Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004
Helgarblað DV
Fyrir nokkrum dögum kom stórvirki Brians Wilson, Smile, loks í verslanir, 37 árum eftir fyrirhugaðan
útgáfudag. Trausti Júlíusson kynnti sér plötuna og gerð hennar og spáði í Beach Boysfyrr og nú í tilefni
af tónleikum Beach Boys Band i Laugardalshöllinni 21. nóvember n.k.
Tók við sem leiðtogi
sveitarinnar eftir að Brian dró sig að
mestu út úr tónleikahaldi á seinni hluta
sjöunda áratugarins. Carl varþó alltafi
skugga Brians. Hann lést úr heila-
krabbameini árið 1998. Fram að þvi hélt
hann úti tónleikasveitinni The Beach
Boys Family & Friends ásamt Al Jardine
og dætrum Brians, Wendy og Carnie.
Mesti sukkari og
partidýr þeirra Wilson-bræðra. Hann
drukknaði þegar hann var að synda i
land frá snekkju sinni 28. desember
1983.
Forsöngvari sveitarinnar
frá upphafi og sá eini sem var í sveitinni
á öllum plötum og á öllum tónleikum
sveitarinnar. Hann er leiðtogi sveitar-
innar The Beach Boys Band sem spilar i
Laugardalshöllinni 21. nóvember. Sjá
texta.
Heldur úti sinu eigin
bandi sem spilar m.a. Beach Boys-lög.
Það heitir Al Jardine's Endless Summer
Beach Band.
„Mesti snillingur
bandariskrar poppsögu. “ Aðallagasmið-
ur Beach Boys. Hann er nýbúinn að gefa
út Smile-plötuna og ernúá tónleikaferð
um Bandarikin.
Einstakt verk í poppsögunni
Margar ástæður urðu til þess að
Brian Wilson gafst upp á að klára
Smile-plötuna eftir margra mánaða
vinnu í maí 1967. Hann hafði um
nokkurt skeið notað mikið af eiturlyfj-
um: sýru, kannabis og amfetamín, og
andlegu ástandi hans fór stöðugt
hrakandi. Hann var skömmu síðar
greindur bæði með geðklofa og of-
sóknaræði af einum þeirra fjölmörgu
geðlækna sem hann leitaði til.
Capitol-plötufyrirtækið var lfka alveg
að gefast upp á verkinu, þar á bæ vildu
menn nýja smelli og það strax. Auk
þess voru meðlimir Beach Boys líka
mishrifnir. Carl Wilson og A1 Jardine
fannst verkefnið frábært, en Dennis
Wilson og Mike Love þoldu það ekki.
Sá síðamefndi á að hafa kallað það
„heila plötu af geðveiki Brians".
í dag nefnir Brian sjálfur eina
ástæðu í viðbót: „Við vissum að platan
var of langt á undan sinni samtíð."
Smile var sett ókláruð inn í geymslu á
miðju ári 1967 og aðdáendur Beach
Boys og Brians Wilson hafa síðan þurft
að láta sig dreyma, eða sætta sig við
eina af þeim íjölmörgu ókláruðu út-
gáfum verksins sem hægt er að nálgast
á ólöglegum útgáfum eða á netinu. En
nú er biðin loks á enda. Brian Wilson
Presents Smile er komin í verslanir um
allan heim, 37 árum eftir fyrirhugaðan
útgáfudag.
Brimbrettapopp
Söngsveitin Beach Boys var stofn-
uð í Los Angeles árið 1961 af bræðrun-
um Brian og Carl Wilson, náfrænda
þeirra Mike Love og nágrannanum A1
Jardine. Þeir sungu allir, en Brian spil-
aði á bassa og hljómborð, Carl og A1 á
sinn gítarinn hvor og Mike var aðal-
söngvarinn. Þeir hétu ýmsum nöfnum
í upphafi ferilsins, þ.á.m. The Pend-
letones, Carl & The Passions og Kenny
& The Kasuals. Fljótlega bættist þiðji
Wilson bróðirinn, trommuleikarinn
Dennis, í hópinn og þegar þeir voru
komnir með plötusamning var ákveð-
ið að sveitin ætti að heita Beach Boys.
í upphafi spilaði Beach Boys brim-
brettatónlist, einfalt og glaðlegt popp
með textum um sólina og stelpumar á
Brian Wilson Farinn að brosa aftur.
ströndinni og strax í byrjun var rödd-
unin aðalsmerki sveitarinnar. Brian
var aðallagasmiður sveitarinnar og
var hann undir miklum áhrifum frá
söngkvartettinum The Four Fresh-
men. Beach Boys náðu fljótt vinsæld-
um og á næstu árum röðuðu þeir nið-
ur smellunum, Surfin’ USA, Little Sur-
fer Girl, Surfin’, Surfin’ Safari, Fun Fun
Fun, I Get Around og Califomia Girls.
Þeir vom líka á góðri leið með að verða
ein af vinsælustu tónleikasveitum
Bandaríkjanna.
Rígur Bítlanna og Beach Boys
Þegar leið á sjöunda áratuginn fóm
áherslumar hjá Brian Wilson að breyt-
ast. Hann komst í kynni við upptöku-
snillinginn Phil Spector og fékk mun
meiri áhuga á því að búa til tónlist í
hljóðverinu heldur en að þeytast á
milli borga og syngja endalaust sömu
smellina á tónleikum. Hann kynntist
líka tónlist Bítlanna og um miðjan ára-
tuginn var kapphlaupið á milli Bíd-
anna, Brians og Phils um það hver
gæti búið til mögnuðustu popptón-
verkin orðið hálfopinbert.
Sagan segir að á tfrna hafi bæði Bri-
an og Phil ráðið til sín einkaspæjara til
þess að fylgjast með verkum hins.
Þetta tímabil, sem er eitthvað mesta
framfaraskeið poppsögunnar, gaf af
sér nokkrar plötur sem enn í dag em
taldar meðal bestu platna allra tíma.
Revolver Bítlanna þótti snilld og Brian
Wilson svaraði með meistaraverki
Beach Boys, Pet Sounds. Bítlamir
spýttu þá í lófana og bjuggu til Sgt.
Peppers Lonley Hearts Club Band.
Unglingasinfónía til dýrðar
Guði
Það var í þessu andrúmslofti sem
Brian Wilson hóf vinnuna við Smile -
plötuna í janúar 1966. Eftir gerð Pet
Sounds hafði hann gert hið marg-
slungna poppsnilldarverk Good
Vibrations. Það var hljóðritað í fimm
mismunandi hljóðvemm með sumum
af fæmstu hljóðfæraleikumm Los
Angeles. Á þessum tí'ma var Brian
hættur að nota hljómsveitina til þess
að spila inn á plötur, hún var bara
fengin á staðinn til að syngja.
Good Vibrations (Brian kallaði lag-
ið „vasasinfóníu") fór á topp banda-
ríska listans í desember 1965 og í árs-
byrjun 1966 hófst vinna við Smile, sem
upphaflega átti að heita Dumb Angel.
Brian réði Van Dyke Parks til að semja
texta fyrir verkið, sem átti að verða
meistaraverk hans og slá út öll fyrri
popptónverk bæði hvað varðaði inni-
hald, útsetningar og hljóm. Brian lýsti
verkinu sem „unglingasinfómu til
dýrðar Guði“. Síðan missti Brian heils-
una og verkinu var aflýst.
Aftur í Sunset Sound-hljóðverið
Eftir Smile-tímabilið hætti Brian
nánanst alveg að koma fram með
Beach Boys. Hann lokaði sig af stóran
hluta áttunda og m'unda áratugarins
og þótt hann hafi komið fram í sviðs-
ljósið af og til þá tók hann aldrei í mál
að klára Smile og varð flóttalegur bara
við það að heyra minnst á verkið. Með
hjálp góðra manna tókst honum samt
smám saman að vinna bug á and-
legum meinum sínum og á tíunda ára-
tugnum var hann farinn að búa til tón-
list á nýjan leik.
Hann fór að spila á tónleikum og
réði hljómsveitina The Wondermints
til að spila með sér. Þeir fluttu Pet
Sounds í heild sinni árið 2000 og
skömmu seinna tókst eiginkonu hans,
Melindu, og Darian Sahanaja, leiðtoga
Wondermints, að sannfæra Brian um
að nú væri lag að klára Smile. Brian
fékk Van Dyke Parks til þess að semja
nýja texta til að bæta við verkið og
samdi sjálfur eitthvað af nýrri tónlist,
aðallega stutta kafla til þess að tengja
lögin sem voru til fyrir og búa til heild-
armynd. 20. febrúar síðast liðinn var
Smile ffumflutt á tónleikum í Royal
Festival Hall í London og upp úr því
var hafist handa við að endurhljóðrita
verkið í Sunset Sound-hljóðverinu í
LA, en það var eitt af þeim stúdíóum
sem voru notuð við upphaflegu Smile-
upptökumar.
Áhrif frá Bach, Debussy og Ravel
Þessi nýja útgáfa af Smile þykir
hafa heppnast ótrúlega vel. Platan fær
alls staðar frábæra dóma og þessa
dagana er Brian að flytja verkið á tón-
leikaferð um Bandaríkin. tónlistar-
blaðamaðurinn Nick Kent, sem í dag
skrifar fýrir franska dagblaðið Libér-
ation, tók viðtal við Brian í tilefrú af út-
komu Smile. Þar segir Brian að hann
efist ekki um að verkið eigi eftir að ná
vinsældum.
„Þessi plata mun skera sig út af því
að í dag er allt svo neikvætt, en Smile
er hundrað prósent jákvæð.” Hann
lýsir verkinu sem „rokkóperu í þremm
þáttum sem fjallar um kjama Ameríku
í gegnum aldimar." Þegar hann er
spurður um áhrifavalda verksins þá
svarar hann „Bach, Debussy og Ra-
vel,” og bætir við að hann sé þeirrar
skoðunar að hann sé á svipuðu plani
og þeir. Aðspmður segir hann að það
sé bara einn núlifandi tónlistarmaðm
sem slái honum við. „Phil Spector.
Hann hafði mest áhrif á mig og er besti
lagasmiður sem ég hef heyrt til."
Það brá mörgum i brún þegar þeir áttuðu sig á þvi að Brian Wilson, aðallaga-
smiður og langþekktasti meðlimur Beach Boys, verður ekki með á tónleikunum i
Laugardalshöllinni 21. nóvember n.k. Hvað er að gerast? Er þetta eitthvað svindl?
Svarið er nei. Hljómsveitin sem spilar i höllinni heitir The Beach Boys Band og er
leidd af Mike Lovesem ereinn af stofnendum Beach Boys og náfrændi Wilson-
bræðra Iþeir eru systkynabörn). Mike var aðalsöngvari Beach Boys allan timann sem
sveitin starfaði, söng á öllum plötumog öllum tónleikum sveitarinnar. Hann samdi
lika texta við nokkur frægustu lögum sveitarinnar og vann málaferli árið 1994 sem
staðfesta það.
The Beach Boys Band er átta manna sveit. Auk Mike Love er annar fyrrum Beach
Boys-meðlimur i sveitinni. Hann heitir Bruce Johnston og gekk til liðs við Beach Boys
i apríl 1965. Hann var upphaflega ráðinn til að spila á tónleikum, en tók þátt einnig
i að hljóðrita efni, þ.á.m. lagið California Girls og Pet Sounds-plötuna.
The Beach Boys Band spilar alla helstu smelli Beach Boys. Mike Love fór i mál við
Al Jardine árið 2001 þegar Al ætlaði að nota Beach Boys-nafnið sem hluta afnafnin
sinnar hljómsveitar. Og Mike vann málið. Aðalrök Mike fyrir þvi að hann megi einn
nota nafnið eru þau að allir hinir meðlimirnir hættu - einn aföðrum, en hann hélt
alltafáfram. Samskipti á milli fyrrum stofnmeðlima Beach Boys (Brians, Als og
Mikes) hafa reyndar verið mjög stirð frá þvi að Carl dó árið 1998, en hann var alltaf
góður sáttasemjari.