Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 Fókus BV ippifp’s Young Buck mE HCIDD Straight Outta Ca$hville 'k'kÍCÍ. Interscope/Skífan Young Buck er þriðji meðlimurinn í G-Unit genginu til að gefa út sóló- Plötudómar plötu. Foringinn sjálfur, 50 Cent, á að baki hina ofur- vinsælu Get Rich Or Die Tryin’ og Lloyd Banks sendi frá sér The Hunger For More í sumar. Þó plata Lloyd Banks hafi verið al- veg þokkaleg þá er þessi nýja plata Young Buck tölu- vert betri. Straight Outta Ca$hville fylgir sömu meg- inuppskrift og aðrar plötur G-Unit. Rappið og textarnir eru harðir, en tónlistin er einföld og vel pródúseruð með grípandi viðlögum. Hér er nóg af flottum lög- um, t.d. smáskífulagið Let Me In, Welcome To The South (sem David Banner er gestur í), Bang Bang og Shorty Wanna Ride. Trausti Júlíusson The Velvet 1 " • - Underground J ; -Jjl; LiveatMax's Kansas City Deluxe Taa - -• | ★ ★★★ Rhino/Skífan Live At Max’s Kansas City var hljóðrituð á síðustu tónleikum Lou Reed með Velvet Underground sem haldnir voru á þessum fræga tónleikastað í New York 23. ágúst 1970. Hljóm- sveitin spilaði tvö sett þetta kvöld og á þessari nýju deluxe útgáfu af plötunni eru þau bæði í heild sinni. Live At Max’s Kansas City hefur alltaf staðið í skugg- anum á Live 1969 sem er besta tónleikaplata Velvet Underground, en þegar maður hlustar á þessa tón- leika í heild sinni í dag þá gerir maður sér grein fyrir að jafnvel í dauðateygjun- um var Velvet Under- ground flöttari hljómsveit heldur en flestar rokksveitir á hátindi ferilsins. Hér er nóg af smellum: Sweet Jane, Waiting For The Man, Sunday Morning, Femme Fatale... Traustijúlíusson The Thrills Let's Bottle Bohemia 'k'ki. EMI/Skífan írsku strákamir í The Thrills slógu í gegn með plötunni So Much For The City sem kom út í fyrra. Vakti athygli að Dublin- strákar skyldu hafa skellt sér til Kalifomíu og samið plötuna og tekið upp í strandloftinu en útkoman þótti minna um margt á bandarískar sveitir frá sjö- unda og áttunda áratugn- um. Það er skemmst frá því að segja að þessi plata er eins og B-hliðaplata af þeirri. Lögin hljóma öll svipað, létt popprokk með „strandarblæ”, en eru bara ekki næstum því eins góð. Ekki slæm plata, en tals- verð vonbrigði þó. Höskuldur Daöi Magnússon „Nafn þessarar hljómsveitar er Talking Heads“ Rómuð tónleikaplata endurútgefin Bandariska hljómsveitin Talking Heads var starfandi á árunum 1974- E 1997. Hún var eitt af aðalnöfnunum á CBGB's senunni i New York á seinni hluta áttunda áratugarins og sendi frá sér nokkrar frábærar plötur, þ.á.m. Talking Heads (1977), More Songs About Buildings & Food (1978), Fear of Music (1979) og Remain in Light (1980). Árið 1982 kom út tónleikaplatan The Name of This Band Is Talking Heads sem var safn af tónleikaupptökum frá árun- um 1977-1981. Hún þótti sérstak- lega vel heppnuð. Þessi plata var af einhverjum ástæðum ekki gefin út á geisladiski fyrr en núna um daginn. Nýja útgáfan sem kemur úr smiðju Rhino fyrirtækisins er tvöföld og inniheldur ekki bara lögin 17 sem voru á upprunalegu útgáfunni held- ur 16 lögað auki. Ámeðal aukalag- anna má nefnaThe Big Country, Heaven, Psycho Killer, Warning Sign, Once In a Lifetime og Born Under Punches. TalkingHeads varskipuðþeim David Byrne (söngur, gítar), Jerry Harrison (gitar, hljómborð), Tinu Weymouth (bassi) og Chris Frantz (trommur). Þrátt fyrir mikinn áhuga bæði hjá aðdáendum og hjá öðrum meðlimum hefur David Byrne enn ekki tekið í mál að endurvekja sveit- 2. (3) The Libertines - Can't Stand Me Now 3. (4) Blonde Redhead - Equus 4. (2) Nick Cave - Nature Boy 5. H Mocky - Mickey Mouse Muthaf***ers 5 (5) Cornershop - Topknot 7. (7) Dizzee Rascal - Stand Up Tall 8. H Mylo-DropThePressure 9. (-) Goldie Lookin’Chain - Guns Don't Kill People, Rappers Do 10 J9) The Futureheads - Decent Days And Nights Hljómsveitin The Futureheads er skipuð fjórum strákum frá Sunderland. Fyrsta plata hennar, sem ber nafn sveitarinnar, hefur fengið frábærar viðtökur beggja vegna Atlantshafsins. Trausti Júlíusson tékkaði á sveitinni sem verður hiklaust talin ein af efnilegustu nýju rokksveitum ársins 2004. rlfjuð upp Það er ekki nóg með að fýrsta Oasis-platan sé nýkomin út í tvö- faldri nostalgíu-DVD útgáfu heldur er DVD-platan Star- shaped með Blur væntanleg 4. október. Þar er saga ■ sveitarinnar frá 1991 - 1994rakinmeðheimild- v . armynd, tónleikum (m.a. Reading 1991 og Glastonbury 1992). Star- shaped var fáanleg á myndbandi á sínum tíma, en þessi nýja út- gáfa er hlaðin aukaefni. með Raveonettes Maureen Tucker, oftast kölluð Mo, var trommuleikari The Velvet Und- erground. Eftir að hún hætti í sveitinni hefur hún mest verið að ala upp böm, en rokkar alltaf smá inn á milli. Hún á að baki nokkrar sólóplötur og nú er danska sveitin The Raveonettes búin að fá hana til þess að spila í fimm lögum á þriðju plötu sveit- arinnar sem er í vinnslu. „Þetta var algjör martröð. Þegar við vomm búnir að taka plötuna upp vorum við ekki ánægðir þannig að við tókum níu lög upp aftur," seg- ir Barry Hyde söngvari og gítarleik- ari The Futureheads um nýju plöt- una þeirra, „Þetta tók okkur eitt og hálft ár. Ég var á barmi taugaáfalls. En við náðum að gera plötu sem við erum mjög stoltir af." Og þeir mega alveg vera stoltir. Þetta er flott plata. Franz Ferdinand og New Cross senan The Futureheads hefur oft verið líkt við Franz Ferdinand. Ekki af því að tónlistin sé alveg eins heldur af því að sveitirnar þykja hafa svipaðan bakgrunn, þær nálgast tónlistina á svipaðan hátt og þær sækja að ein- hverju leiti áhrif til sömu fyrirmynd- anna. Bæði Futureheads og Franz Ferdinand tilheyra nýrri kynslóð breskra rokksveita sem einkennist af spilagleði og því að gera hlutina á eigin forsendum, en eltast ekki við kröfur eða óskir plötuútgefenda. í London er þessi sena kennd við New Cross sem er hverfi í Suð-Austur á leiðinni Slóvenska hljómsveitin Lai- bach er sameiginleg fýrirmynd Ham og Rammstein. Hún var stofnuð íTrbovlje í Júgóslavíu 1. júní 1980. Nú í október kemur út með henni safnplatan Anthems sem inniheldur m.a. þeirra útgáfur af lög- um eins og Sympatliy For The Devil, Final Count- down, In the Army Now, Get Back og Geburt Einer Nation. tilbúin Breska hljóm- sveitin The Fall, sem er væntanleg tfl fslands í þriðja sinn og mun spUa á tónleikum í Austurbæ 18. nóv- ember, er búin að taka upp nýja plötu. Hún heitir Interim og hefur að geyma 11 lög. Flest þeirra eru ný, en einhver eru endur- gerðir af gömlum meistarastykkjum. Auk þess er von á tveimur tvö- földum DVD-pökkum með tón- leikaupptökum, Access AU Areas 1 og2. London sem er einna þekktast fyrir Goldsmiths-skólann, en þar var Blur einmitt stofnuð. Þar hafa verið öfl- ugir tónlistarbarir, þ.á.m. Paradise Bar og þar hafa sveitir eins og Art Brut og Bloc Party verið að gera það gott undanfarna mánuði. En eins og Franz (Glasgow), The Zutons (Liver- pool) og The Futureheads (Sunder- land) sanna þá er þessi sena virk út um allt Bretland. Nafnið fengið frá Flaming Lips The Futureheads varð til í æsku- lýðsmiðstöð í Sunderland árið 2000. Þetta er miðstöð þar sem hljóm- sveitir fá ókeypis æfingaaðstöðu sem rekin er fyrir peninga frá breska lottóinu. Það eru fjórir meðlimir í The Futureheads. Þeir syngja allir, en Barry Hyde og Ross Millard spila líka á gítara, Jaff spilar á bassa og Dave Hyde, litíi bróðir Barrys spilar á trommur. í dag eru þeir á aldrin- um 18 til 21 árs. Nafnið The Futureheads er feng- ið úr gömlu Flaming Lips lagi („Hit To Death In The Future Head"). Meðlimirnir nefna jafn ólíka tónlist- armenn og Devo, Queen, Fugazi, Steve Reich, Buzzcocks, Shellac og Kate Bush sem áhrifavalda, en þegar maður hlustar á plötuna þeirra detta manni frekar í hug pönk-sveitir eins og The Jam, XTC og The Clash þó The Futureheads geri hlutína á sinn hátt og það sé alls ekki hægt að halda því fram að þetta sé ein- hver hermisveit. Það eru 15 lög á plötunni sem er gefin út af 679 plötufyrirtæk- inu (sem gefur út The Streets). Hún er bæði kraftmikil og fersk. Og hefur líka fengið frábæra dóma út um allt, hvort sem við tölum um bresk blöð eins og NME og Mojo eða vefsíður eins og Pitchforkmedia eða Playlouder. Hljómsveitin tók plöt- una upphaflega upp undir stjórn fyrrum Gang of 4 gítarleikarans Andy Gill, en var ekki alveg sátt við útkomuna þannig að þeir tóku meir- hluta laganna upp aftur og nú undir stjórn Pauls Epworth sem hafði ver- ið hljóðmaður hjá sveitum eins og The Rapture, Liars, LCD Soundsy- stem og The KiIIs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.