Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER2004
Helgarblað DV
Síöustu tvö árin
hefur margt breyst
í lífi Arnar Elíasar
Guðmundssonar.
Hann gaf út fyrstu
plötu sína undir
nafninu Mugison í
nokkrum eintökum
og saumaði sjálfur
umslögin á plöt-
urnar. Honum að
óvörum seldist
platan mjög vel,
hann gerði samn-
ing við erlenda út-
gáfu og endaði með
að þurfa að sauma
vel yfir 10 þúsund
eintök. Mugison
semur tónlistina í
kvikmyndinni
Næsland og var sú
plata að koma út,
en eftir þrjár vikur
kemur út önnur
breiðskífa Mugi-
son. Örn Elías ræð-
ir um óvæntan
frama sinn í tón-
listinni, samstarfið
við Friðrik Þór og
fjölskyldu sína sem
kemur mikið við
sögu í tónlist hans.
Mugison Fékk nafnið sitt á karókíbar í
Maiasíu. Gafút fyrstu plötu sfna fyrir tveimur
árum en hefur síðan getið sér gott orð fyrir
tónlist sfna. Svo gott að fyrsta piatan var gef-
in útum allan heim. Semur tónlistina í kvik-
myndinni Næsland sem sýnd er í Háskólabiói
og nýtur við það liðsinnis Mugimama - Rúnu,
kærustu sinnar, sem kemur mikið viö sögu,
rétt eins og öll fjölskylda hans.
„Ég fékk að spila á Innipúkanum
2003 og þar komu svona 20 manns
upp að mér og sögðu að ég væri frá-
bær. Ég var gersamlega óþolandi í
kjölfarið og var að gera Rúnu
kærustuna mína og Bigga vin minn
geðveik. Ég var eins og tollhundur
sem hafði óvart rifið kókaínpakkn-
ingu, hrokinn og sjálfsálitið fóru
upp úr öllu valdi," segir Örn Elías
Guðmundsson, tónlistarmaður
sem hefur verið að geta sér gott orð
undir nafninu Mugison.
„Ég kókaöi yfir mig náttúrulega
því ég trúði því sem þetta fólk var
að segja. Þetta er það sem er stór-
hættulegt við að vera tónlistarmað-
ur, maður verður að passa sig á
þessu. Jónsi f svörtum fötum hlýtur
að fá alveg sjö þúsund ímeil á dag,
ég vona bara að hann sé hjá góðum
sálfræðingi. Þetta getur ekki verið
hollt, ég er alla vega ekki maður í
þetta," segir örn en þessi dæmisaga
gefur ágætis vísbendingu um það
hvernig líf hans hefur breyst síð-
ustu tvö ár.
Fékk nafnið á karókíbar í
Malasíu
Örn Elías, eða Öddi eins og hann
er kallaður, kom óvænt inn í ís-
lenskt tónlistarlíf í lok árs 2002.
Hann hafði verið að læra hljóðupp-
tökufræði í London og dundað sér
við að gera fyrstu plötu sína með-
fram því. Platan fékk nafnið Lonely
Mountain og hlaut fádæma viðtök-
ur gagnrýnenda. í kjölfarið hefur
hann selt talsvert af plötum hér-
lendis og gert samning við erlent
útgáfufyrirtæki og þar með selt enn
fleiri plötur úti í heimi. Nú lifir
hann af því að búa til plötur og spila
á tónleikum.
Byrjum aðeins á byrjuninni. Það
eru eflaust margir sem vilja vita
hvað nafnið Mugison stendur fyrir.
„Já, það trúir mér reyndar eng-
inn þegar ég segi frá þessu en hvað
með það. Pabbi heitir Guðmundur
og er kallaður Muggi. Hann var að
vinna í Malasíu og ég heimsótti
hann tvisvar þangað í rúman mán-
uð. Við vorum duglegir að túra
karókíbarina í Malasíu og þar var
nafnið hans auðvitað borið fram
„Mugi“. Það lá því beint við að ég
væri kallaður Mugison."
Þú ert annars nýfluttur í bæinn,
er það ekki?
„Jú, ég flutti í bæinn fyrir tveim-
ur vikum síðan. Við Rúna keyptum
okkur íbúð eftir að um 80% af
frænkum og frændum sögðu að það
væri skynsamlegra að kaupa en
leigja. Ég er hlýðinn."
Fórstu ínýju lánin hjá bönkun-
um?
„Nei, ég var akkúrat búinn með
pakkann," segir örn og heldur
langa ræðu um hversu erfitt sé að
standa í stappi við kerfið í íbúða-
kaupum. „Eg gæti breyst í Jakob
Frímann og verið voðalega hnytt-
inn um það en ég held að ég sleppi
því."
Örn segir segir það gott að vera
fluttur aftur til Reykjavíkur. Hann
hefur búið síðustu tvö árin rúm á
ísafirði og var þar á undan í þrjú ár
í námi í London í upptökufræðum.
Hélt ég væri á leiðinni á sjó-
inn
„Ég fór upphaflega vestur til að
klára Lonely Mountain. Ég var úti í
London og átti eftir að klára ritgerð-
ina í skólanum en átti nákvæmlega
engan pening til að lifa þar úti
þannig að ég hringdi í pabba og
spurði hvað ég ætti að gera. Hann
bauðst til að borga flugmiðann fyr-
ir mig heim og ég skellti mér til
hans á ísafjörð. Ég náði að klára rit-
gerðina og FedEx-aði hana út. Síð-
an fékk ég prófskírteinið FedEx-að
til baka."
Nú, þú hefur ekki verið við-
staddur útskriftina með útskriftar-
hatt ogþannig?
„Nei, það voru um 15.000 manns
að útskrifast úr þessum háskóla og
athöfnin átti að taka sex tíma. Ég
heiti örn og ætlaði alls ekki að fara
að bíða þarna allan þennan tíma."
Það var í lok nóvember 2002 sem
Örn hafði klárað fýrstu plötu sína,
Lonely Mountain. Eins og sönnum
einyrkja sæmir gaf hann hana út
sjálfur, mætti til að mynda með tíu
eintök í Hljómalind og bað þá um
að selja þau og fimm eintök fóru í
12 Tóna. Svo atvikuðust málin svo
að alltaf var verið að panta fleiri og
fleiri eintök af plötunni, ágæti
hennar spurðist út og setti það Örn
í nokkurn bobba þar sem hann
handsaumaði öll eintökin sjálfur.
„Þetta gekk náttúrlega mjög vel,
ég bjóst aldrei við þessum viðtök-
um. Ég hélt að það myndu í mesta
lagi nokkrir nördar í MH fíla þetta
og ég væri bara á leiðinni aftur á
sjóinn," segir Örn hógvær.
Saumaði umslög á 10.000
plötur
Lonely Mountain var ekki bara
vel tekið hér heima því snemma árs
2003 gerði Örn útgáfusamning við
Accidental-útgáfuna í Bretlandi.
Hún er í eigu Matthew Herbert,
sem meðal annars hefur unnið með
Björk, og kallar Örn þetta „mjög lít-
ið artí fartí plötufyrirtæki".
„Ég ffla Matthew Herbert mjög
vel, sérstaklega tónlistina hans. Ég
sendi honum þakkarbréf þegar ég
var búinn með Lonely Mountain.
Sagði bara takk og var dálítið væm-
inn. Hann hringdi strax til baka og
bauð mér í mat og eftir það vorum
við í sambandi. Ég var svo alltaf að
væla í honum um að það væri svo
erfitt að fá dreifingu í Bretlandi og
einn daginn sagðist hann ekki
nenna að hlusta á þetta lengur,
sagðist bara ætla að gefa mig út.“
Er þetta góður samningur?
„Þetta er svokallaður 50/50
samningur. Ef eitthvað gerist þá
verð ég drulluríkur en þangað til er
ég á mínum eigin vegum."
Og ertu farinn að sjá einhverja
peninga?
„Nei, ekki mikið. Ég framfleyti
mér með því að spila á tónleikum
úti í löndum. Svo eru 12 Tónar dug-
legir við að styðja við bakið á mér,
þeir hafa reynst mér ótrúlega vel
síðasta hálfa árið."
Hversu víða nær þessi samning-
ur, hvar getur fólk eiginlega nálgast
plöturnar þínar?
„Þetta á að heita að dreifingin
nái um allan heim. Plöturnar eru
alla vega til í nördabúðum, til dæm-
is fæst hún kannski í svona fimm
búðum í New York og einni í Ástral-
íu. En hún fæst mjög víða í flestum
Evrópulöndunum."
Ogsalan?
„Upphaflega upplagið var 10
þúsund eintök og það er búið."
10 þúsund eintök, þú hefur þá
þurft að sauma talsvert...
„Já, ég saumaði allt upplagið.
Það byrjaði mjög vel og ég náði að
sauma 500 eintök fyrsta daginn en
svo fór þetta að ganga illa. Ég fékk
fjölskylduna til liðs við mig og ætl-
aði að klára þetta á einni helgi. Svo
var amma að farast í bakinu og afi
varð slappur, ég níddist svolítið á
fjölskyldunni."
Hvernig datt þér þetta í hug, að
sauma 10 þúsund eintök?
„Ég var sjálfur svona Lonely
Mountain. Ég samdi alla tónlistina
og spilaði inn á alla plötuna. Mig
langaði bara að klára þetta með því
að handgera hvert einasta stykki."
Fékk að taka upp í kirkjunni
á Súðavík
Mugison er höfundur tónlistar-
innar í kvikmyndinni Næsland sem