Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2004, Blaðsíða 27
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER2004 27
llmkrukkur og
augnlitur og
Karlar jafnt sem kon-
ur böðuðu sig dag-
lega og ruðu sig olí-
um, kremum og lit-
um.
Tíu þúsund árum fyr-
ir okkar tímatal voru
karlar og konur suður í
Egyptalandi farin að
hafa áhyggjur af útliti
sínu. Fornar grafir og
veggskreytingar þar
syðra gefa glögga mynd
af fólki sem lagði ríka
áherslu snyrtivörur fyr-
ir bæði kynin, hrein-
læti og angandi
Iíkama.
Karlar og konur
mýktu húð sína með
kremum og olíum sem
blönduð voru
ilmolíum. Á augnlok-
in voru bornir Utir og
línur dregnar með svörtum
lit langt út á gagnaugað
með aðstoð lítilla pinna.
Sama aðferð var notuð á
augabrúnir. Egyptar báru
rauðan lit á varir og kinnar og lit-
uðu neglur gular eða appelsínugul-
ar með henna.
íbúar Fom -
Egyptalands
notuðu olíur og
krem til að verja
sig gegn eld-
heitri sólinni og
þurmm vindum.
Sérfræð-ingar bjuggu til ilmolíur að
hvers manns smekk úr myrm,
timjan, majóran, kamillu, lavendil,
lilju, piparmyntu, rósmarín, rósum
og olíum úr ólífum, sesamfræjum
og hnetum.
Snyrtivörurnar voru í sérstökum
krukkum og krúsum og þeim síðan
komið fyrir í snyrtikössum, ekki
buddum. Ekki þótti nema sjálfsagt
að egypskar konur hefðu þessa
kassa með sér í veislur og geymdu
undir borðum sfnum. En þótt
karlarnir væm ekki eftirbátar
kvenna f snyrtingu og andlismálun
létu þeir sér nægja að mála sig vel
fyrir veislumar og hátíðarhöldin, en
skildu snyrtikassa sína eftir heima.
DánargrímaTut-
enk-Amons Á henni
máglöggtsjáhvemig
tískan I karlasnyrtingu
\var á Egyptolonai
I u.þ.b. 1200 f.Kr.
Heimavörn Securitas felur í sér að við lánum þér fullkomið
öryggiskerfi sem vaktar heimili þitt gagnvart hættum, s.s.
innbrotum og bruna.
Við komum, ráðleggjum og setjum kerfið upp hratt og
örugglega. Eftir það nýtur þú þess öryggis að heimilið er tengt
stjórnstöð Securitas sem er staðsett á Neyðarlínunni 112.
Tryggðu þér Securitas öryggi með Heimavörn.
Eitt símtal núna - síminn er 580 7000
Innbrotakerfi • Aðgangsstýrikerfi • Öryggismyndavélar • Mönnuð gæsla • Öryggishnappur • Vöruverndarhlið • Slökkvitæki
Brunaviðvörunarkerfi • Sjálfvirk slökkvikerfi • Verðmætaflutningar • Farandgæsla • Hússtjórnarkerfi • Rýrnunareftirlit
1
hvernig ferðin
verður gleðilegri
iJMMfi
ef þú byrjar
a
puttanum
Með einum fingri tengir þú heimili þitt við stjórnstöð Securitas
- öflugustu öryggisstjórnstöð landsins - áður en þú ferð í fríið.