Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Qupperneq 50
-1
50 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004
Sport DV
!
■
Fyrsta gull
Egypta í 56 ár
i
Grísk-rómverski glímumaöur-
inn Karam Ibrahim vann í fyrra-
dag fyrsta gull Egypta á ólympíu-
leikum í 56 ár þegar hann vann 96
kg flokkinn á ólympíuieikunum í
Aþenum. Ibrahim vann úrsht
gh'muna gegn Georgíumanninum
Ramaz Nozadze og þurfti til að-
eins þrjár mínútur en ghman
endaði 12-1 Egyptanum í vil.
rlann er stór og mikill og erftður
við að eiga, enda er nánast
ómögulegt að lyfta honum eða
snúa á ghmugólfinu. „Hvert stig
færir mér velhðunartilfinnmgu og
það hvetur mig áfram að saftia
sem flestum stigum," sagði Ibra-
him sem hefur mjög gaman af því
að glíma við mótherja sína. Hann
er fyrsti Egyptinn sem fær að
hlusta á þjóðsöng sinn spilaðan á
ólympíuleikunum síðan á leikun-
um í London árið 1948 en á þeim
leikum unnu Egyptar tvö gull-
verðlaun. „Ég tileinka sigurinn
þjóð minni, fjölskyldu minni og
öhum arabíska heiminum. Ég hef
gefið aht I þetta og nú stend ég
uppi sem ólympíumeistari."
ibrahim er 1,91 metri á hæð og
um 96 kg að þyngd en hann
verður 25 ára um rræstu
mánaðamót. Egyptar höfðu
unnið tvö brons á
leikunum ^_sJ*^í>2SSir®sí
en gullið
langþráða
kom ekki fyrr
en þessi axlabreiði '•
og kraftmikli ghmumaður lék sér
að andstæðingum sínum f 96
kílógramma flokknum.
Dregið í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða á hádegi í gær
H mætirAlemania Aachen
Nú er orðið ljóst að andstæðing-
ur FH í þriðju umferð Evrópukeppn-
innar verður þýska 2. deildarliðið
Alemania Aachen. Sem stendur er
þýska liðið í 11. sæti 2. deildarinnar
en það er þó lítið að marka það því
aðeins eru búnar tvær umferðir.
Þetta lið hefur oft gert mjög góða
hluti í bikarkeppninni þýsku og
komst í úrslit hennar í vor, sló með-
al annars út stórlið Bayern Munchen
á þeirri leið, en beið lægri hlut gegn
Werder Bremen, 3-2, í úrslitaleikn-
um. En þar sem Bremen varð einnig
Þýskalandsmeistari fékk Alemania
Aachen sæti í Evrópukeppninni.
FH-liðið á án efa ágæta möguleika
gegn þessu liði og stóra spurningin
er hvort það sé á svipuðu róli og
Dunfermline. Sé raunin sú eru
möguleikarnir góðir því árangur FH
gegn skoska liðinu var engin tilvilj-
un, FH var einfaldlega betra en Dun-
fermline.
. Alemania Aachen kemur frá
borginni Aachen í Þýskalandi þar
sem er að finna margar fahegar
byggingar enda var borgin höfuð-
staður þýskra konunga í meira en
hálfa öld. Aachen er staðsett nálægt
landamærum HoUands og Belgíu og
varð af þeim sökum iha úti í
sprengjuregni seinni heimsstyrjald-
arinnar. Aðeins eru um 250 kíló-
metrar á miUi Aachen og höfuðborg-
ar HoUands, Amsterdam, og þangað
fljúga Flugleiðir.
Það er því nokkuð ljóst að hóp-
ferð er á dagskrá og um að gera að
hvetja FH-strákana áfram - þeir eiga
það svo sannarlega skUið.
sms@dv.is
Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu
ckagamenn eru úr leik
ÍA beið lægri hlut gegn sænska
liðinu Hammarby, 1-2, í forkeppni
Evrópukeppni félagsliða í knatt-
spyrnu. Hammarby bar einnig sigur
úr býtum í fyrri leiknum ytra, þá 2-0
og því samanlagt 4-1.
Lið ÍA getur þó alveg borið höf-
uðið hátt eftir þátttöku sína í Evr-
ópukeppninni þetta árið. Eftir tapið
í Svíþjóð var vitað að möguleikar
Skagamanna væru frekar litl-
1 ir en þeir fuku algerlega út í
veður og vind á 18. mínútu en þá leit
fyrra mark Svíanna dagsins
y A ljós. Skagamenn
jöfnuðu metin
frekar óvænt á 38.
mínútu með glæsilegu marki frá
Guðjóni Heiðari Sveinssyni. Svíarnir
settu síðan annað mark sitt
nokkrum sekúndum fyrir lok fyrri
hálfleiks. Pétur „okkar" Marteinsson
lék ekki með Hammarby að þessu
sinni vegna meiðsla.
Eru klassa betri en við
Fyrirliði Skagamanna, Gunn-
laugur Jónsson, leit raunsætt á mál-
ið að leik loknum. „Það var vitað fyr-
irfram að þessi leikur yrði erfiður en
þetta fýrra mark þeirra kom á þægi-
legum tíma fyrir þá. Þeir gátu spilað
afslappað það sem eftir var leiks. Við
höfðum fulla trú á að við gætum lagt
þá að velli hér heima en þá hefði
ýmislegt þurft að ganga upp og
heppnin hefði þurft að vera okkur
hliðholl. Okkur hefur ekki gengið
sem skyldi undanfarin ár í Evrópu-
keppninni og því var kærkomið að
komast í aðra umferð núna og ná að
standa uppi í hárinu á Hammarby
sem er Jdassa betra en við,“ sagði
Gunnlaugur Jónsson. sms@dv.is
Mark Skagamanna Guðjón Heiðar Sveins-
son sést hér skora eina mark Skagamanna
gegn Hammarby. DV-mynd Stefán
Toyota, Nýbýlavegi 4-6. Toyotasalurinn Selfossi, Fossnesti 24. Toyotasalurinn Reykjanesbæ, Njarðarbraut 19. Toyota Akureyri, Baldursnesi 1
k ■
Komdu á stórsýningu Toyota um helgina. Sjáðu nýja Corolla bílinn, glæsilega
Yaris Blue haustpakkann, ríkulegan útbúnað Avensis og margt fleira.
ÓRSÝN