Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Page 16
16 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER2004 Helgarblað DV Ferill Jóns Gústafssonar er ótrúlegur. Hann fór mikinn í sjónvarpi á árum Hrafns Gunnlaugssonar, varö nánast tákngervingur níunda áratugarins og vinsæll þáttastjórnandi svo af bar. Jón hefur að undanförnu starfað við kvikmyndagerð, einkum í Kanada. Þar var hann til dæmis útilokaður í íslendingabyggðum fyrir umdeilda heimildarmynd. Hér er stiklað á stóru og nokkrar góðar sögur fá vitaskuld að fljóta með. „Ég var næstum því rekinn fyrir þáttinn um Kuklið í Rokkarnir geta ekki þagnað. Þar kom Björk fram með nakta óléttubumb- una út í loftið eins og frægt er orðið. Hrafn [Gunnlaugsson] varð alvegóður..." Hrafn óður? Varþetta ekki nákvæmlega við hans skap? „Jah, jú, en hann var hreinlega að drukkna í vandlætingu og hneykslan, enda rigndi beinlínis yfir stofnunina kvörtunum. En svo slógu Sykurmolarnir í gegn og skömmu síðar Björk. Þá var þetta myndskeið sýnt aftur og aftur í sjónvarpinu og þótti merki- legt. Og ekkert við það að athuga. En þarna birtist ég aftur og aft- ur í eighties-múnderingu með sítt að aftan. Og ég sem man ekki einu sinni eftir því að hafa verið með sítt að aftan. Greifarnir voru með ekta sítt að aftan. Ég var bara með sítt.“ Það er Jón Gústafsson kvikmynda- gerðarmaður og leikstjóri með meiru sem hefur orðið. Hann er að færast undan því að birt verði af sér mynd við þetta viðtal. Jón er nefhilega ekíd útlít- andi eins og aila jafiia. Hann er að leika hermann Bjólfs í stórmyndinni Bjólfskviðu sem nú er verið að taka upp austur á Vík og útliúð eftir því. Reyndar hefur blaðamaður DV, sem hefur marga fjöruna sopið, sjald- an tekið viðtal við sérkennilegri kring- umstæður. Viðmælandinn er sem sé að arka um fjöli ofan við Vík, í skikkju með spjót í annarri hönd og gsm-síma íhinni. „Tökur gangavel. Þetta erstórkost- legt land. Frábært að fá verkefni sem leiðir til þess að maður getur eytt tíma á íslandi. Hvað þá úú í þessari æðis- legu náttúru. Við tókum upp senu í morgun og þá var grenjandi rigning hellú yfir þakkláta krakka slími úr stórri fötu. Heppni og góð tímasetning Það má segja, í ljósi alls þessa, að Jón hafi ruðst komungur inn í sjón- varpið með látum og verið fyrirferðar- mikill þar. Vinur Jóns og bekkjarfélagi í MR, Þórður Magnússon, var með þátt í útvarpinu en þar starfaði faðir hans. Jón sá í hendi sér að þetta væri góður aukapeningur með skóla. „Ég spurði bara hvort ég gæú ekki líka fengið þátt. Rás 2 var þá að byrja og nóg af lausum stöðum. Það gekk eftir og ég heillaðist af faginu. Akvað að læra þetta og fór til London á „intensive" námskeið hjá BBC sem varði í þrjá mánuði. Þar var einmitt með mér Stefán Jökulsson útvarps- maður, sem kom að gerð Gettu betur- þáttanna ásamt mér. Þeir byrjuðu í Heimildarmynd um Bjólfs- kviðu Jón ó oö baki ótrúieg- an feril, hefur reynt margt skemmtiiegt,„kannski of margt," segir hann hlédrægur. . miklum breytingum á sjónvarpi, hafði byltingarkenndar hugmyndir og vildi hrista upp í stofnuninni svo um mun- aði. Hann var þá þegar kominn með hugmyndir að unglinga- og tónlistar- þáttum. Og inn gekk Jón Gústafsson. „Hann sagði við mig: Ég æda að gefa þér einn dag í stúdíói og þú átt að búa til þrjá þætú. Ef þú getur það þá æúa ég kannski að ráða þig. Og þetta varð upphafið að Rokkarnir geta ekki þagnað. Þar voru komnir tónlistar- þættimir sem hann æúaði sér að gera. Ekki hafði verið mikið um dægurtón- list þá í sjónvarpinu og því ædaði Hrafii sér meðal annars að breyta." Nafngiftin á þessum tónlistarþátt- um má heita sérkennileg, hún er frá Hrafni komin og Jón upplýsir að Hrafii hafi alltaf verið eitthvað að vitna í Laxness. Unglingamir í Mér fannst Hrafn mjög merkilegur og hann hristi mjög skemmtilega upp í íslenskri dagskrárgerð. Það þyrfti að koma fram nýr Hrafn. og rok. Nú er komið logn. Ég stend héma uppi á tindi og ekki hreyfist hár á höfði. Og sól í fjöilunum héma í kring. Magnað land." Þannig er það nú, hvort sem Jóni Gústafssyni lflcar betur eða ver, að hann er nánast tákngervingur fyrir eighúes-ið á íslandi. Þegar „sítt að aft- an“ var í hámarki stjómaði hann mörgum sjónvarps- og útvarpsþátt- um sem einkum vom æúaðir ungu fólki. Rokkamir geta ekki þagnað, Unglingamir í frumskóginum og eins og lesa má um á öðrum stað í þessu blaði, þá sparkaði hann hinum lang- lífa Gettu betur-þætti af stað árið 1986. Jón var rétt rúmlega tvítugur þá og hafið vitaskuld ekld grænan grun um hverju hann var að koma af stað. Þá muna margir efúr spumingaþætt- inum SPK sem æúaður var krökkum. Þá henti Jón blýöntum í allar áttir og útvarpi með undankeppni og við fengum það í gegn að Stefán væri útsendingarstjóri þáttanna en áður hafði bara verið einn tæknimaður og svo stjómandi þáttarins. Þetta breytti miklu. Pródúseraður þáttur." Nú brá hins vegar svo við að þegar Jón kom heim var enga vinnu að fá. Honum þótti það kúnstugt, loksins búinn að nema sig í faginu og þurfú að mæla götumar í nokkra mánuði. .Atvinnulaus og skuldugur datt mér svo í hug að sjónvarp gæti ekki verið svo ólflct útvarpi. Labbaði bara þang- að og bankaði uppá hjá Hrafrii Gunn- laugssyni sem þá var nýbyrjaður sem dagskrárstjóri. Heppni og góð tíma- setning, því hann var einmitt að leita efúr fólki til að stjóma þáttum." Við þurfum nýjan Hrafn Hrafn æúaði sér að koma í gegn frumskóginum er til dæmis þaðan komið og Rokkamir einnig. „Ég var ungur og vitiaus og sagði bara já, já. Og sé ekkert eftir því. Ég held reyndar að þetta hafi verið óhemjumerkilegur tfmi í sjónvarpinu. Ég veit til dæmis ekki til þess aö eins mikið hafi verið gert fyrir íslenska tón- list, tónlistarmenn og Jiljómsveitir í annan tfina. Þetta var mjög gott fyrir tónlistarlífið og urðu beinlínis til hljómsveitir vegna þessa. Mér fannst Hrafh mjög merkilegur og hann hristi mjög skemmtilega upp í íslenskri dag- skrárgerð. Það þyrfti að koma fram nýr Hrafn." Fjölskrúðugur tónlistarferill Ekki er orðum auldð að mikið fór fyrir Jóni á þessum árum því bæði var hann áberandi í útvarpi og sjónvarpi auk þess sem hann var í tölvu- popptríóinu Sonus Future sem nokk- uð kvað að. „Já, það. Þetta var nú menntaskólahúmor hjá okkur. Og við létum okkur engu skipta hver fattaði húmorinn og hver ekki. Og nú sldlst mér að hún sé komin í sögubækumar. Einhver var að segja mér að hún væri kennd í íslenskri raftónlistarsögu," hlær Jón. „Það er fýndið í sjálfu sér." Og tónlistaráhuga Jóns var ekki svalað. Hann starfaði á þessum árum í tónlistarbransanum og þá til dæmis í hljóðverum. Jón tók til dæmis upp Konu-plötu Bubba Morthens en Tómas Tómasson tók svo við því starfi og sh'paði hana til. Hann tók upp plöm með Magnúsi Þór, Óla Prik, plöm með Magnúsi og Jóhanni og sitthvað fleira. Var ekkert sem stóð í vegi fyrir Jóni? „Eins og ég segi, ungur og vitlaus og þá veit maður ekki betur. Gerir þetta bara hugsunarlaust og lifir í mó- mentinu. Já, ég hef fengið að upplifa ýmislegt skemmtilegt og komið víða við. Kannski of víða." Bændur í sauðburð og óreyndir rafvirkjar á sviðið Leið Jóns lá út í hinn stóra heim. Hann fór fyrst til Bretlands aftur árið 1988 og nú til að læra kvikmyndagerð og leikstjóm. Síðan fór hann til Kali- fomiu árið 1990 og útskrifaðist þaðan árið 1994. Árin í LA segir hann hafa verið skemmtilegan tíma og ævintýra- legan með síðasta stóra jarðskálftan- um sem þar var og Sundance-kvik- myndaháti'ð á hverju ári. „Já, eftir nám hef ég fengist við að leikstýra áhuga- og skólaleikhópum á íslandi. Einhver eftirminnilegasta reynslan er þegar ég setti upp Delerí- um búbónis í Borgamesi. Það var jafnframt í fýrsta skipti sem hringt var í mig og ég beðinn um að taka að mér leikstjóm. Þetta var á 30 ára afinæli þessa merka leikrits og mikil pressa því þá strax lá það fyrir að höfundam- ir, bræðumir Jón Múli og Jónas Ama- son, yrðu viðstaddir frumsýningu. Ungmennafélagið Skallgrímur lagði því mfldð undir. Sú saga er of löng í svona stutt við- tal en það gekk á ýmsu. Strax fyrsta daginn hættu þrír bestu leikaramir, bændur sem þurftu að hverfa nokkuð óvænt í sauðburð. Ég endaði með þrjá bifvélavirkja í aðalhlutverkunum en þeir höfðu aldrei komið nálægt sviði áður. Eftir alls konar hremmingar fór leikritið á svið og Jón Múli og Jónas mættu. Ég var mjög taugaveiklaður og fannst ekki hafa tekist nógu vel til. En Jón Múli, sem sagðist hafa séð þetta leikrit nokkuð oft enda ætíð boðið á frumsýningu verksins, reyndist mjög vinsamlegur og bjargaði eiginlega leikstjómarferli mínum með lofsam- legum orðum um eina senuna. Þar er saga sem verður að bíða betri tíma." Davíð Þór reynist skaðvaldur ...og þó ekki Jón var á íslandi við störf í ein tvö ár en sumarið 1996 fór hann í ferðalag til Kanada sem reyndist afdrifaríkt. Hann var að skrifa greinar fyrir Mogg- ann um Vestur-íslendinga. Þar kvikn- aði sú hugmynd að gera heimildar- mynd um það efrii og rfldssjónvarpið í Kanada ákvað að framleiða myndina. Jón þurfti að verja góðum tíma í Kanada til að gera þá mynd og hefúr verið þar með annan fótinn æ síðan. Þar á hann heimili og konu sem er í viðskiptageiranum. „Vel menntuð, í öruggri vinnu. Það veitir víst ekki af að hafa eitthvert mótvægi við mig." Jón reynir þrátt fyrir þetta að vera eins mikið á Islandi og kostur er en vinnan ræður því að mestu. Heimildarmyndin, sem heitir The Importance of Being Icelandic, vakti hörð viðbrögð í íslendingabyggðum Var aldrei með sítt að aftan— bara sítt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.