Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Síða 35
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 35 ■» I Viili naglbítur Næsturtil J að reyna sig á þessari hálu braut sem felst i að stýra leikjaþætti í sjónvarpi. áhuginn endurnýjast í sífellu. Og svona rétt áður en skilið er við Ómar, þá stýrði hann þáttum sem líklega eru þeir sem mælst hafa vin- sælastir á íslandi. Menn geta því gleymt því að kíta um hvort Spaug- stofumenn eða Hemmi Gunn hafi mælst vinsælastir. Þetta voru Stiklu- þættirnir sem mældust með 75 pró- senta áhorf. En þeir voru annars eðlis og önnur Einn Landsins snjallasti drep- ur ekki formið Á sinni tiltölulega stuttu sögu, sem telur fimm ár, hafa þeir á Skjá einum verið ákaflega duglegur við að kynna til sögunnar ýmsa leikjaþætti. Einn þeirra er Landsins snjailasti, þáttur sem var á dagskrá síðasta vetr- ar. Umsjónarmaður var Hálfdán Steinþórsson. Á vef sjónvarpsstöðv- arinnar má finna þessi orð sem sann- arlega eru við hæfi: „Skjár einn hefur alla tíð verið óhræddur við að gera til- raunir og hreint ekki lagt árar í bát í leitinni að skemmtilegu af- þreyingarefni þótt stund- um hafi á móti blásið ..." saga Spurt og spurt og spurt Guðni og Trausti takast í hendur en spekingarnir Örn- ólfur Thorlacius og Sigurður Richter horfa ábúðarfullir (og sveittir) í vélina. Móti blásið, já. Landsins snjail- asti hlaut misjafnar viðtökur. „Já, hann gerði það nú blessaður. Fékk reyndar fi'nt áhorf en ekki hefur nú verið tekin um það ákvörðun að endurvekja hann. Þátturinn er kom- inn í saltpækil." Hálfdán telur víst að það sé meira en að segja það að stjórna leikja- þætti í sjónvarpi. „Ég hef því miður ekki þá reynslu að hafa stýrt slíkum sem virkar. Þegar ég kom að þessu verkefni var fyrirliggjandi mjög flott handrit og ég ákvað að prófa þetta. Og svoleiðis var það nú. Nei, ég held ég muni ekki reyna þetta aftur," seg- ir Hálfdán, sem nú starfar á mark- aðsdeild Skjás eins. Hann segir alveg ljóst að ekki verði lagðar árar í bát enda sé þetta format sem slíkt að svínvirka í Evr- ópu og víðar. „Við erum einmitt að fara af stað með nýjan þátt núna sem heitir Bingó og Villi naglbítur stýrir. Einn Landsins snjallasti færir okkur ekkert af sporinu hvað þetta varðar." Aðrir leikjaþættir sem Skjár einn hefur staðið fyrir er Popppunktur, sem enn lifir, og svo Teiknileikni í umsjá Viila Goða. „Þetta stendur allt til bóta og við erum að prufa okkur áfram sem hefur skilað árangri hing- að til - upp að vissu marki." Spurt og spurt og spurt Ríkissjónvarpið hefur staðið fyrir gerð ýmissa leikjaþátta í gegnum tíðina og einn þeirra var í umsjá þeirra Guðna Kolbeinssonar ís- lenskufræðings og Trausta Jónsson- ar veðurfræðings. Þetta voru spurn- ingaþættir og dugðu ekki minna en tveir dómarar og þá hinir virtu spek- ingar örnólfur Thorlacius og Sig- urður Richter. Þeir voru klæddir upp í tilefni hlutverks síns, í skikkjum og með miklar hárkollur á höfði. „Já, það var ógurlega heitt í ljós- unum," segir Trausti þegar hann riflar upp þennan spurningaþátt. „Ég man að ég mældi sérstaldega hitastigið í hvert skipti." Þættirnir urðu ekki fleiri en sjö og árið var 1981. „Þettavarekkiósvipað spurningakeppni framhaldsskól- anna sem síðar kom en ekki eins fjörugt eins og gefur að skilja. Við fengum einhvern þann sem hafði séð um ámótaþátt áður til að vera liðsstjóri og sá valdi með sér mann- skap.“ Hver þáttur bar sína yfirskrift. Þannig hét fyrsti þáttur þeirra Hálfdán Steinþórsson Ferekki í graf- götur með að Landsins snjallasti var ekki að virka. En um að gera að prófa sig áfram. Hálfdán á ekki von á að láta til sln taka á þessum vettvangi aftur. Trausta og Guðna Spurt. Svo kom Spurt og spurt. Þá: Spurt og spurt og spurt. Og fjórði: Enn er spurt og þannig koll af kolli. „Já, spurt var lykilorðið í þessu. Við Guðni höfð- um mjög gaman af þessu. Hins veg- ar höfðum við aldrei gert svona nokkuð áður þó að á þeim tíma höf- um við verið farnir að venjast fjöl- miðlum." Helst er á Trausta að heyra að þeir félagar hafi reynst sjónvarpinu heldur slæm fjárfesting því hvorki var úthald þáttanna mikið né úthald sjónvarpsins sem slíks. Og sú reynsla sem þeir bjuggu orðið að fór í súginn. „Já, það er alltaf verið að kenna mönnum upp á nýtt. Það hefði kannski mátt nota okkur meira. En þetta var ágætisskemmt- un fyrir okkur tvo. Ég veit hins vegar ekki hvort áhorfendur höfðu gaman af.“ Sama hversu hallærislegt... Trausti er á því að Sjónvarpið ætti að gera meira af sfikum þáttum, það er leikja- og spurningaþáttum, sem eru ódýrir og vinsælir og láta ekki Gettu betur einoka sviðið. „Spurningakeppnir eru náttúrlega alþjóðleg fyrirbæri og vinsælar sem slíkar. En með íslendinga, þá er merkilegast að það er sama hversu hallærislegt þetta hefur verið - alltaf hafa vinsældimar verið miklar." Að sögn Trausta, sem er vel fróð- ur um sögu spurningakeppna á veg- um RÚV, var aðalsprautan í að koma hinum lífsseiga Gettu betur á kopp- inn Jón Gústafsson. „Jahhh, ég átti nú ekki hugmynd- ina að þættinum. Það komu tveir menntskælingar með þessa hug- mynd í sjónvarpið. Ég var svo í kjöl- farið kallaður inn á skrifstofu og beðinn um að útfæra þessa hug- mynd og hanna formatið. Við höfð- um þá verið á námskeiði hjá BBC, ég og Stefán Jökulsson útvarpsmaður, ég fékk hann til að útfæra þetta með mér. Við litum til ýmissa spurninga- þátta annarra og löguðum að formatinu. Hraðaspurningarnar vom til dæmis ættaðar frá Magnúsi Magnússyni og Mastermind-þáttum hans. En ein frægasta setning á Bret- landseyjum var einmitt: „I’ve started, so I finish." Keppnin hóf feril sinn í útvarp- inu, þar var undankeppnin líkt og nú þekkist. Jón fékk Steinar J. Lúð- víksson til að semja spurningar og Jóna Finnsdóttir var svo útsending- arstjóri. Upphaflega hafði Jón hugs- að sér Pál Magnússon sem spyril en hann hins vegar taldi einsýnt að rétt væri að Jón héldi áfram úr útvarpinu í sjónvarp til að spyrja. „Meðspyrill minn var svo ÞorgeirÁstvaldsson." Engin leið var fyrir Jón að sjá fyr- ir langlífi þáttarins. „Ég var nú bara rétt rúmlega tvítugur og þá hugsar maður ekki tuttugu ár ffarn í tím- ann. Ég hef ekki oft séð þáttinn en hef þó tekið eftir því að hann hefur sáralítið breyst að formi til. Sem er rökrétt. Þetta er að virka." jakob@dv.is Jón Gústafsson Forkólfur langlifasta leikja- og spurningaþáttar i íslensku sjónvarpi. Hann gat ómögulega séð það fyrir sér rúmlega tvítugur þegar hann sparkaði Gettu betur af stað. Jónas R. Jónsson Síðar stýrði hann Viltu vinna millj- ón? en þarna er hann árið 1974 og stýrir leikja- og skemmtiþætti sem hét Ugla satákvisti. Ingvi Hrafn Jónsson glað- beittur að vanda Margirmuna Bingó lottóið sem tngvi Hrafn stýrði en sá þáttur var eitt þeirra trompa sem Stöð 2 hefur spilað út í þessum efnum. %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.