Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1926, Page 24
ÖANGUR TUNGLS OGb SÓLAR A ÍSL.A.N131.
í þriðja dálki livers mánaðar, sem hefir yíirskriptina »t i h« (tungl
í hádegisstað), og i töblunni á blaðsíðu (17) er sýut, livað klukkan er
eptir íslenzkum meðaltíma, þegar tunglið og sólin eru í hádegisstað
í Reykjavík. En vilji menn vita, hvað kiukkan sje eptir islenzkum
meðaltíma, þegar tunglið eða sólin eru í liádegisstað á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður hún — 4 minútur fyrir livert lengdar-
^ stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 min. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavik. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 3. júlí er sól i hádegisstað i
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 8. (12 32 — 0 24 = 12 8). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er þvi tungl í hádegisstað i Flatey
kl. 3 8 f. m. (kl. 3 4 + 4 min. = 3 8).
Sólargangurinn í Reykjavík er til greindur í almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sjest íara niðui fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt og við sól
eða tungl í hádeKÍsstað. en auk þess hreiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aðeins eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert lialft stig,
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvik stendur
á hejlli stundu. Leiðréttingin er plús (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en mínus (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tima sólarlagsins i Rvík,
en dregin fra sólaruppkomutímanum, nema breiddarleiðréttingin sé
minus (—), þá er það öfugt.
Dæmi: Sólargangur 5. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/a stigi norðar en Rvík.
Penna dag er sólargangur í Reykjavík 17 st. 7 min. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2*/a stig norður og sólargang 17 st. er + 23
min. en fyrir 18 st. + 30 min. og fyrir 17 st. 7 mín. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 24 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavik.............sl. 8 59 su. 3 52
Breiddarleiðrétting . +24 — 24
Lengdarleiðrétting . — 24 — 24
í Raufarhöfn .... sl. 8 59 su. 3 4
Annað dæmi: Sólargangur 17. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og 1‘/* stigi norðar en Rvik. Sólargangur í Reykjavik
6 st. 16 min.
í Reykjavík.............sl. 3 20 su. 9 4
Breiddarleiðrétting . — 13 + 13
Lengdarleiðrétting . + 4________+ 4
í Flatey................sl. 3 11 su. 9 21
(22)