Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Page 18
18 LAUGARDAGUR 16. OKJÓBER 2004
Helgarblað
„Eg byrjaði ungur að teikna og krota en árin sem ég var í
gamla Vesturbæjarskólanum, Stýrimannaskólanum, marka
upphaf minnar teiknimyndasagnagerðar, og þar með þeirri
sköpunarvinnu og -þörf sem hefur fylgt mér síðan. Við vorum
tilraunaárgangur að því leyti að við máttum velja okkur nám
eða vinnu hvers dags að morgni. Þannig gat ég einbeitt mér
að teiknimyndasögunum heilu dagana með skipulegum
hætti ffá klukkan átta á morgnana. En um leið safnaði ég til
dæmis stærðfræðikvóta sem tók kannski þrjár vikur að vinna
f* iif' úr. Stýrimannaskólinn
;' : S var settur á stofn 1898 og
langafi minn, Bernharð-
ur Guðmundsson, útskrifaðist þaðan upp úr aldamótunum
og þess vegna þótti mér mikið til verunnar þar koma. Þá hét
hann Vesturbæjarskóli en var oft kallaður gamli Stýrimanna-
skólinn. Hann var smekkfullur í þá daga og okkur var komið
fyrir í eins konar „Impreglio-skúrum" við hliðina á húsinu
þangað til nýi Vesturbæjarskólinn gat tekið við okkur. Og
þarna fékk ég sem sagt tækifæri til að skapa af fullri alvöru og
hef ekki látið af því síðan."
ErpurÞ. Eyvmdarson tónlistarmaöur.
Dagur kynninganna
mhr** m
r4#t-
„Dagarnir fyrir útgáfudaginn
renna nú svolítið saman við hann
í minninu en ég ætla að
reyna að rifja
hann upp eft-
ir bestu sam-
visku. Ég
vaknaði
árla dags
heima í
Grindavík,
snæddi og
leit í blöðin.
Dagurinn byr-
jaði óskaplega
vel því þar blasti
við mér stór ham-
ingjuósk með plöt-
una sem ég hafði ekki
átt von á. Síðan brunaði
ég í bæinn til að setjast hjá
þeim Ingu Lind og Heimi í ís-
landi í bítið, segja þeim frá
Kalli Bjami lýsir útgáfudegi
slns fyrsta geisladisks, Kalla
Bjarna
Kalli Bjarni sendir frá sér Kalla Bjarna
„Stór dagur sem ég heflengi stefnt að“
diskinum og syngja tvö lög. Þaðan
fór ég niður á Hard Rock að hitta
blaðamann Morgun-
blaðsins, síðan hitti ég
blaðamann Frétta-
blaðsins og loks fulltrúa
Myndbanda mánaðar-
ins. Því næst lá leiðin í
Kalli Bjarni (útvarpsviðtali „Létt, FM, Bylgjan og Samfés á Rás 21 einfaldri röö'
nokkrar útvarpsstöðvar í einfaldri
röð; Létt 90,9, FM 95,7, Bylgjuna og
seinni partinn hitti ég krakkana
sem sáu um útvarp Samfés á Rás 2
þennan dag, fjórar útvarpsstöðvar
á sama deginum, kynningar eru
hörkuvinna! Að þessu öllu loknu
brunaði ég heim til Grindarvíkur,
bauð mömmu og tengdamömmu í
léttan kvöldverð og við skáluðum
fyrir þessum ánægjulega degi.
Þetta var dagur sem ég hef stefnt
að í mörg ár og hann var hinn
ágætasti í alla staði. Ég held að
minnsta kosti að þessi dagur hafi
liðið um það bil svona.“