Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1926, Page 26
Útdráttur
úr lögura nr. 25, 27, jtíní 1921, um ©inkaleyfi handa
bdwkóla íslands til útgáíu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja
eða afhenda með öðrum hætti almanök^og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Pað er brot á einkarétti Háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn i landið til sölu eða afhendingar með öðrum liætti
önnur almanök eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér i laudi eða afliendir með öðru móti önnur almanök eða
dagatöl en þau, sem einkaréttur Háskólans nær til.
3. Gefur tit hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða
dagatöl eða kaíla úr peim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök Háskólans eða dagatöl eða kafla
úr þeim til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa með sektum frá 100—20C0
kr., ef bað er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri
refsing við að öðrum lögum. »
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt
til landsins, gefin hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr.,
og skal síðan gera þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr.
Miða skal bætur, ef þvi verður viö komið, viö samanlagt söluverð
ólöglegra seldra eða afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölu-
launum. Ella skal ákveða bætur eftir atvikum.
Hið íslenzka Pjóðvinafélag hefír með samningi keypt einkaleyfi
þetta um 5 ár (1923—1927), og nær það til allra almanaka i bókar-
formi. Verð livers almanaks er samkvæmt samningnum sett á 30
aura. Peir, sem kaupa 50 eintök eða flSiri i senn, fá i afslátt 20 af
hundraði.
Árið 1927 ber páskana upp á 17. april.
(24)