Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1936, Blaðsíða 26
Útdráttur
úr lögum nr. 25, 27. júni 1921, um einkaleyfi handa háskóla íslands
til útgáfu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða af-
henda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl
en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eöa dagatöl
eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanðk háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim
til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa með sektum frá 100—2000 kr., ef
það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri refsing við að
öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt til landsins,
gefin hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr., og skal síðan gera
þau upptæk með dómi.
Skaöabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr, Miða skal
bætur, ef því verður við komið, við samanlagt söluverð ólöglega seldra eða
afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölulaunum. Ella skal ákveða bætur
eftir atvikum.
Hið íslenzka þjóövinafélag hefir með samningi keypt einkaleyfi þetta í ár
(1936), og nær það til allra almanaka í bókarformi. Verð hvers almanaks er
samkvæmt samningnum sett á 30 aura. Þeir, sem kaupa 50 eintök eða fleiri í
senn, fá í afslátt 20 af hundraði.
Áriö 1937 ber páskana upp á 28. mars.
(24)