Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Styrkja ekki
karlmennsku
Enginn styrkur fæst frá
jafnréttis- og fjölskyldu-
nefnd Akureyrar til að rita
bók um karlmennsku og
jafnréttisuppeldi. Ingólfur
Ásgeir Jóhannesson hafði
óskað eftir 150 til 250 þús-
und króna styrk vegna bók-
arinnar sem hann er með í
smíðum. „Jafnréttis- og
fjölskyldunefnd getur ekki
orðið við erindinu. Ne&idin
fagnar hins vegar ffamtak-
inu og óskar höfundi góðs
gengis," segir í fundargerð
nefndarinnar frá í gær.
Heilsuþorp í
Hveragerði
Áform eru nú uppi
um að koma á fót 66
íbúða heilsuþorpi f
heimalandi Garðyrkju-
skólans að Reykjum í
ölfusi. Auglýst hefur ver-
ið deiliskipulag að fyrsta
áfanga fyrir orlofsíbúða-
byggð og hótelíbúðir.
Alls verður 8,13 hektara
skika skipt í ellefu reiti
sem verða hluti af sam-
eiginlegri lóð heilsu-
þorpsins. Innan hvers
reits verða keðjuhús
með 3 til 10 íbúðum og
sérnotasvæðum fyrir
hverja íbúð. Auk þess er
tekinn frá reitur undir
sameiginlegt bflastæði.
Aðkoma að svæðinu
verður um nýjan veg frá
vegi sem liggur að mörk-
um ölfusborga.
Breytingar
hjá Lands-
banka
Bankastjórn Landsbank-
ans hefur fylgt eftir stefnu
bankaráðs um aukna
áherslu á sölu- og markaðs-
starf. Nú hafa verið gerðar
breytingar á framkvæmda-
stjórn og skipulagi á
nokkrum sviðum bankans
með þetta að markmiði.
Hermann Jónasson hefur
verði ráðinn framkvæmda-
stjóri Sölu- og markaðs-
sviðs, en hann hefur áður
gegnt stöðu forstöðumanns
verðbréfa- og lífeyrisþjón-
ustu bankans. Sölu- og
markaðssvið mun annast
allt sölu- og markaðsstarf á
einstaklingsmarkaði ásamt
því að sinna þjónustumál-
um. Ingólfur Guðmunds-
son sem áður var ffam-
kvæmdastjóri Einstaklings-
og markaðssviðs verður
framkvæmdastjóri yfir nýju
sviði sem sér um sérbanka-
þjónustu og skattaráðgjöf.
Sannað þótti í Héraðsdómi Reykjaness í gær að Kjartan Ólafsson hefði misþyrmt
eiginkonu sinni. Hún sakar Kjartan um að hafa reynt að nauðga sér, tekið sig háls-
taki og lamið sig. Kjartan viðurkenndi fyrir dómi að hafa lagt hendur á eiginkonu
sína, en fær enga refsingu fyrir. Ástæðan er sú að dómarinn segir barsmiðarnar að
hluta til konunni sjálfri að kenna.
Misþypmdi eiginkonunni
en veröur ekki refsaö
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær Kjartan Ólafsson, 47 ára
verkamann, fyrir að misþyrma eiginkonu sinni. Dómurinn telur
óumdeilanlegt að Kjartan hafi gengið í skrokk á konunni en tel-
ur að ekki eigi að refsa honum fyrir það. Ástæðan er að Kjartan
taldi eiginkonu sína hafa haldið framhjá sér. Því hafi konan að
hluta til verið sjálf völd að barsmíðunum. Niðurstaða dómsins
er sú að Kjartan hlýtur skilorð sem fellur niður ef hann brýtur
ekki aftur af sér.
Kjartan er ákærður fyrir að hafa
ráðist að eiginkonu sinni, tekið hana
hálstaki og hrint henni til og frá með
þeim afleiðingum að hún hlaut
tognun í hálsvöðvum og yfirborðs-
áverka á andliti og hársverði. Þetta
átti að hafa gerst að morgni 1. októ-
ber á síðasta ári.
Þennan morgun sáu tvær konur í
Haiharflrði fýrrverandi eiginkonu
Kjartans hlaupandi á nærfötunum
einum klæða, skjálfandi af hræðslu
og grátandi. Þær hjálpuðu konunni
og komu henni til Kvennaathvarfs-
ins. Sjö dögum síðar lagði eiginkonan
íyrrverandi fram kæru á Kjartan
vegna lfkamsárásar og tilraunar til
nauðgunar.
Flúði á nærfötunum einum
klæða
Hjá lögreglunni sagði fyrrverandi
eiginkona Kjartans að hann hefði
ásakað hana um að halda framhjá
honum. Kjartan hafi lamið hana í
höfuðið og kallað ónöfnum. Þetta
hafl ekki verið í fyrsta skipti sem
hann sýndi slíka hegðun.
Þennan morgun hafi hann hins
vegar gengið lengra. Hann hafl orðið
viti sínu fjær af bræði, tekið hana
hálstaki og hert að þar til hún missú
meðvitund. Þegar hún vaknaði hafl
hann haldið áfram. Rifið hana úr
bolnum og nærbuxunum og gert til-
raun til að nauðga henni. Hún hafi
náð að flýja úr íbúðinni, hálfnakin,
og hitt tvær konur sem komu henni í
samband við Kvennaathvarfið þar
sem hún hafi dvalið síðan.
Missti stjórn á skapi sínu
Kjartan viðurkenndi fyrir dómi
að hann hefði lagt hendur á fyrrver-
andi eiginkonu sína. Hann sagðist
hafa misst stjóm á skapi sínu þegar
hún hefði tjáð honum að hún væri
að halda framhjá. í kjölfarið segir
Kjartan að hann hafi tekið konuna
hálstaki og „tuskað hana til.“
Kjartan segist einnig
hafa hætt ofbeldinu eftir
að hann náði stjórn á
skapi sínu. Hann hafi séð
konuna hlaupa út en
talið að hún hefði verið
fullklædd. Þá segir Kjart-
an að þau hjónin hafi átt
í forræðisdeilum og
með því að kæra hann
vilji hún ná peningum
af honum.
Eiginkonunni að
kenna
Guðmundur L. Jóhannesson,
dómari við Héraðsdóm Reykja-
ness, kemst að þeirri niðurstöðu að
átökin að morgni 1. október hafi
verið tilkomin vegna erfiðleika í
sambandinu. Óumdeilt
sé að til átaka hafi kom-
ið milli Kjartans og eig-
inkonu hans enda hafi
Kjartan viðurkennt það
fyrir dómnum.
Dómarinn segir einnig
að í þessari tilteknu árás
hafi Kjartan lagt hendur
á eiginkonu sína í mikilli
bræði og „að kærandi
[eiginkona Kjartans]
kunni að hafa valdið
því“.
í niðurlagi dómsins
er ákvörðun refsingar á hendur
Kjartani frestað, svo fremi hann
haldi skilorð í þrjú ár. Honum er
gert að greiða allan sakarkostnað.
simon&dv.is
Dómarinn sem dæmdi
Kjartan Guðmundur L.
Jóhannesson taldieigin-
konuna hafa átt hlut í því
að maður hennar reiddist.
Kröfu Steingríms J. um hluthafafund í Símanum hafnað
Steingrímur J. Sigfússon hefur ít-
rekað beiðni sína um hluthafafund í
Símanum með bréfi til Rannveigar
Rist, stjómarformanns fyrirtækisins.
Hún synjaði honum fyrir viku um slflc-
an fund. Steingrímur vísar til þess að
nú hljóti Skjár einn að teljast dóttur-
fyrirtæki Símans og Sfminn sé þannig
orðinn fjölmiðlafyrirtæki. „Ekki er því
lengur um að ræða aðeins minni-
hlutaeign til að tryggja betri nýtingu á
fjarskiptaneti félagsins eins og fært er
fram til réttlæúngar og rökstuðnings
kaupunum í svarbréfi þínu,“ skrifar
Hvað liggur á?
Steingrimur til Rannveigar. „Síminn er
með þessum viðbótarkaupum orðinn
að fjöliniðlafyrirtæki og hefur innan
samstæðu sinnar hefðbundinn sam-
keppnisrekstur á því sviði. Úúlokað er
að halda því fram að slikt feli ekki í sér
verulegar breyúngar á rekstri Símans,
stöðu hans sem markaðsráðandi fjar-
skiptafyrirtækis og aðstæðum í sam-
skiptum við önnur fjölmiðlafyrirtæki,"
segir Steingrímur.
Rannveig hafhaði beiðni Stein-
gríms með því að þar sem minna en
1/10 hluti hluthafa væri ekki á bakvið
hana, bæri stjóminni ekki að fylgja
„Mest liggur á að jafna laun karla og kvenna. Einnig er nauðsynlegt að útrýma mansali
þar sem konur og börn ganga kaupum og sölum með því ofbeldi sem þarfað útrýma.
Loks vil ég berjast gegn þeirri óheillaþróun sem kemur fram íþví að félagsleg umhyggja er
á undanhaldi. Við erum að komast á þrælastigið," segir Ragnhildur Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags íslands.
henni. Ríkið ræðuryfir 99% af hlutafé í
Símanum en 1200 hluthafar fara með
þau prósent sem efúr em. Ljóst er
samkvæmt þessu að þessir hluthafar
hafa engan rétt til að kalla saman hlut-
hafafund. Hún sagði kaupin í Skjá ein-
um ekki teljast úl vem-
legra breyúnga á rekstri
félagsins. Hún segir
kaupin í Skjá einum
fyllilega samræmast til-
gangi Sfrnans að „veita
hvers konar þjón-
ustu á sviði ijar-
skipta og upp-
lýsingatækni".
Steingrfmur J. Sig-
fússon SegirSímann
kominn í samkeppni i
fjölmiðlum og itrekar
kröfu um hluthafafund.
Beðið svara
spítalans
Enn hafa ekki borist svör frá
Landspítalanum varðandi ferð geð-
lækna til Stokkhólms fyrr í þessum
mánuði. Ferðin var að hluta greidd
af lyfjafyrirtækjum og óskaði DV
eftir upplýsingum um það að hve
miklu leyti og hvort makar hefðu
þegið boðsferðir. Þá var einnig
spurt, með tilvísan til upplýsinga-
laga, hvort
tilfefiið
hefði verið
að álag á
deildir
geðsviðs
hefði stór-
aukist með-
an á ferð-
inni stóð og
með hvaða
hætti það
hefði bitn-
að á sjúk-
lingum.