Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV Með rjúpnafið- ur í skottinu Lögreglan á Blönduósi stöðvaði jepiþabifreið um síðustu helgi eftir ábend- ingar um að þar væru á ferðinni rjúpnaskyttur að ná sér í jólasteik. I farang- ursgeymslu jeppans fund- ust pakkningar af rjúpna- skotum, rjúpnafiður en hvorki rjúpur né skotvopn. Talið er að mennirnir hafi verið varaðir við ferðum lögreglu og náð að losa sig við ólöglegan feng sinn. Ströng viðurlög eru við veiðiþjófnaði og mega menn búast við því að missa skotvopnaleyfi sitt til frambúðar brjóti þeir bannið. Kristinn hættir Kristinn Björnsson stjórnarformaður Straums fjárfestingabanka ætlar ekki að taka þátt í störfum stjórnar Straums frá og með deginum í gær. Krist- inn var forstjóri Skeljungs á þeim tfma sem fyrirtækið og önnur olíufélög gerðust sek um ólögmætt samráð. Hann segir ástæðuna fyrir því að hann dregur sig úr stjórn Straums vera opin- bera umræðu um „meint samráð olíufélag- anna“. Varamaður tekur sæti í stjórninni en Magnús Kristins- son verður stjórnarfor- maður. Fjölskylda Kristins á 12 prós- enta hlut í Straumi. Áframhaldandi kennaraverkfall Sigurjón Þórðarson, alþingis- maður Frjálslynda flokksins. „Þetta kemur mér ekki á óvart miðað við hvernig þessi miðl- unartillaga var. Ég held að menntamálaráðherra og for- sætisráðherra vantijarðsam- band. Þessi miðlunartillaga er meingölluð og furðulegt að hún skuli hafa verið lögð fram." Hann segir / Hún segir „Mér finnst þetta skelfilegt. En alveg nauðsynlegt að bæta kjör kennara. Menntun barna okkar er undirstaða alls efviö ætlum að byggja velferðar- þjóðfélag. Þaö er ekki hægt aö koma svona fram við börnin. Að taka afþeim þennan rétt til náms. Kjör kennara verður að bæta." Samtökin Blátt áfram fullyrða í auglýsingum að börn í nær öllum fjölskyldum séu beitt kynferðislegu ofbeldi. Svava Björnsdóttir hjá samtökunum segir nauðsynlegt að taka sterkt til orða til að vekja fólk til umhugsunar. Eygló Guðmundsdóttir sál- fræðingur segir marga unga karlmenn óörugga varðandi snertingu við börnin sín. íslenskir feönr þora ekki í kaö með börnuni sínum „Við vitum að ein af hverjum fimm stúlkum og einn af hverjum tíu drengjum verða fyrir þessu," segir Svava Bjömsdóttir. Svava byggir fullyrðingar sínar um kynferðisofbeldi gegn bömum á könnun sem Hrefna Ólafsdóttir félagsfræðingur gerði. Svava og systir hennar Sigríður urðu báðar fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku. Svava og Sigríður Bjömsdætur ákváðu að nýta sína erflðu reynslu til góðs. Þær stofnuðu samtökin Blátt áfram í þeim tilgangi að forða bömum írá að lenda í því sama og þær. Um þessar mundir dreifa samtökin Blátt áfram bæklingi inn á hvert heim- ili í landinu. „Markmiðið er að opna augu fólks fyrir þessu málefhi," segir Svava verkefhastjóri. Verkefnið Blátt áffam er forvamarverkefni innan Ung- mennafélags íslands gegn kynferðis- legu ofbeldi á bömum. Ýkt fyrir málstaðinn Athygli vekur fullyrðing í auglýs- ingu samtakanna þar sem sagt er að kynferðislegt ofbeldi fyrirfinnist í nær öllum fjölskyldum. „Ástæðan fyrir þvf að við tökum svona sterkt til orða er fyrst og fremst að við viljum að fólk taki eftir þessu málefni," segir Svava sem reiknar með að bæklingurinn verði kom- „Þetta er alveg út í hött. Þetta setur alla karlmenn undir grun segir það mMvægt að fólk brýni þessi mál fyrir bömum sínum. „Eg held að svona mál þurfi að ræða oft og ítreka fyrir bömum að segja frá svona málum sem kunna að koma upp. Við eigum ekki að líða svona ofbeldi. Ég er sannfærð um að ef svona bæklingur hefði borist inn á mitt heimili á sfnum tíma hefði ég hringt í Neyðarlínuna eins og skot. Það þarf að ræða þetta við börnin oft og mörgum sinnum," segir Svava. stór. Eygló segir þetta vandamál ansi stórt í samfélaginu en ekki þannig að það fyrirfinnist í næstum öllum fjöl- skyldum. Mikilvægt sé að ræða þessi mál af hógværð. „Það má ekki ræða þetta of mikið við bömin, þau geta einfaldlega orðið hrædd og kvíðin," segir Eygló og varar við öllum öfgum í þessum málum. Umræða um þessi mál á síðustu árum hafi gert það að verkum að ungir feður em oft hræddir við hvemig þeir eigi að nálgast börn sín. „Karlmenn þora varla í bað með bömum sínum lengur. Það má alls ekki koma því inn hjá bömun- um að öll snerting frá full- orðnum sé varasöm. Við viljum ekki svoleiðis böm út í samfélagið," segir Eygló. veggja heimilisins. Hann varar við boðskap sem kennir bömum að gera alla karla tortryggilega: „Ég hef séð mál sem átti að höfða gegn föður sem kyssú bömin sín á munninn þegar hann kvaddi þau. Svo hefur líka komið upp mál þar sem kona ætlaði að kæra bamsföður sinn fyrir að strjúka rassinn á bami sínu. Það er náttúrulega mjög slæmt þegar heilbrigð snerúng er gerð grunsam- lega með þessum hætú." freyr@dv.is Jón H.B. Snorrason starfar á Sviði 5 hjá Ríkislögreglustjóra. Svið 5 berst gegn alþjóðlegum glæpasamtökum. Mótorhjólaklúbbar ógna almannaheill „Þetta var fullkomlega löglegt og beinlínis skylda okkar að vísa þess- um mönnum ffá," segir Jón H.B. Snorrason, yfirmaður hjá efnahags- brotadeild Ríkislögreglustjóra. Hann starfar á Sviði 5. Sviði sem berst meðal annars gegn alþjóðleg- um glæpasamtökum. „Það em fimm svið innan efna- hagsbrotadeildarinnar. Þetta er bara eitt af þeim," er það eina sem Jón vill segja um deildina sem í daglegu tali gengur undir nafninu S-5. Margir þekkja leyniþjónustu Breta sem heitir MI-6 en fjölmargar bíómyndir og þættir eru byggðir á þeirri starfsemi. Frægasti leyniþjón- ustumaður allra tíma, James Bond, starfaði til dæmis undir merkjum MI-6. Svo hét leyniþjónusta keisar- Beðið eftir Hog Riders Um tuttugu manns frá Rfkislögreglustjóra og annað eins frá Sýslumanninum á Keflavíkurfiugvelli stöðv- uðu Hog Riders þegar þeir komu til landsins. ans í Rússlandi deild 3 en hún var lögð niður við byltinguna. ■ Síðasta aðgerð sem S-5 á íslandi stóð fyrir var að stöðva komu mótor- hjólaklúbbsins Hog Riders úl ís- lands. Jón segir að það hafi verið nauðsynleg aðgerð. „Við byggðum aðgerðina á upp- lýsingum frá lögreglunni á Norður- löndum og í Þýskalandi. Okkur var tjáð að þessi mótorhjólaklúbbur væri viðriðinn skipulagða glæpa- starfsemi og meinuðum þeim því aðgang," segir Jón en mótorhjóla- menn hafa lýst yfir undrun sinni á því sem þeir kalla gróf mannrétt- indabrot. „Nei, það er í íslenskum lögum að gæta eigi almannaheillar og brottvísun þessara manna var í sam- ræmi við það,“ segir Jón H.B. Snorrason sem hefur í starfi sínu sem saksóknari efnahagsbrotadeild- ar Ríkislögreglustjóra stýrt rannsókn allra meiriháttar fjársvika-, peninga- þvætús-, mútuþægni- og skattsvika- mála frá árinu 1997. Þessi fyrrverandi rannsóknar- lögreglumað- ur er því starfi sínu vaxinn hjá hinu öfluga sviði efnahags- brotadeildar: S-5. simon@dv.is Jón H.B. Snorrason sak- sóknari Berstgegn alþjóð- legum glæpasamtökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.