Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004
Menning DV
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
VEFUR kvikmyndagerðarmanna,
logs.is, hefur endurbirt grein Árna
Þórarinssonar frá sextánda þessa
mánaðar þar sem Árni, gamall og
reyndur bíófíkill, veltir fyrir sér fjör-
efnaskorti og sambandsleysi Is-
lensku kvikmyndarinnar. Éðlilega. ís-
lenska bíómyndin hefur á siðustu
misserum máttþola nokkuð andóf.
Nýlega lýsti blaðamaður á Frétta-
blaðinu þvíyfir að sá tlmi væri liðinn
að innlendar myndir fengju forgjöf.
Aðsóknartölur íslenskra mynda eru
til vitnis um að alluralmenningur
hefur ekki haft áhuga á að drífa sig I
bíó.
KVIKMYNDIR á borð við Dís,
Nicelandjafnvel Nói, ná ekki varla
lágmarksaðsókn. Stærsta mynd síð-
ustu missera sem var Stellu-ævintýri
2 dró til sín rúm 30 þúsund. Topp-
arnir handan hennar eru Hafið og
þar á undan Englarnir. Aðsókn að ís-
lenskum myndum er áhyggjuefni.
Bæði bransinn, Miðstööin og þjóðin
ætti að hafa áhyggjur afþví.
ÁRNI spurði hvers vegna Dönum
gengi svona vel og kastaði upp
stuttri lýsingu á kostum danskra
mynda síðustu árin:
þeim hversdags-
legu vanda-
málum sem
þær iýsa,
hugviti í
frásögn-
inni og
örugg-
um tök-
umá
frásagn-
arhætti.
Samkvæmt
fréttum verða
það þrjár
myndirsem bera
uppi aösókn að
dönskum kvikmynd-
um i heimaland-
inu í ár. Þær
hafa halað
inn 60% af
aðsókn síðustu vikna. Ivenjulegu ári
ná þær fjórðungshlut. Þar eins og
hér eru stóru topparnir háir. Fín
mynd eins og Arven rétt nær 20 þús-
und áhorfendum.
VANDAMÁL islenskra mynda eru
sem fyrr þunnar sögur, fáir djúsí
karakterar og margslitið sambands-
leysi við hversdagsleg vandamál
venjulegs fólks. Hluti af skýringunni
er gjáin milli höfunda og leikstjóra
sem enn eru haldnir þeirri firru að
þeir verði að
gera þrennt:
framleiða, leik-
stýra og semja handrit. Margar af
þeim sögum sem hafa ratað á skjá-
inn hefðu betur gengið gegnum
þann hreinsunareld að verða fyrst
útvarpsleikrit, fáarþeirra hefðu náð
máli í þeim miðli.
Flugur
KURTEISIR styrkjastjórar verða í
Ijósi reynslunnar að endurstilla
mælitækin, bransinn að átta sig að
vilji hann ná sambandi við áhorf-
endur þarfsögur affullorðnu fólki,
gamalmennum, börnum og ung-
tingum, en ekki bara graðnöglum á
aldrinum 18 til 30. Á örmarkaði
verða menn að gera eitt, fyrst og
fremst, vilji þeir ná mörgum áhorf-
endum: þeir verða að segja sögur
sem eiga erindi viö sem flesta.
Nýtt íslenskt leikrit um ungt fólk í tilvistarvanda, tryggð og tál, þolgæði og þrá.
Böndin voru frumsýnd á sunnudagskvöldið á Litla sviðinu.
Fyrsta verkið í hópi nýrra ís-
lenskra leikverka sem Þjóðleik-
húsið sýnir næstu misseri er
skrifað fyrir fjóra leikara, höndl-
ar um kóara og þá sem drottna, þá
sterku og hina veikfyndu, óhreinindi í
sálinni og sjálfsblekkingar í tilfinninga-
lífinu.
Það er skrifað eftir tiltölulega hefð-
bundnum leiðum, tekur h'tið tillit til
umhverfis í leikmynd og búnaði, er sagt
gerast á okkar tímum og fjallar mn fólk
í yngri kantinum, rétt undir þrítugu.
Leynipar í Hamrahlíð
Ungur leikari er vingull, hefur svo
lítið sjálfsálit að hann hleypur mest eft-
ir áliti annarra. Sambýliskona hans
reynir að bægja frá honum áhyggjum
sem stappa nærri ranghugmyndum.
Þegar gömul hjásvæfa hans úr mennta-
skóla kemur heim og vill fá hann í of-
beldisfúlla kvikmynd lætur hann til
leiðast, í bland af áhuga á henni líkam-
lega og sem vinargreiða. Þegar sam-
starfið við stúlkuna er farið að fokka
upp ferli hans, verður hann að taka sig
taki og slútta öllu sambandi við hana.
Því miður
Það verður að segjast eins og er að
mér þótti harla lítið til leikrits Kristjáns
Þórðar koma: hugmynd um meginpóla
er ekki fáránleg, konur geta líkt og karl-
ar verið ráðandi, þótt persóna á borð
við Emu (hjónaspillir, metnaðarfull,
hrifin af ofbeldi og full vantrúar á
hreina ást) geti ekki kallast annað en
klisja sniðin sem skotspónn fyrir Fem-
inistafélagið.
En grunnurinn að átökunum er svo
fjarska lítilfjörlegur, hvemig leikarinn
ungi vill þóknast öllum er svo smátt
vandamál að það getur verið hluti af
stærri mynd en í heilt leikrit með næsta
fyrirsjáanlegum fyktum er fullmikið af
því góða.
Snotur samtöl
Kristjáni er ekki alls vamað. Samtöl-
in em þokkalega byggð en afar teygð og
hverfast hring eftir hring um opinskátt
tilfinningamas, útmálun og ofljósar
kenndir sem em málaðar í miklum
vaðli. Hér er ekki verið að spara, ekkert
að fela og engu þarf að tæpa á, ekkert
að gefa í skyn. Textinn og leikstíllin
minnti á köflum mest á ameríska sápu
af lengri gerðinni.
Samúð með persónunum sem lifa
þá hættu mesta að einhver viti að þær
hafi hugsanlega gert það í þrígang í
menntó - framhjá - guð sú samúð
breytist í kvalastillandi góðsemi gagn-
vart leikumnum sem fóm með þessi
ósköp. Hugrakkt fólk og gengur að
starfi sínu af jafnaðargeði, en hvílík
sóun á kröftum.
Litla sviðið - til hver er það?
Sýningunni hefur Hilmir komið fyr-
ir í enda salarins: leikmyndin opnast
stöku sinnum inn í botn í þeim köflum
sem gerast á æfingum og í sýningu leik-
arans unga. Annars er hún flatmyndir,
dýptarlausar - pínlegt komment frá
leikmyndateiknara um dýptarleysi
verksins?
Sýningin er skreytt dægurflugum
sem passa vel inn í það yfirborðs-
kennda persónugallerí sem her er
upp dregið: en dægurflugan segir
sína sögu á þrem mínútum, hér eru
þær níutíu.
Leikstjórinn stillir leikumnum
hugsunarlaust út í kant þar sem þeir
sjást illa, lætur þá krjúpa þar sem þeir
Kom aldrei til greina að gera
þennan strák meira nojaðan,
raunverulega sækó?
DV-mynd Valli
Þjóðleikhúsiö sýnir: Böndm á
milli okkar eftir Kristján Þórð
Hrafnsson. Leikstjóri: Hilmir
Snær Guðnason. Leikmynd:
Jón Axel Björnsson. Búningar:
Margrét Sigurðardóttir. Lýsing:
Ásmundur Karlsson. Leikendur:
Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig
Arnarsdóttir, Nanna Kristin
Magnúsdóttir og Friðrik Frið-
riksson. Frumsýning 17. októ-
ber 2004 á Litla sviði.
Leikhst
sjást ekki - tvö af stærstu augnablikum
síðari hlutans sjást miðpuntar atriðis
ekki nema áhorfandi standi á fætur.
Hvað er þetta? Áhugaleysi fyrir því að
áhorfendur sjá tiltekna parta verksins,
vangá eða þekkingarleysi?
Sem tilraunasalur er Litla sviðið
ónýtt, sem opið leikrými er það ónýtt.
Að þar skuli enn reldð ekki 100 sæta
leikhús, sem er fáránleg rekstrarstærð,
er bara út í hött.
Ljósir punktar
Það á að henda Kristjáni Þórði í loft-
köstum út í stór þemu: svona útsaum-
ur er blindgata fyrir mann með mennt-
un og þjálfun. Blessaðir leikaramir
vinna sína vinnu, frekar vildi ég sjá þær
stöllur gera annað en þessar gömlu
kvenmyndir.
Rúnar Freyr vann sína rullu af mik-
illi tæknilegri fæmi og í fi'nu samræmi
en persónan var einsleit og tók lítilli
þróun. Kom aldrei til greina að gera
þennan strák meira nojaðan, raun-
verulega sækó?
Friðrik var títið og fyndið element í
sínu smágerða skopi: raunar vom bút-
amir úr leikritinu í leikritinu það sem
var mest spennandi í þessari daufú
leiksýningu.
Páll Baldvin Baldvinsson
Eldfim en óspennandi
Fyrir skömmu kom út hjá JPV-
útgáfu bókin Ellefu mínútur eftir
hinn feykivinsæla brasilíska rithöf-
und Paulo Coelho í þýðingu Guð-
bergs Bergssonar. Forsaga bókar-
innar er sú að þegar Coelho sneri
aftur á hótel sitt eftir að hafa sótt
ráðstefnu á Ítalíu beið hans hand-
rit sem innihélt ævisögu brasilísku
vændiskonunnar Soniu. Handritið
greip höfundinn það sterkum tök-
um að eftir heilmiklar rannsóknir
og heimildavinnu varð Ellefu mín-
útur til.
Rík og fræg
í fréttatilkynningum segir að
bókin hafi farið sigurför um heim-
inn og tróni nú efst á metsölulistum
um víða veröld. Því var það með
töluverðri eftirvæntingu sem sest
var niður við lesturinn enda um eft-
irtektarvert efrii að ræða.
í upphafi bókar er sagt frá upp-
vexti stúlkunnar Maríu í Brasilíu.
Eftir sára reynslu af fyrstu ástinni
bítur hún það í sig að hún muni
aldrei finna sanna ást eða að henni
muni að minnsta kosti fylgja tóm
kvöl og pína. Með þessar hug-
myndir í farteskinu fer hún til
Genfar í von um að verða
bæði rík og ffæg. Sú
frægð sem María lætur
sig dreyma um lætur
hins vegar á sér standa
en þess í stað verður hún
eftirsótt vændiskona á
„fínum" stað sem þjón-
ustar mestmegnis ríka
og fræga karlmenn.
Forríkur listamaður
María sinnir starfi sínu af alúð
og gætir sín vel á að verða ekki hrif-
in af viðskiptavinunum enda
minnug fyrstu reynslunnar sem
færði henni einungis kvalræði. Að
því er virðist áreynslulaust safiiar
hún aurum inn á bankabók enda
harðákveðin í að flytja sem fyrst aft-
ur til Brasilíu og stofha búgarð fjarri
slæmum minningum um alla þá
fjölmörgu karlmenn sem hún hefur
selt líkama sinn.
Lengi vel virðist Maríu takast
þokkalega upp við að aðskilja L£k-
ama og sál en síðan gerist það,
henni að óvörum, að inn í líf hennar
þrengir sér ofurmyndarlegur, forrík-
ur listamaður sem fellur kylliflatur
fyrir henni... og hún fyrir honum.
Hefðbundin ástar-
saga
Þannig er söguþráður
Ellefu mínútna í grófum
dráttum og skyldi engan
undra þótt margir máti
þessa stuttu endursögn
við hefðbundnar ástar-
sögur sem flestar ganga út
á hið sama: íðilfagrar
stúlkukindur sem komast
í hann krappan en bjargast þó á
endanum. Og þó höfundur nálgist
efni sitt á svolítið öðruvísi máta en
tíðkast í venjulegum ástarsögum
minna Ellefu mínútur óumdeilan-
lega á aðrar Öskubuskusögur,
t.a.m. bíómyndina frægu Pretty
Woman.
Heimspekilegar vangaveltur
Paulo Coelho kann svo sannar-
lega að skrifa flottan texta, upp-
fullan af heimspekilegum vanga-
veltum og hugleiðingum um
mannlegt eðli og þeim texta skilar
hinn frábæri þýðandi Guðbergur
Bergsson listavel til íslenskra les-
enda. En þó textinn sé flottur er
bókin í fyrsta lagi langdregin, í
öðru lagi tilgerðarleg og í þriðja
Ellefu mínútur
Paulo Coelho
Þýðandi: Guðbergur Bergsson
JPV-útgáfa 2004
Verð: 4280 kr.
Bókmenntir
lagi flöt og óspennandi. Þótt les-
anda sé sagt, bæði í gegnum sögu-
mann sem og dagbókarskrif
Maríu, að líf vændiskvenna sé öm-
urlegt er nær ógjörningur að
skynja sársaukann sem hlýtur að
skekja tilveru þeirra.
Ellefu mínútur er fagurlega rituð
bók um eldfimt efni sem nær þó lítt
að kveikja í lesandanum kannski
vegna þess að höfundi virðist fyrst
og síðast umhugað mn að afhjúpa
fygina sem oftlega umlykur kyn-
ferði og kynlíf en minna um að sýna
okkur inn í kviku þeirra sem þjást.
Kannski er til of mikils mælst því
hvernig í ósköpunum ætti mið-
aldra, hvítur karlmaður með feitt
peningaveski að ná að setja sig fylli-
lega í spor fátækrar stúlku sem auk-
inheldur er vændiskona?