Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 32
f-J y I I <-* f 1 _TJ If- !j íl^Jj f !) !j Við tökum við I fréttaskotum allan sólarhringirm. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar I nafnleyndar er gætt. ^-i ^-j ^ » rJ A \ r ) r ) ■— zjUJU SKAFTAHLÍÐ24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS505000 • Mikil menningarleg gerjun á sér stað á Draugabarnum á Stokkseyri og vart líð- ur sú helgi að ekki séu þar uppákomur. Margar þeirra eru á vegum brottfluttra Vestflrðinga sem hafa fundið sig á Drauga- barnum. Um næstu helgi verður ein slflc þegar haldið verður Roll- ing Stones-kvöld sem upphaflega voru á Vagninum á Flateyri. Vest- firðingar munu syngja og annast hljóðfæraslátt og að sjálfsögðu mætir brott- flutti Vestfirðingurinn og Rolling Stones-aðdáandinn númer 1, Ólafur Helgi Kjartansson sýslu- maður, sem mun taka lagið á sinn sérstæða hátt... Ekki eröll hringa- vitleysan eins! 3 i£oác - a ■ F m m Fvrsta hmngtopgiö a Austur- Uppgangurinn austur á landi í kjölfar stóriðjuframkvæmda er mik- iÚ og ekki gefst alltaf færi á að veita sögulegum nýjungum veglegan sess vegna anna. Svo er með spánnýtt hringtorg sem tekið var í notkun á Reyðarfirði nýverið og er hið fyrsta sinnar tegundar á austurlandi. „Þetta er hið besta mál og setur svona nettan stórbæjarbrag á bæ- inn,“ segir Ásmundur Ásmundsson, fasteignasali og fyrrverandi skip- stjóri á Reyðarfirði um nýjasta sam- göngumannvirki bæjarbúa. Hringtorgið, sem Vegagerðin lét hann og Arnarfell útbjó, þykir einkar glæsilegt og hin mesta bæjarprýði að sögn heimamanna, en torgið er liður í uppbyggingu nýs vegar í gegnum þorpið, strandleiðina. Ásmundur segir Reyðfirðinga og nærsveitunga nú æfa sig í að keyra torgið enda margir af eldri íbúum staðarins lítt vanir slíku. „Það er ekkert skrýtið þó einhver hafi farið að æfa sig þegar menn eru ekki vanir," segir Ásmundur sem hefur það eftir reyðfirskum gárung- um að nú sé miðdepill alheims loks- ins merktur tilhlýðilega þar sem hann sé - á Reyðarfirði. „Reyðarfjöröur er miðdepill heimsins samkvæmt þessu og hringurinn á torginu er til marks um það," segir Ásmundur og ekur hringinn. Ásmundur fast- eignasali Æfir sig I því að aka hringinn eins og aðr- ir Reyðfiröingar. Hringtorgið á Reyðarfirði Gárungar segja hringtorgið marka miðpunkt aiheims sem ailtafhafi verið á Reyðarfiröi. Rektor gerist tónleikahaldari iPÍSr Páll Skúlason rektor Háskóla íslands býður starfsfólki og nemend- um á tónleika um næstu helgi í Háskóla- bíó. Tónleikarnir sem Páll býður til eru ekki af verri endanum því hin eina sanna Diddú mun stíga á stokk ásamt Jónasi Ingimundar- syni. Þau ætla halda uppi stuðinu með tónlistarveislu eins og þeim einum er lagið. Háskólinn og rektorinn segja það mikið ánægjuefni fyrir stofiiunina að geta efnt til svo glæsilegs tónlist- arviðburðar og vonar að sem flest- ir geti notið hans. Nemendur há- skólans geta nælt sér í miða f aðal- byggingu háskólans. Rektorinn ætlar greinilega að enda ferilinn með glæsi- rrag en eins og flest- ir vita mun hann láta af störfum inn- an skamms. Stórlaxinn Guðjón til Grindavíkur? Þrálátur orðrómur hefur heyrst undanfarið þess efnis að Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfari muni taka við liði Grindavíkur á næsta tímabili. Hinn umdeildi Guðjón hefur verið at- vinnulaus í þó nokkurn tíma eftir að draumar hans í Bretlandi náðu ekki fram að ganga. Grindavíkurliðið sem um- setið er kvótakóngum stóð ekki undir væntingum í sumar og end- aði í sjöunda sæti með jafnmörg stig og KR. Það er því ekki mjög ólíklegt að skipt verði um kall í brúnni. Það efast fáir um hæfni Guðjóns sem knattspyrnuþjálfara og er skemmst að minnast árangurs hans með landsliðið á sínum tíma. Undir hans stjórn rauk lansliðið upp styrkleikalista alþjóðaknatt- spyrnusambandsins en liðið hefur ekki náð þeim hæðum eftir að hann hætti störfum. Guðjón Þórðarson Siðasta liðið sem Guðjón Þórðarson þjálfaði var Barnsley á Englandi. Nú heyrist að nxsta stopp verði á Reykjanesi. McOstborgari, iítill McFranskar eda gulrætur og miöstæró af gosi McOstborgari, jógúrt meó ferskum ávöxtum og mióstæró af gosi McOstborgari lítill McFranskar eda gulrætur og McFlurry

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.