Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2004, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2004 17 lláraímál gegn mömmu 11 ára strákur í Kína fór í mál við móður sína þegar hún hélt ekki loforð sitt um að gefa honum tölvu ef hann stæði sig vel í skólanum. Móðirin sagði syni sínum að efhannfengi yfir 94% skor í meðaleink- unn myndi hún kaupa tölvu. Hún átti víst ekki von á svo góðum árangri, en strákur- inn náði 97% skori. Hún tjáði þá syni sínum að hún hefði ekki efni á tölvunni. Málið kom upp í bænum Xingzheng í Henan-héraði og urðu lyktir málsins þær að dómarinn fékk strákinn til að sættast við móður sína og draga málið til baka. Rifinn kjóll frá Charlotte Einn kaupenda á góðgerðauppboði krafðist þess að fá endurgreitt eftir að hafa boðið í og keypt kjól sem söngkonan Charlotte Church gaf á uppboðið. Konan borgaði 100 pund fyrir kjólinn, en þegar hún heim kom sá hún að kjólinn var óþveginn, rifinn og rennilásinn bUaður. Upp- boðið var tíl styrktar krabba- meinsrannsóknum í Wales og ákváðu aðstandendur þess að endurgreiða kjólinn. Þeir eru annars hrifnir af Church og segja hana ætíð tUbúna að gefa föt sín til góðgerðarmála. Þorpsbúar steinsofa við lögreglustöð AUir íbúar þorps í Ind- landi hafa sofið fyrir utan lögreglustöð undanfarin fjögur ár til að verjast ágangi þjófa og bófa. Á hverju kvöldi fara íbúarnir í þorpinu Kaliabaab í Mad- hya Pradesh-héraði með tjöld sín að lögreglustöðinni sem liggur í nokkurra kUó- metra fjarlægð ffá þorpinu. Þar eyða þeir nóttunum með peninga sína, eigur og nautgripi. Einn þorpsbúa, Noora Singh, segir að þetta sé eina leiðin til að halda eigum þeirra og nautgripum frá þjóftim. Fyrir fjórum árum lenti þorpið í glæpa- öldu þar sem brotist var inn í hýbýli íhúanna á hverri nóttu. Þjófarnir náðust aldrei þrátt fýrir ítrekaðar kvartanir frá íbúunum. Loka þessar nefndir inni aftur Nú er kennaraverkfallið skollið á aftur og menn virðast ætla að viðhafa sömu vinnubrögðin á ný. Þetta gengur ekki. Það á að loka þessa menn inni og svipta þá frelsinu þar til þeir koma út og Óli Ómar Ólafsson Veltir fyrir sérhvort Ásmundur sé starfínu vaxinn. Leigubílstjórinn segir verða búnir að semja. Og að kenn- ararnir skyldu fagna svona ógur- lega að komast aftur í verkfall. Manni féllust hendur. Hvernig gat þetta fólk leyft sér að hrópa og kalla yfir því að þetta skyldi fara svona. Eru ekki aliir steinhissa á þessu? Ég hef áhyggjur af því að þetta menntaða fólk sé ekki fært um að kenna börnunum okkar þegar það lætur svona. Að fagna verkfalli! Ég held að það hijóti að vakna spurningar um hvort Ásmundur ríkissáttasemjari sé starfi sfnu vaxinn. Hann kemur fram með miðlunartillögu sem enginn getur samþykkt. Ég veit ekki hvort þetta er Atkins-kúrinn hjá honum. Hann ætti kannski að vera á græn- metiskúrnum eins og ég. Og hvað eru ráðherrarnir að gera? Mér sýnist á öllu eins og það sé búið að leggja forsætisráðu- neytið niður eftir að Dóri kom þangað inn. Þorgerður mennta- málaráðherra hefur ekki heldur staðið undir væntingum mínum. Nei, þetta er hið versta mál. Það verður að taka þessar samn- inganefndir fyrir og láta þær tala saman strax. Það þýðir ekkert að bíða fram á miðvikudag. Tíminn líður og ekkert gerist. Það er alveg skelfilegt, fyrir utan að vera lög- brot. Þetta er ein sorgarsaga. Börkur Birgisson, sem réöst á mann með öxi á veitingastaðnum A. Hansen í Hafn- arfirði, segist hafa verið óttasleginn og lagt til mannsins í sjálfsvörn. Fjöldi vitna mætti fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gær. Dómarinn ávítaði Börk fyrir að trufla vitnin með ögrandi framkomu á meðan þau sögðu sögu sína. wtni hræddust stiipidi augnaráfi axarmannsins skref upp á næstu hæð vitandi að hann ætti á hættu að verða stútað. Árás með bjúghamri Börkur sagði að þegar á efri hæð- ina var komið hafi hann lent í rysking- um. Karl Ingi hafi verið vopnaður öxi, eða bjúghamri, eins og dómarinn kall- aði vopnið. Sjálfur hafi hann verið vopnalaus en við öllu búinn. „Mér tókst að ná vopninu af hon- um og varði mig," sagði Börkur og lýsti aðstæðunum sem hræðilegum; hann hafi verið gersamlega viti sínu fjær af ótta og reynt að verja sig. Eftir árásina hafi hann hent öxinni í Karl og hlaupið út. Aðspurður hvort hann hafi ekki átt- að sig á alvarleika þess að berja Karl Inga með öxinni sagði Börkur: „Ég gerði mér bara grein fýrir þessu eftir á.“ Truflaði vitni í dómsal Fjöldi vitna kom fyrir dóminn í gær. Auk axarárásarinn er er Börkur ákærður fyrir sex likamsárásir. I réttin- um í gær gerði dómarinn ítrekað at- hugasemdir við hegðun Barkar í rétt- inum. Sagði hann tmfla vitni með stingandi augnaráði og hlátrasköllum. Eitt vitni þorði ekki að mæta fyrir rétt í návist ákærða og var gert hlé á réttarhöldunum til að ráða fram úr þeim vanda. Börkur var beðinn um að víkja úr salnum en því neitaði hann með orðunum: „Ef maðurinn þorir ekki að segja sannleikan meðan ég er í salnum þá er hann að ljúga.“ simon@dv.is „Ég var lamaður af ótta,“ sagði Börkur Birgisson fyrir Héraðs- dðmi Reykjaness í gær. Börkur er ákærður fyrir að hafa ráðist að manni með öxi á veitingastaðnum A Hansen í Hafnarfírði. Aðal- meðferð í máli hans hófst í gær og voru salir héraðsdóms þéttsetinn af vitnum sem biðu eftir því að segja sögu sína. Það var að kvöldi 1. september í haust sem Börkur réðst á Karl Inga Þorleifsson og hjó í hann með öxi á veitingastaðnumA. Hansen. Fyrir dómnum í gær sagðist Börk- ur hafa framið ódæðið í sjálfsvöm. Karl Ingi og fé- lagar hans „Efmaðurinn þorir ekki að segja sannleikan meðan ég er í salnum þá er hann að Ijúga." hafi ráðist á hann fyrr um kvöldið og hann óttaðist því um líf sitt. „Ég var skíthræddur. Panikaði," sagði Börkur varðandi umrætt kvöld. Börkur Birgisson Myndin var tekin við þingfestingu máisins. Enginn heigull Börkur sagðist hafa komið inn á A. Hansen í fylgd unnustu sinnar og hitt félaga Karls Inga á neðri hæðinni. Sá hafi varað hann við að fara upp. Sagt að honum yrði „stútað." Unnusta Barkar ákvað að hætta sér ekki upp á efri hæðina þar sem Karl Ingi og félagar hans biðu eftir Berki. Sjálfur afréð Börkur að mæta örlögum sínum. „Ég vildi ekki láta þá halda að ég væri huglaus," sagði Börkur um ástæðu þess að hann steig hin þungu Stund milli strioa Hlé vargertá réttarhöidunum þegar vitni neitaði að mæta efBörkur væri salnum. Börk- ur brá sér þá út og fékk sér smók. Flores-konan ekki af sérstakri mannategund? Parið Tommy og Leona fyrir rétt Drykkjubann eftir slagsmál Lögreglan í bænum Meekatharra í vestur- hluta Ástralíu setti á tímabundið drykkjubann á bæinn eftir að hóp- slagsmál brutust þar út með þátttöku um 300 manna. „Þetta vom erjur á milli fjölskyldna þar sem ýmislegt úr fortíð- inni kom upp á yfirborð- ið,“ segir talsmaður lög- reglunnar í bænum. „Aðrir fjölskyldumeðlim- ur komu síðan frá öðrum bæjum og á endanum fór allt úr böndunum." Til að róa bæjarbúa var drykkjubann sett á en það stóð ekki lengi, allir lofuðu bót og betrun og fengu þá að drekka á ný. Bara vanskapaður Homo Sapiens Ekki em allir sáttir við þá niðurstöðu vísinda- manna að leifar af áður óþekktri mannategund hafi fundist á indónesísku eyjunni Flores. Um er að ræða dverg- vaxna tegund, aðeins metra á hæð. Var ítarlega sagt frá hinni nýju tegund f Helgarblaði DV á laugar- daginn. Nú hefur Teuku Jacob, steingervingafræðingur við háskóla í Indónesíu, birt yfirlýsingu þar sem hann heldur því fram að „litla frúin frá Flores" sé af teg- undinni homo sapiens og ástæðan fyrir smæð heila hennar sé einfaldlega van- sköpun. Á myndinni sést haus- kúpa Flores-konunnar í samanburði við hauskúpu nútímamanns. Eftir sem áður virðast flestir vísindamenn þó sannfærðir um að „lkla frú- in" sé af annrri tegund en homo sapiens. Sama tegundin? Indónesískur visindamaður segir dvergvöxnu konuna frá Flores ekki aðra mannategundm, hún sé aðeins vanskapaður Homo Sapiens. Borga ekki sektfyrir samfarir á tónleikum Parið Tommy Ell- ingsen og Leona Jen- sen eiga að mæta fyrir rétti í dag þar sem þau hafa ekki borgað sekt sem þau fengu fýrir að hafa samfarir á sviðinu á tónleikum þunga- rokksveitarinnar Cumshot fyrir framan 3 þúsund áheyrendur. Samfarir þeirra voru í þágu baráttunnar fyrir vemdun regnskóga heimsins. Tónleikamir vom haldnir í Noregi í sumar og fengu þau hvort um sig 10 þúsund norskar kxónur, um 107 þús- und íslenskar, í sekt fýrir samfarirnar. Auk þess fengu meðlimir Cumshot einnig 10 þúsund króna sekt hver um sig. Þrír af fimm með- limum hljómsveitar- innar hafa ekki borg- að sektina og eiga því einnig að mæta fýrir dómara. Það fylgir sögunni að Leona mun hafa fengið góða fullnægingu á sviðinu en þessi uppákoma er ein sú umtal- aðasta í Noregi í seinni tíð. Tommy segir að þau taki þetta réttarhald ekki alvarlega. Hann neitar því ekki að hugsanlega muni þau gera eitthvað sérstakt í réttarsalnum. Það verður að sjálfsögðu einnig í þágu regnskóg- anna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.