Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1936, Blaðsíða 42
Riza Shah Pehlevi var svo krýndur til konungs meö
mikilh viðliöfn 24. april 1926. Kona hans er prinssessa
af Kadjarætt.
Pannig hefir líf Riza Shah aö ýmsu leyti verið
eins og æfintýri. Umkomulítill maður hefir hafizt
af sjálfum sér, leitt land sitt út úr ógöngum og hafið
sjálfan sig til vegs og valda á konung'sstól í hinu forn-
fræga ríki. En samt hefir hann átt óhægt á ýmsan
hátt í konungsstjórn sinni og margur vandinn hefir
steðjað að honum. En hann hefir haft lag á því, að velja
sér ýmsa góða ráðherra og samhenta sér. Helztur
peirra er Taimurtash hirðráðherra, en Farzin og Kara-
kuzlu utanríkisráðherra má einnig nefna til þessa, og'
loks hefir Riza Shah haldið áfram að fá stjórn sinni
til ráðuneytis ýmsa erlenda sérfræðinga.
Umbótahugur Riza Shah liefir komið fram á mörg-
um sviðum. Samgöngur hafa verið hættar stórum og
ráðizt hefir verið í miklar járnbrautalagningar. Til
þess að afla fjár til þessa, hefir vei'ið komið á ríkis-
einkasölu á te og sykri. Helztu borgirnar hafa verið
skipulagðar og götum og húsum breytt, og sveitirnar
verið styrktar til nýrra búnaðarhátta. Margir nýir
skólar hafa verið stofnaðir, lagður grundvöllur að
þjóðbókasafni, og lögð stund á eflingu bókmennta og
á málhreinsun og á fornmenjarannsóknir og á sögu
þjóðarinnar og mikið talað um það að hreyta um
stafrof. Pá hefir það verið lögboðið, að allir menn
skuli bera ættarnafn, og ýmsar ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að breyta afstöðu konunnar í þjóðfé-
laginu, en konan hefir frá fornu fari verið réttlitil.
Stefnan er yfirleitt í þá átt, að sveigja burtu frá ara-
biskum áhrifum og áhrifum múhamedstrúar, þótt hún
sé ennþá hin opinbera trú í landinu. En liinar fornu
Zaraþústra-kenningar eru lika mjög ofarlega á baugi,
því að boðskapur þeirra um gildi vinnunnar og um
trúna á lífið er í samræmi við hinn nýja umbótahug
og lífsþrótt þjóðarinnar. Sumir láta sér að vísu fátt
(38)