Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1936, Blaðsíða 37
landi sinu, hann hefir i raun og veru lagt grundvöll
að nýju ríki með nýjum landslýð, og jafnvel hinu
gamla nafni landsins hefir hann breytt, svo að pað
heitir nú ekki lengur Persia, heldur Iran. Hann hefir
einnig styrkt afstöðu ríkis síns út á við og tekizt að
losa pað undan yfirráðum Breta og Rússa. Þannig er nú
Iran eitt af þeim löndum heimsins, par sem hægt er
að sjá á einkennilegastan hátt baráttuna milli nýs
og gamals tíma og ólguna, sem af pessum umbrotum
sprettur. Pví, sem nú er að fara fram í Iran, svipar
að mörgu lej'ti til pess, sem einnig er að gerast í
Tyrklandi undir forustu Mustafa Kemal, og Riza Shah
er á sína vísu ekki óáþekkur honum og ekki síður
merkilegur í sínu landi, pó að hann sé mun minna
kunnur útifrá.
Iran hefir að vísu tekið miklum stakkaskiptum
á síðustu árum og mest undir stjórn Riza Shah, og
færzt í aulcana, en er pó ekki neitt stórveldi á borð
við pað, sem landið var á blómatímum Persaríkis í
fornöld, þegar Kyros lagði undir sig Babylon og
Kambyses vann Egvptaland, eða þegar Sassanidarnir
fóru par með völd. Hin nýja endurreisn í Iran er í
ýmsum greinum byggð á fornöldinni og á minning-
unni um forna frægð, cg púsund ára afmæli þess
manns, sem mest og bezt orkti um íranska fornöld
og íranskan hetjuskap, Firdusi, í Konungabókinni,
hefir nýlega verið haldið hátíðlegt eins og þjóðhátíð
í landinu. Bókmenntirnar eru einnig það úr lífi og
sögu landsins, sem Evrópumönnum er kunnast, og
sumt úr þeim er til á íslenzku, eins og Rubaiyat
Omar Khayam’s, og margir kannast einnig við kvæði
Hafiz og við Avicenna. í landinu hefir einnig próazt
merkileg og sérkennileg list og listiðnaður.
Þó að pessi atriði um andlegt og listrænt líf pjóð-
arinnar hafi haft ýmis konar áhrif á endurreisn henn-
ar undir forustu Riza Sliah og aðstoðarmanna lians,
hafa megin átökin verið á öðrum sviðum. Það hefir
(33) 3