Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2004 Síðast en ekki síst DV Óttaslegnir íþróttafréttamenn „Þetta snýst bara urn íslenska fjöl- miða í íslensku samfélagi. Flóknar er það ekki," segir Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður RMssjónvarpsins, um mótmæli Samtaka íþróttaf- réttamana vegna enskra þula í enska boltanum á Skjá einum. Samtök íþróttafréttamanna vilja hafa knatt- spymulýsingamar á íslensku: „Þetta snýst ekkert um það hvort ensku þulirnir séu betri eða verri en við. Vera má að sumir þeirra séu betri enda em þetta oft menn sem fást ekki við annað en lýsa knattspymuleikjum. Hitt er eins víst að þetta er andstætt útvarpslögum þar sem kveðm skýrt á um að allt er- Ha? lent sjónvarpsefni skuli vera þýtt á ís- lensku, með þuli eða textað," segir Adolf Ingi. „Ef þetta verðm látið við- gangast verð ég uggandi um hag okk- ar félagsmanna sem em um tuttugu talsins. Ekki svo að skilja að atvinnu- leysi sé í stéttinni heldur frekar hitt að sjónvarpsstöðvamar hafa hingað til eytt stórfé í að hafa lýsingar á ís- lensku. Ef þessu fordæmi verðm fylgt getum við eins haft golfið, hnefaleik- ana, NBA-körfuboltann og jafnvel heilu Ólympíuleikana á ensku. Með því mætti að sjáifsögðu spara stórfé en okkm h'st ekki á þá þróun," segir Adolf Ingi sem er formaðm Samtaka íþróttafréttamanna. Adolf Ingi Erlingsson Hefuráhyggj- ur af atvinnumöguleikum 20 fþróttaf- réttamanna ef Skjár einn heldur upp- teknum hætti með enska boltann. Hvað segir mamma „Ég er mjög stolt af syni mínum og það var gaman að fá annað barnabarn mitt í heiminn. Raunar tel ég mig eiga þrjú barnabörn í dag því stjúpsonur Thorbergs er ekki síður í þeim hópi en hin tvö. Sjálf er ég tónlistarkennari og pabbi Thorbergs er mjög tónelskur þannig að ég reikna fastlega með að þessi nýjasti meðlimur fjöl- skyldunnar sé efni í góðan tónlist- armann. Sjálfúr var Thorberg alveg ynd- islegur drengur, mjög glaðlegur og skemmtilegur þegar hann var að alast upp. Mér sýnist barnabarnið bara vera alveg eins og hann í útliti. Eiginlega hrein eftirmynd föðurins." Svanhvlt Hallgrímsdóttir er móðir Thorbergs Einarssonar, fyrrverandi Rokklings, sem nýlega eignaðist sitt fyrsta barn. Svanhvít er tónlistar- kennari þannig að Thorberg hefur ekki langt að sækja tónlistarhæfi- leikana. Thorberg vakti athygli sem meðlimur Rokklinganna á sínum tlma en hann hefur tekið sér hlé frá tónlistinni og vinnur sem bygginga- verkamaður auk þess að sinna skyld- um sínum sem nýbakaður faðir. Háhraði á hólum Ibúar á öllum þéttbýl- isstöðum Vestfjarða geta nú tengst með háhraðasambandi við internetið eftir að ör- bylgjunet á vegum tölvufyrirtækisins Snerpu á Isafirði var opnað á Reykhólum. Snerpumenn segja óvenju mörg erfið vandamál komið upp við uppsetninguna sem fyrir vikið hafi teiáö langan tlma. Aðþví er segir á heimasíðu Reykhólahrepps tengdust vandamálin til dæmis vegalengdum og truflunum á sam- böndum.„Fyrir kom að loftnet fuku niður og drógu með sér múrbolta úr steinsteypu," segja Reykhólamenn sem þakka „Snerpu- mönnum fyrir þolinmæðina sem hefur reyndar verið talsverð afokkar hálfu líka." Fínt hjá Þórólfi Árnasyni að ná loks áttum i olíumálinu og standa upp úr stóli borgarstjóra Erlendir starfsmenn I lang- flestum tilfellum er hegðun er- lendra starfsmanna er sækja skemmtanahald til fyrirmyndar. UtMingar vit Kárahnjúka Hálfdrættingar í drykkju og slagsmálum Davíð Örn Auðbergsson, rann- sóknarlögreglumaður á Egilsstöð- um, ritar grein um Kárahnjúka- virkjun og starfsemi lögreglunnar á svæðinu á lögregluvefinn. Davíð segir starfsmenn við Kára- hnjúka sækja nokkuð til Egilsstaða um helgar í skemmtanalífið. Sé það þá sérstaklega áberandi á laugar- dagskvöldum. Erill lögreglu á Egils- stöðum hefur nokkuð aukist um helgar samfara auknum fjölda á skemmtistöðum. Að því er Davíð segir er hegðun erlendra starfsmanna er sækja skemmtanahald í langflestum til- fellum til fyrirmyndar. Komist þeir til að mynda ekki með tærnar þar sem við íslendingar séum með hæl- ana er komi að slagsmálum og almennum drykkjulátum. Yfirleitt séu samskipti við þá góð. Mættu margir íslendingar taka sér til fyrir- myndar þá framkomu og virðingu er lögreglu sé sýnd af hálfu þessara manna. Það er þó ekki svo að lögregla verði ekki vör við ákveðna nei- kvæða þætti með tilkomu helgar- heimsókna starfsmanna af Kára- hnjúkasvæðinu. Þar skal helst nefna að ölvunarakstur virðist mun algengari meðal þeirra en okkar íslendinga. Það á þá sérstaklega við um þá er koma frá Suður-Evrópu. Það sem af er þessu ári hafa 33 ökumenn verið stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur í um- dæminu. í þeim hópi er um þriðj- ungur erlendir starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun. Þykir lögreglu þetta alltof há tala með tilliti til íbúafjölda. sjónarhóli lögreglu hafa fram- kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun gengið nokkuð vel fyrir sig. Hinn fjölþjóðlegi her manna er þar starfi setji oft skemmtilegan og alþjóðleg- an svip á lögreglustarfið. é é Strekkingur ►5 ♦* ' Hvassviðri eða stormur é é Strekkingur Allhvasst é é Strekkingur •é»é/ Ailhvasst Stormur +6 Allhvasst Veðrið +7 O/ *é*é Allhvasst eða hvasst Hh9 * * Allhvasst +8 **4*' Strekkingur Lárétt: 1 fat,4 votlendi, 7 seðlar, 8 hraði, 10 bölv, 12 úrskurð, 13 torfa. 14 ökumann, 15 dans, 16 skurn, 18 útlims,21 meðvindur, 22 dreitill, 23 innyfli. Lóðrétt: 1 viljugur, 2 dimmviðri, 3 vandræða- leg,4ávaxtamauk,5 væta, 6 starf, 9 straákp- atta. 11 harðbrjósta, 16 hnöttur, 17 rið, 19 sveifla, 20 gramur. Lausn á krossgátu •jps oz'dej>| 61 '6|s Zl '|ps 91 'uiiuuö l i '>j>|efd 6 'uq! 9 'ejá g 'igeiawjew y '6s|jepu!>| e 'ewj z 'sry 1 njajggn •jng! £z '66o| zi 'IQPI 17 'stuje g l 'p>|s 91 '|sej S L '|!>!31? L 'e>)ecj £ L 'wop j t 'u6bj 01 'ueds 8 'Jbq!w l 'IJAlju y '>)ig l :»»3J?t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.