Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2004
Fréttir DV
Unglingar
ósáttirvið
líkamann
Árni Magnússon
félagsmálaráðherra
segir rannsóknir
sýna að bæði stúlk-
ur og drengir séu
ósátt við líkams-
byggingu sína.
„Stúlkur vilja vera grennri
og drengir stærri. Margar
stúlkur iðka ekki íþróttir sér
til ánægju, heldur til að
grenna sig og drengir
drekka meira áfengi og
verða oftar fyrir ofbeldi en
stúlkur," sagði ráðherrann í
ræðu á Norðurlandaþingi í
gær. „Það verður að beina
sjónum að mikilvægi kyn-
ferðis, til að markmiðinu
um aukna vellíðan og heil-
brigði verði náð."
Sendiherra
hitti Sjeik
Stefán Skjaldarson,
sendiherra í Osló, hefur
afhent hans hátign Sjeik
Jaber al-Ahmed al Jaber A1
Sabah, emír af Kúveit, trún-
aðarbréf sem sendiherra ís-
lands í Kúveit. Með þessu
er stigið stórt skref í sam-
skiptum landanna tveggja.
Kúveit er tæplega einn
fimmti af stærð íslands og
liggur að Persaflóa. Ríkið
varð heimsfrægt þegar her-
ir Saddams Hussein réðust
inn í landið árið 1990. Á
fundi Stefáns með Sjeikn-
um kynnú hann framboð
íslands til setu í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna 2009
til 2010 og reifaði hug-
myndir um frekari viðskipti
landanna í milli.
Milljarður í
grunnskóla
Byggingarnefnd Grunn-
skóla Isafjarðar gerir tillögu
að ffamkvæmdum við skól-
ann fyrir rúmar eitt þúsund
milljónir króna. Tillögur
nefndarinnar eru unnar frá
hugmyndum arkitektanna
Einars Ólafssonar og Arnar
Þórs Halldórssonar sem
unnu hugmyndasamkeppni
á árinu 2002. Arkitektamir
treystu sér hins vegar ekki
úl að vinna útfærslu á hug-
myndinni saman og hafa
gert með sér samkomulag
um að Einar ljúki verkinu.
Bæði er gert ráð fyrir nýb-
yggingum og endurnýjun
eldra húsnæðis.
Líkmennirnir þrír, Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tómas Malak-
auskas, hlutu allir þyngstu mögulegu refsingu fyrir dómi í gær. Aðeins einn
þeirra, Grétar, var viðstaddur dómsuppkvaðninguna og var hann sleginn vegna
niðurstöðunnar. Þremenningarnir ætla allir að áfrýja.
Líkmaöurinn sem talaöi
undnast hámanksnefsinnu
„Ég mun áfrýja þessu, það er ekki spurning," sagði Grétar
Sigurðarson við blaðamann nokkrum sekúndum eftir að dómur
féll í málinu. Grétar og hinir tveir sakborningarnir fengu allir
tveggja og hálfs árs dóm fyxir innflutning á rúmum tvö hundruð
grömmum af amfetamíni, fyrir að hafa ekki komið Vaidasi til
hjálpar í neyð og fyrir slæma meðferð á líki Vaidasar. Grétar var
auðsjáanlega sleginn vegna niðurstöðunnar. Kvaðst hafa verið
bjartsýnn á að fá vægari dóm þar sem hann hefði sýnt samvinnu
við lögreglu.
Grétar Sigurðarson gekk í gegnum
þvögu fjölmiðlamanna inn í lokað
herbergi í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þar réðu Grétar og verjandi hans,
Brynjar Níelsson, ráðum sínum. Að
því loknu gekk Grétar út og auðséð
var að niðurstaðan í þessu umtalað-
asta sakamáli seinni ára tók á hann.
Samvinna borgar sig ekki
„Ég er ekki sáúur og skil satt best
að segja ekki hvemig er hægt að kom-
ast að þessari niðurstöðu," sagði
Grétar í samtali við DV seinnipartinn
í gær.
Hann segist fullviss um að sú
mikla athygli sem málið fékk á sínum
ú'ma og meðan á umfjöllun um það
stóð fýrir dómi hafi haft áhrif til
þyngingar. „Það er alveg greinilegt á
þessu," sagði hann.
Grétar segir það vonbrigði að
dómunnn hafi ekki tekið tillit til þess
að hann hafi sýnt lögreglu samvinnu
og að eigin sögn gert það sem í hans
valdi stóð til að aðstoða lögreglu eftir
að hann var handtekinn.
„Hjá öllum siðmenntuðum þjóð-
um er það talið mönnum til tekna að
aðstoða lögreglu og veita samvinnu.
Ég skil ekki hvers vegna dómunnn
tekur ekki tillit til þess, eins þess að ég
hef alla tíð neitað að eiga þáú í þess-
um fflcniefnainnflutningi. Þarna er
verið að senda mönnum þau skila-
boð að það hafi lítið upp á sig að sýna
samvinnu við lögreglu, öðruvísi get
ég ekki skilið þetta," segir Grétar.
Saga Lyga-Jónasar tóm þvæla
f dómsorði telst fullsannað að þre-
menningarnir beri allir jafna ábyrgð
„Ég get bara ekki sætt
mig við þessa niður-
stöðu þó svo ég geri
mér fyllilega grein fyr-
ir því að menn þurfi
að taka afleiðingum
gjörða sinna."
á ákæruliðunum þremur. Frásögn
Jónasar Inga Ragnarssonar, sem
einn hefur neitað öllum ákærulið-
um, er ekki talin trúanleg og er sagt
um hana í dómi að hún sé svo „frál-
eit að engu tali tekur", eins og það
er orðað.
Telur dómurinn einsýnt að þre-
menningunum hafi átt að vera
ljóst að stuttu fyrir dauða gg
Vaidasar hefðu þeir átt að ;i
taka af honum ráðin og
færa hann til læknis. »
Þessu er Grétar ekki 'SBgfl
sammála.
„Ég sagði bæði í
skýrslum hjá lögreglu og
fýrir dómi að ástæðan
fýrir því að manninum var
ekki komið á sjiikra-
hús var sú að ÆM
hann staðhæfði
að ekkert
óvenjulegt r
væri á ferð, jgj
hann hefði
oft lent í
þessu
áður,"
segir
Svekktur og sár Crétar Siguröarson var fjarri þvísáttur viö niðurstööu héraösdóms Igær.
Hann sagði niðurstööuna vonbrigöi og reyntyrði að fá vægari refsingu fyrir Hæstarétti.
Grétar sem vísar því alfarið á bug að
hann hafi vitað að Vaidas væri í
lífshættu.
Erfiðir mánuðir
Grétar segir næst á dagskrá hjá
sér að takast á við málið fyrir Hæsta-
réúi. Þremenningarnir munu að öll-
um líkindum ekki hefja afplánun
refsingar súax enda ljóst á orðum
lögmanna Jónasar og Tómasar að
áfrýjað verður í málinu. Grétar segir
fjölskyldu sína hafa verið undir-
búna fyrir það versta - það hafi
gerst. Mánuðirnir frá því málið
komst í
hámæli
hafi
verið
erfiðir.
„Auðvitað hefði maður viljað
klára þetta núna, þetta er búinn að
vera erfiður tími fyrir alla sem að
þessu máli koma. Ég hafði undir-
búið fjölskylduna mína fyrir að
svona gæú farið þó svo ég hefði nú
ekki viljað trúa því sjálfur. Ég get
bara ekíd sætt mig við þessa niður-
stöðu þó svo ég geri mér fyllilega
grein fyrir því að menn þurfi að taka
afleiðingum gjörða sinna," sagði
Grétar að lokum.
helgi@dv.is
Fengu allir sama dóm Grétar, Tómas
Malakauskas og Jónas Ingi Ragnarsson
fengu allir tveggja og hálfs árs fangelsis-
dóm í héraðsdómi f gær. Dómnum þótti
sannað að aðild þeirra þriggja værijöfn.
Á sólpalli í janúar
Fjölmiðlar hafa gjörsamlega
brugðist hlutverki sínu að undan-
förnu. Velt sér upp úr alkunnu sam-
ráði olíufélaganna, tilvistarkreppu
R-listans og fýrirsjáanlegu gosi í
Vatnajökli sem engin sá nema fugl-
inn fljúgandi og Ómar Ragnarsson.
Á meðan er haldin hér á landi
loftslagsráðstefna þar sem fram
kemur að hugmyndir manna um
hlýnandi loftslag hafi verið viúaust
reiknaðar. Hitafarsbreytingarnar
sem áttu að taka þúsund ár bresta
nú á innan 300 ára. Og það eru
aðeins þrír mannsaldrar miðað við
meðalaldur landsmanna í dag.
Svarthöfða skilst að eftir þrjú
hundruð ár verði kominn hundrað
stiga hiú í Grafarvogi og því alls ekki
líft. Hitasúgið hækkar ört þannig að
eftir tuttugu ár má gera ráð fyrir að
hitastigið í janúar verði 26 gráður í
Reykjavík.
Svarhöfði lítur björtum augum til
elliáranna. Að geta þá setið á sólpall-
unum á aðventunni með pina
colada og sleikt sólina í takt við jóla-
lögin. Eytt efri árunum l£kt og á
Kanaríeyjum án þess að þurfa að
fara að heiman.
Hver sá sem fæddist um miðja
síðustu öld bjóst ekki við þessari
þróun mála um fermingu. í garran-
um í Lækjargötu í febrúar þegar litið
var til sumarsins með eftirvæntingu
þess þjakaða sem vill ekkert annað
en lausn frá næðingnum. Hvern gat
grunað þau umskipti sem nú eru
boðuð á loftslagsráðstefnunni í
Reykjavík?
Svarthöfði hefur ráðið smiði til
að stækka hjá sér sólpallinn. Færa
hann yfir alla grasflötina og koma
fyrir hengirúmum í öllum hornum.
Þar verður gott að liggja vetrardaga
langa þegar árin færast yfir og flytja
sig svo inn þegar vorar. Svarthöfði er
líka búinn að panta sér loftkælingu í
öll herbergi; tæki sem verða keyrð á
fullu fr á fardögum og fram yfir versl-
unarmannahelgi.
Afkomendurnir verða svo að
stikna smám saman eftir því sem
árin h'ða en þá verður Svarthöfði
löngu dauður.
Svarthöföi
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað dgætt," segir Þorsteinn Þorgeirsson, nýráðinn skrifstofustjóri efna-
hagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins.„Þaö leggst mjög vel ímig að takast á við ný
og spennandi verkefni. Þar mun ég meðal annars taka þátt í að undirbúa fjárlögin
og meta áhrifþeirra á efnahagslífið. Þetta er einmitt sá vettvangur sem ég vil
beitamérá."