Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 Fókus DV i * / S-l, m FRÁBÆR SKEMMTUN, , GRETTIR SÝND KL4og6 M/I5LENSKUK TALI SÝND KL 4 og 6 Thx si'MI 564 0000 - www.smarablo.is THUNDERBIRDS kl. 4 og 6 THE BOURNE SUPREMACY kl. 6. 8 og 10.20 B.l. 14 THE VILLAGE - U.8B114 HAROLD & KUMAR kL 4,6,8 og 10.10 B.1.12 KING ARTHUR kl. 10.20 B.l. 14 GAURAGANGUR 1 SVEITINNI kl. 3.45 M/iSL SHREK2 kl.4 M/ISL TALI www.sambioin.is Boltinn með Guðna Bergs er á dagskrá Sýnar í kvöld en þar fer Guðni yfir leiki helgarinnar ásamt Himi Karlssyni. kÞátturinn er nú ksýndur í opinni ldagskrá og ef- f laust verður ?lokaumferð ' íslandsmótsins í Fknattspyrnu sem fram fór í gær krufin til imergjar. Sundlaugar landsins eru eitt- hvað sem túristum finnst voðalega merkilegt að sjá þegar þeir koma hingað í heimsókn. íslendingar kunna hins vegar ekki eins vel að meta laugarnar og er það miður. Snilldar staðir eins og Vesturbæjarlaugin, Sundhöllin og Laugardalslaugin geta endurnært menn á auga- bragði og er þv( mælt með að fólk fái sér sundsprett. Hárstofan Gel hefur opnað á nýjum stað á horni Klappar- stígs, skammt frá nýju Spútnikversluninni. Þarfer Anna Sigga fimlega með skær- in ásamt Jóni Atla sem reyndar er á leiðinni til útlanda. Gel er þó langt frá því að leggja upp laupana og tilvalið að líta þar við og fá sér klippingu þegar þess gerist þörf. Aðsóknin er þó mikil og þess vegna gæti verið skynsamlegt að hringja á undan sér. 2' Heather klúðrar sínum málum Leikkonan Heather Lockiear mismæiti sig illa í viðtali um daginn þegar hún var að segja sakleysislega frd dóttur sinni.„Henni finnst fátt skemmtilegra en að horfa á sjálfa sig I spegti," sagði Heather j og hélt áfram:„Sér- staklega finnst henni gaman aðskoða sig f speglinum sem er fyrir ofan rúmið okkar Tommys." Eina vandamálið erað eiginmaður Heather heitir ekki Tommy heldur Richie. Hún var hins vegar gift rokkar- anum Tommy Lee til skamms tlma og þótti þetta þess vegna sérlega vand- ræðalegt fyrir leikkonuna.„Ó guð minn góður! Ég sagöi vitlaust nafn, guö minn góður, “sagði Heather I kjölfarið og reyndi að gera gott úr þessu öllu saman. Eignarhaldsfélagið Hraun í Öxnadal hefur keypt samnefnda jörð og hefur safnað nægu fé til að fjármagna nauðsynlegar framkvæmdir og endurbætur að Hrauni. Tryggvi Gíslason magister er í sjóðsstjórn. Vilja veg Jónasar Ha Igrímssonar sem mestan fjónas Hallgrímsson 1 Eitt merkasta skáld okkar islendinga. „Þetta félag var stofnað á dánardegi Jónasar Hall- grímssonar, 26. maí í fyrra," segir Tryggvi Gíslason magister en auk hans sitja í stjórninni þau Guðrún María Kristinsdóttir fornleifafræðingur og Jón Kr. Sólnes lögmaður. „Félagið hefur keypt jörðina Hraun í Öxnadal með öllum sköttum og skyldum, þar var íbúðarhús reist 1993, heimarafstöð 1950 en einnig eru á jörðinni útihús sem sum verða gerð upp til ýmissa nota, önnur rifin. Félagið hefur safnað röskum 20 milljónum í hlutafé og getur því hafið nauð- synlegar framkvæmdir og endur- bætur á húsunum." Minningarstofa, fólkvangur, fræðimannsíbúð Tryggvi segir eignarhaldsfélagið svo standa að baki menningarverkefninu Hrauni í Öxnadal. „Því er ætíað að koma á fót minningarstofu um Jónas Hallgrímsson að Hrauni," heldur Tryggvi áfram. „Það á að kynna og gefa út verk skáldsins og náttúruffæðingsins, stofna fólkvang á jörðinni og gera þar útívistarstað fyrir almenning, reka dvalarstað að Hrauni fyrir skáld, rithöfúnda, listamenn og fræðimenn og fólk úr atvinnulífi og stjórnmálum. Við viljum einnig stuðla að alþjóðlegum menningar- tengslum, standa fyrir sýningum og öðrum listviðburð- um og efla atvinnu á svæðinu. Við áætíum að Stofnun Jónasar Hallgrímssonar annist framkvæmd þessa menningarverkefnis. “ Hátíðir, samkomur, myndband Og ýmislegt fleira hafa menn í félaginu á prjónunum. „Við viljum gefa út myndskreytt úrval ljóða og sagna Jónasar á 200 ára afmæli hans, 16. nóvember 2007,“ segir Tryggvi. „Einnig stendur til að gera hlöðuna á jörð- inni hæfa til samkomu- og fyrirlestahalds og halda Fífilbrekkuhátíð annan sunnudag í júní ár hvert. Þar yrði sagt frá skáldinu, náttúrufræðingnum og stjórmála- manninum Jónasi Hallgrímssyni, verkum hans, náttúru staðarins, einkennum og örnefnum og farið í göngu- ferðir upp að Hraunavatni og niður að á. Myndband um Jónas viljum við líka láta gera og yrði það ætíað skólanemum, almenningi og sjónvarpsstöðvum hér og erlendis. Og er þá fátt eitt upp talið, en allt þarf að vinna í samstarfi við sýningarstjórn á Hlöðum og Möðruvöllum því skörunin verður margvísleg," segir Tryggvi Gíslason magister og stjórnarmaður í eignar- haldsfélaginu Hrauni í Öxnadal. Bíó • Háskólinn í Túnis og Háskóli íslands bjóða til sýningar á gamanmyndinni Sumar á La Gou- lette (Un été á La Goulette,1996) eftir túníska leikstjórann Ferid Boughdir í öskju - náttúrufræði- húsi Háskólans, stofu 132. Leik- stjórinn verður viðstaddur sýningu myndarinnar sem er klukkan 17. Fundir og fyrirlestrar. Jim Messerschmidt, afbrotafræð- ingur og prófessor við University of Southem Maine í BNA, heldur erindi um „Karlmennsku og afbrot" á vegum félagsfræðiskorar HÍ og Félagsfræðingafélags íslands í Lög- bergi, stofu 103, klukkan 12.15 • Hafliði Jón Sigurðsson heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í vélaverkfræði við verkfræði- deild Háskóla íslands. Verk- efnið ber heit- ið „Toghlerar úr næloni". Fyrirlesturinn verður hald- inn klukkan 16 í stofu 158 í VR-H, húsakynnum verkfræðideild- ar Háskóla íslands. • Háskólinn á Akureyri býður ís- lenskum félagsráðgjöfum og öðm áhugafólki til fundar um rafrænan gagnabanka um bestu dæmi í fé- lagsráðgjöf í stofu L201, Sólborg, Akureyri klukkan 16.30. Uppákomur* Kfnaklúbbur Unnar kynnir Kínaferð næsta árs í Feng Shui húsinu, Laugavegi 42 B klukkan 20. Unnur Guðjónsdóttir sýnir skyggnur frá Kína og dansar kínverskan dans. Hvað velstu umDavid Beckham? Taktu prófið 1. Á hvaða tungumáli er nafn Vict- oriu tattúerað á Beckham? a. Arabísku b. Latínu c. Hindi d. Kínversku 2. Nöfn sona hans eru saumuð: a. Innan á skyrtuna hans b. Innan á stuttbuxurnar c. Áskóna hans d. Á fyrirliðaarmbandið hans 3. Fótboltakappinn er með „vernd- ara" á bakinu. Hann er: a. Engill b. Skratti c. Munkur d. Dúfa 4. Hvað af eftirtöldu er David ekki að auglýsa? a. Eyrnalokka b. Hringi í naflann c. Naglalakk d. Sólgleraugu 5. Þegar þau fluttu til Madrid pönt- uðu David og Posh stóra sendingu af undirfatnaði frá? a. La Perla b. Dolce & Gabbana c. Victoria's Secret d. Marks&Spencer 6. Þegar hann flutti til Spánar keypti hann sér 3 nýja bfla. Hver af eftirtöldum var ekki á innkaupallst- anum? a. Targa Porsche 911 b. Range Rover c. AudiA8 d. JaguarXK 7. Real Madrid hefur lofað David að nota? a. Þyrlu liðsins b. Gervihnattasíma liðsins c. Þotu liðsins d. Skútu liðsins 8. Becks og Victoria völdu nafnið Romeo á yngri soninn: a. Út afpersónu i leikriti Shakespeares b. Til að skýra f höfuðið á vini þeirra c. Því þau elska þetta nafn d. Út afuppáhalds Ijóði þeirra UJDU DJJdCj Dj/s/a no<j ~8 suisqh mog •/ yx tDnöof ■9 ouoqqDf) aj/oo ‘S uud/jdu / .iöuuh ’trW.ðug •£ sudq Dupqs y ipuiu •/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.