Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Qupperneq 55
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER2004 55
Skjár einn: Alltaf ókeypis?
Um daginn fletti ég tímaritinu
Mannlífi og sá að þar var gríðarleg
umfjöllun um þá góðu daga þegar
Skjár einn var ungur og hress. Þarna
voru flennistórar myndir af starfs-
fólki sjónvarpsstöðvarinnar í árdaga
- þarmeðtalið allnokkrar af sjálfum
mér - og lýsingar á samkvæmislífi
starfsmanna. Gott ef ekki var minnst
á orgíur. Ég sótti nokkur partí hjá
Skjá einum á þessum tima en man
samt ekki eftir að hafa lent í stóðlífi.
Kannski var blásið til leiks eftir að
við Vala Matt vorum farin heim.
Allir voru stjörnur
En þetta voru að sönnu glaðir
tímar. Þegar bjartsýnin var hvað
mest voru þrettán íslenskir þættir í
loftinu á Skjá einum. Þar voru allir
stjörnur. Reglulega voru haldnir
peppfundir þar sem við starfsmenn-
imir klöppuðum fýrir sjálfum okkur.
Ég var að sönnu nokkru eldri en
flestir þarna (þó ég þykist enn greina
19 ára mann þegar ég horfi í spegil).
En það var gaman að vera með
svona ungu, fallegu og klám fólki.
Vesinið ætlar engan endi að
taka
Tilkoma Skjásins vakti heitar til-
finningar. Ég kom að einum keppi-
nautnum þar sem hann var ólund-
arlega að raka laufi í garðinum sín-
um. Hann æsti sig, kom hlaupandi
út að grindverkinu og sagði að það
væri verið að „ræna banka“. Kannski
var það smámisskiliningur þegar ég
var metinn á 100 mfiljónir í við-
skiptaplani Skjás eins. Annars veit
ég ekkert um það og trúi helst engu
illu upp á neina sem þarna vom.
Þeir njóta sjaldnast eldanna sem
fyrstir kveikja þá. En þeim mun
Ráðherrar koma líka
affjöHum, þykjast
ekki vita neitt.Samt
eru sérstakir trúnað-
armenn flokksins úti
um allt í fyrirtækinu.
Maður sér þá skjótast
inn og út úr hásölum
valdsins í miðbænum.
merkilegra er að sjá Skjá einn allt í
einu verða að ríkisfyrirtæki.
Makalaust er þetta með Lands-
símann. Það ætti ekki að þurfa að
vera svo flókið mál að reka símafyr-
irtæki í rfkiseigu, bara að passa að
allir séu í góðu sambandi, en vesen-
ið þarna innandyra virðist ekki taka
neinn enda. Eftír að gæðingar höfðu
leikið þar lausum hala um árabil -
skammtað sér laun og annað - var
fyrirtækið fært undan samgöngu-
ráðherra sem þurfti hérumbil að
segja af sér vegna endalausra
hneykshsmála í Símanum. Hefði l£k-
lega verið látinn íjúka í flestum öðr-
um löndum.
Lappað upp á ímyndina
Svo er reynt að straumh'nulaga
batteríið. Ein af fáum konum sem
hafa meikað það í viðskiptah'finu er
gerð að stjórnarformanni - reyndar
á tvöfalt hærra kaupi en áður þekkt-
ist. Það eru fengnir útlendir ráðgjaf-
ar til að lappa upp á ímyndina.
Merki fyrirtækisins er breytt. Fram-
kvæmdastjórinn kemur fram eins og
kvikmyndastjarna á blaðamanna-
fundi, íklæddur flauelsfötum og
búinn að kasta bindinu.
En þetta er samt ríkisfyrirtæki,
ekkert annað. Ekkert bólar á einka-
væðingunni sem þó er eitt helsta
stefnumál ríkisstjórnarinnar - og
hefur verið á stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins síðan elstu menn muna.
Hún klúðraðist svo eftirminnilega
fyrir fáum árum þegar „litli lands-
símamaðurinn" var helsta hetjan í
fjölmiðlunum stutta hríð - lak öllu
um sukkið í fyrirtækinu og var um-
svifalaust rekinn fyrir vikið. Einhver
myndi halda að nú væri lag að
einkavæða, þegar hlutabréfamark-
aðurinn er eins og útblásin blaðra og
menn bíða í röðum eftir að fá að
kaupa - bara eitthvað...
Ríkið sýnir Survivor og Sirrý
f staðinn er hangið í hinu vafa-
sama rekstrarformi „Hlutafélag í
eigu rfkisins", enginn virðist ábyrgur
fyrir neinu, stjórnendur fýrirtækis-
ins svara helst ekki í síma, hvorki
gsm né fastlínu - og fýrirtæídð fær
að rása út eftir geðþótta. Nú er búið
að kaupa heila sjónvarpsstöð. Skjár
einn hefur verið ríkisvæddur - með
Sirrý, Survivor, Sunnudagsþættin-
um og öllu klabbinu. Á íslandi eru
nú tvö sjónvarpsfélög í eigu rfkisins,
eitt í einkaeign.
Ráðherrar koma líka af íjöllum,
þykjast ekki vita neitt. Samt eru sér-
stakir trúnaðarmenn flokksins úti
um allt í fyrirtækinu. Maður sér þá
skjótast inn og út úr hásölum valds-
ins í miðbænum. Eina hlutabréfið í
fyrirtækinu er geymt í skúffu uppi í
fjármálaráðuneyti eftir að það var
tekið af Sturlu.
Ég sótti nokkur partí hjá Skjá einum á þessum tíma en man samt ekki
eftir að hafa lent ístóðlífi. Kannski var blásið til leiks eftir að við Vala
Matt vorum farin heim.
El NSÁRS
Föstudaginn 20. október
verður SKJÁREINN eins
árs. Af þvi tilefni langar
okkur að bjóða þér i
afmæHsveislu þar sem
starfsfólki og vinum
stöðvarinnar verður boðið
upp á góðar veitingar.
20.00 til 23.00 í sal
Kariakórs
Sprenghlægilegur sand-
kassaleikur
En þetta er auðvitað vandræða-
mál. Líklega er ekki hægt að selja
Símann fýrr en er alveg öruggt að
réttir kaupendur finnist. Það er ekki
sama í kjafti hvaða ránfisks hann
lendir. Samsærissinnaðir menn hafa
þóst greina ýmis plott. Að það sé
verið að bíða eftir því að hræinu af
Kolkrabbanum takist að öngla sam-
an nógu fé til að kaupa Símann.
Kaupverðið er jú ansi hátt-40 mfilj-
arðar eru nefhdir. Og svo segir bæj-
arrómur líka að hugmyndir séu um
að Síminn verði undirstaðan í nýj-
um fjölmiðlarisa; fyrsta skerfið sé að
bjarga Skjá einum ffá faUi með því
að kaupa hann þangað inn og svo
eigi að reyna að ná í Moggann - eða
það sem verður eftir af honum.
Þá loks geti andstæðingar Jóns
Ásgeirs náð vopnum sínum í fjöl-
miðlunum - fyrst ekki tókst að setja
á hann lög. Það er svo sprenghlægi-
legt dæmi um sandkassaleikinn sem
fer fram hér í viðskiptalífinu að þeg-
ar Síminn kaupir sjónvarpsstöð, þá
kaupir hin sjónvarpsstöðin símafyr-
irtæki.
„Dásamleg stefna" frjáls-
hyggjan
Lykilmaðurinn í þessum plott-
um er nefndur Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, einn helsti
Laugardagskj allari
kommisar fiokksins í viðskiptalíf-
inu og formaður útvarpsráðs svo
fátt eitt sé nefnt. Össur Skarphéð-
insson jós yfir hann skömmum í
viðtali í fyrradag og heimtaði að
hann yrði látinn segja af sér. Ég veit
ekki um það. En fyrir nokkrum
árum las ég viðtal við Gunnlaug
Sævar sem mér er ákaflega minnis-
stætt. Það birtist einmitt hér í DV.
Þar átti Gunnlaugur ekki nógu sterk
orð til að lýsa því hvað hann væri
mikill frjálshyggjumaður. Hann
ítrekaði það margsinnis að hann
væri einn af stofnendum Félags
frjálshyggjumanna og sagðist
þeirrar skoðunar að frjálshyggjan
væri „dásamleg stefna".
Gunnlaugur Sævar baksar
Gunnlaugur lætur samt fijáls-
hyggjuna ekki þvælast meira fyrir
sér en svo að hann er formaður
útvarpsráðs til margra ára - sem
jafngildir því að vera stjórnarfor-
maður Ríkisútvarpsins - og er nú að
baksa við að koma öðrum fjölmiðli
undir verndarvæng ríkisvaldsins.
Það er eins óg vitur maður sagði
eitt sinn - menn berjast af meiri
ákafa fyrir hagsmunum sínum en -é?
hugsjónum...
í
¥
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
GITARINN EHF.
www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gitarinn@gitarinn.is
Trommusett með öllu,
ásamt kennslu-
myndbandi og
æfingaplöttum á
allt settið.
Rétt verð
73.900.-
Tilboðsverð
'54.900.-
ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 14.900.-
M/ POKA. ÓL. STILLIFLAUTU OG NÖCL
ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 17.900,-
M/ PICK-UP (HÆGT AÐ TENCJA I MACNARA)
M/ÖLLU AÐ OFAN.
KLASSÍSKUR GÍTAR
FRÁ
KR. 9.900.-
RAFMAGNSSETT: KR. 27.900.-
(RAFMAGNSGiTAR - MAGNARI - POKI - KENNSLUBÓK -
STILUFLAUTA - GÍTARNEGLUR 00 J SNÚRUR!!!!)
I
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥