar sem fylgdi í kjölfarið. Athygli vakú í tengsl- um við komu þessara goðsagna, sem allar eiga sinn þátt í að móta hugtakið „Sex, Dmgs and Rock’n Roll“, em heilsuboltar hinir mestu en þetta kom á daginn þegar DV komst í „ridera" nokkurra þeirra. Kannski var þetta alltaf þannig, ímyndin ímynd! Mörgum kom á óvart þegar erkipönk- ararnir í Clash komu og vom skíúog- andihræddir við íslenska tónleika- gesú. Rapp, þjóðlög og stúlknastuð Listaháú'ð stóð fyrir tónleikunum I Göran Persson ] Kom ásamt öðrum forsætisráðherrum I Norðurlandanna til að ræða um hin og þessi I málefm. Það fór kannski ekki mikið fyrir þeim I enda fáir sem hafa áhuga á að hitta I „smápólitlkusa* á borð við hann þegar I Clinton er á landinu. 50 cent og félagar I Rapparinn mætti ásamt I félögum sínum en I einhverjir héldu að ekkert I yrði afkomunni. Hetjan lét I þó sjá sig og lýsti því yfir 1 að íslendingar ættu besta I gras I heimi, hvað svo sem I það á að þýða. ísland-írland og írska hópinn leiddi sjálfur Donal Lunny, einhver þekkt- asú tónlistarmaður þjóðlagatónlistar sem um getur. Meðal þeirra sem fram komu var Damon Albam en það er varla að þessi söngvari Blur sé nefnd- ur í þessu samhengi, enda hálfgerður heimamaður á íslandi. Hljómsveiún Violent Femmes kom sem og rappar- inn 50 cents en hann mun vera stærsta rappstjama heimsins. 50 cents var hins vegar algerlega girtur af og Floyd Banks við annan mann stóð fyrir svörum. Fátt eitt dreif á daga þeirra rapparanna en ekki er hægt að segja hið sama um þær sem kenndar verða við stúlknastuðið. Enn komst papparassinn AÚi í hann krappann í æsispennandi viðureign við söngkonuna Pink sem fór hér mikinn. Hún skvetú sjálf á hann vatni í Bláa lóninu þar sem hann var búinn að koma sér fyrir á sundskýlunni, ullaði á hann og sýndi honum löngutöngina. Pink, sem hegðaði sér í samræmi við stjömu- stöðu sína með lífverði og fylgdarlið, var dugleg að bregða sér út á lífið þá stutm stund sem hún var hér, brá sér í búðir og eft- Biil og bæjarins bestu Bill Clinton og Hillary fengu sér pylsu á Bæjarins bestu þegar þau voru hérstödd I vikunni. I Jamie Oliver Kokkurinn mætti og var 1 einstaklega alþýðlegur við Islendinga I sem tóku á móti honum líkt og þjóðhetju. ir því sem næst verður komist varð hún sér úú um íslenskan kærasta: Gústa skemmt- anastjóra á 22. Sugababes-tríóið var öllu tilþrifaminna og má segja að þær hafi náð hæstum hæðum í sjónvarps- þætú Sveppa og félaga sem bjánuðust í þeim að hætú hússins. Þeir fóm reyndar til Dyflinar til þess. „Velkomin aftur, kæru hjón" Ekki hafa það einungis verið tón- listármenn sem hafa komið til lands- ins. Nokkuð var um fræga stjóm- málamenn og jafiivel kóngafólk. ís- lendingum gafst þannig kærkomið tækifæri úl að nota forsetann og veifa sinni glæsilegu forsetafrú: Dorrit, sem tók á móú þeim mörgum frægum á jafnrétúsgrunni. Nýjasta dæmið er vitaskuld Bill Clinton og Hfllary sem komu hingað á dögunum við gríðar- lega mikinn fögnuð. Þau kunnu lagið á íslendingum, heldur betur, smá skjall og uppskám samkvæmt því. Líklega besta dæmið þar sem hrærð- ur Guðmundur Magnússon skrifaði leiðara Fréttablaðsins undir yfirskrift- inni: „Velkomin aftur, kæm hjón“. Með þingmannasendinefndinni sem Hillary fór fyrir kom svo meðal ann- arra öldungardeildarþingmaðurinn John McCain. Forsæúsráðherrar Norðurland- anna komu hér í einni kippu og vegna veikinda Davíðs Oddssonar kom það í hlut Halldórs Ásgrímssonar að taka á móú þeim - brosandi. Göran Person forsæúsráðherra Svía fór svo og sótú Davíð heim. Hýmaði yfir forsæúsráð- herra en honum nánast batnaði þeg- ar Clinton tók á honum hús. Meðal annarra stjómmálamanna vom til dæmis: Kjell Magne Bondevik, And- ers Fogh Rassmussen, Stoltenberg og Mogens Lykketoft. Og, halló: Cherie Blair er á landinu! Og kóngafólkið er þar sem stuðið er. Tfl Karls Gústafs Svíakóngs spurð- ist við laxveiðar og Viktoria prinsessa og Silvía drottning ásamt þeim Há- koni og Mette Marit krónprinsahjón- um Noregs hafa eða em í þann mund að heilsa upp á Dorrit og herra Ólaf Ragnar á Bessastöðum. íbúð en ekki hótelsvítu - takk Líkast tfl stafar mestum ljóma af kvikmyndastjörnunum og þær hafa láúð sjá sig á Fróni. Alþýðlegastur þeirra hlýtur að teljast Harrison Ford sem kíkú út á h'fið við mikinn fögnuð þeirra kvenna sem óvænt rákust á þennan mikla „blockböster". Tfl Kevins Spacey spurðist svo nýlega þar sem hann sat í miklum rólegheitum yfir súkkulaðitertusneið á Sól- on. Nicolas Cage millilenú hér á sinni einkaþom og þótt hér séu ekki þeir sem aðeins millilenda nefndir til sögunnar komst vera hans hér í fréttir því flugvallar- starsmaður nokkur tók mynd af V honum og sér. Og Baltasar Kor- mákur er að hefja tökur á mynd ^ sinni Little Trip to Heaven og hér em stödd þau Julia Stiles og Forest Whitaker en þau leika í myndinni sem og Jeremy Renner. Leikaramir hafa farið sér hægt enda mætúr til að vinna. Þó spurð- ist það að Stiles hefði farið ffarn á séríbúð en henni líkaði ekki vel að vera í herbergi á 101. Og Forrest vildi það líka fyrst Stfles vfldi. Þegar ein beljan mígur... Kokkur, flamengódansari og skákmeistarar Sjónvarpskokkurinn frægi Jamie OUver kom til landsins og var pappa- rassaður auk þess sem hann skoðaði rifsberjamnna Stefáns Jóns Hafstein borgaríúlltrúa. Jack Nicklaus, „Gull- bjöminn", einhver mesú golfari sög- unnar, kom tfl að veiða lax sem og óp- emsöngkonan Kiri Te Kanawa. Flamengódansarinn snjalh, Joaquín Cortés, kom og hélt magnaða sýningu í Laugardalshöll. Listamaðurinn Matthew Bamey er nánast undir sömu sök seldur og Albam - íslend- ingar em orðnir þessum spúsa Bjark- ar vanir en kannski ekki Jeff Koons sem kom til landsins í tengslum við listaháú'ð í Reykjavík. Og þeir komu hér í vor skákmeistaramir Kasparov og Karpov tfl að taka þátt í skákmóú sem þeir Helgi Ólafsson og Hemmi Gunn stóðu fyrir. Ögmundur Jónasson alþingis- maður hefur skrifað um það að held- ur þyki honum stefna til verri vegar varðandi íslendinga og fræga fólkið. íslendingar hafa löngum stært sig af því að hér fái fræga fólkið að vera full- komlega í friði. Kannski eitthvað í lík- ingu við það þegar maðurinn súgur í fyrsta skipú fæú á eyju þar sem fugl- arnir em gæfari en allt sem gæft er vegna þess að þeir hafa aldrei séð mann áður? Sú er ekki staðan hér lengur en hvort íslendingar muni elta frægðarfólkið á röndum lfkt og þekk- ist ytra verður að koma í ljós. jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.