Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1959, Page 24
hálft tonn að þyngd og hafði innan borðs lifandi farþega, þó ekki mann, heldur hund,
er lifði þarna í nokkra daga. Vísindamenn í Bandaríkjunum komu á loft fyrsta gervi-
hnctti sínum 1. fcbrúar 1958 og nefndu hann „Explorer“, eða „Könnuð“. Þegar
þetta er ritað (í marz 1958) virðast bæði þessi ríki hafa á prjónunum frekari tilraunir,
og er talið líklegt, að á næstunni muni gervitunglum fjölga verulega.
Svo mætti virðast, að greinargerð um árlega göngu gervitungla ætti úr þessu
heima í almanakinu við hliðina á lýsingu á göngu hins gamla mána jarðarinnar,
Hér er þó mikill hængur á. Áðurnefnd gervitungl hafa farið 12—15 umferðir um
jörðina á sólarhring, og myndi lýsing á göngu þeirra á einu ári taka mjög mikið rúm.
En auk þess er, að svo stöddu a. m. k., ekki um það að ræða, að ganga tunglanna
verði reiknuð með nægilegri nákvæmni 2—3 ár fram í tímann, eins og nauðsynlegt
er fyrir almanaksgerð. Þessu valda truflanir, sem enn verða ekki ákveðnar með
nægri nákvæmni, og eru aðallega tvenns konar: Loftviðnám, lem smám saman færir
tunglin nær jörð, unz þau falla niður, og frávik jarðar frá réttri kúlulögun með reglu-
legri efnisdreifingu. Athuganir á göngu gervitungla má hins vegar nota til að kanna
þessar truflanir, og m. a. munu þær veita vitneskju um þéttleika lofts í mikilli hæð
yfir jörð.1)
En þessar ónóglega þekktu truflanir skipta miklu minna máli, ef menn vilja
glöggva sig á hreyfingu gervitungls um stutt tímabil. Má þá miða við gervitungl,
er sé undirorpið aðdráttarafli jarðar einu saman, jðrðin talin rétt kúla með 6370
km radíus (geisla) og þéttleiki efnis í henni talinn hinn sami á öllum stöðum, sem
eru í sömu fjarlægð frá miðju.*) Fæst þá formúlan
T - 84,40 (\/ 1 + H/6370)3
þar sem T er umferðartími tunglsins, talinn í mínútum, og H meðalhæð brautar
þess yfir jörð, talin í kílómctrum.
H T V Hér eru sett í tðflu nokkur gildi á H og
T, sem saman eiga eftir formúlunni. Sést þar,
km klt. mín. km/sek. að sé umferðartíminn 1 sólarhringur, er meðal-
0 1 24,4 7,90 hæðin 35850 km, eða um 5,6 sinnum jarðgeisl-
100 1 26,4 7,83 inn. í neðstu línu töflunnar er H meðalfjar-
200 1 28,4 7,78 lægð jarðtunglsins frá yfirborði jarðar. (Að
400 1 32,5 7,67 tunglmánuður, þ. e. mcðaltíminn milli tveggja
600 1 36,6 7,56 tunglkveikinga, er lengri en umferöartíminn í
800 1 40,8 7,45 töflunni eða um 29,5 sólarhringar, stafar af
1 000 1 45,0 7,35 göngu jarðar kringum sól). Auk H og T er í
1 500 1 55,8 7,11 töflunni meðalhraði hnattarins á braut bans,
2 000 2 07,1 6,90 táknaður með V. Brautirnar eru almennt spor-
3 000 2 30,6 6,52 öskjulagaðar, en gildin á V miðast við það, að
5 000 3 21,3 5,92 þær víki lítið frá hringlögun. Hraðinn er því
10 000 5 47,7 4,93 mciri, sem brautin er nær jörð. Á braut jarð-
35 850 24 00,0 3,07 tunglsins er hann um 1 kílómetri á sekúndu,
376 500 27,3 dagar 1,02 en um 8 sinnum meiri á innstu brautum.
Hlutur (gervitungl), sem hreyfist í þyngdarsviði jarðar, hefur í sér orku, sem
er summa af hreyfiorku hans og staðorku, og leiðir þá fyrri af hraða hans, en þá
2) Þannig sýndi ganga Sputniks, að hann mætti loftviðnámi, og þó kom það
enn meira fram á eldflaugarhylkinu, sem af þeim sökum lækkaði á tæpum 2 mánuðum
niður ( svo þétt loftlög. að það annaðhvort féll niður eða cyddist af núningshita.
Gervitunglið sjálft eyddist eftir um 3 mánuði.
3) Er bér átt við „tungl“, sem fara umferðir kringum jörð, og verður ekki rætt
um opnar brautir, slíkar aö tunglið hverfur út í geiminn, en samkvæmt þyngdar-
lögmáli Newtons gætu átt sér stað brautir af því tagi (,,parabóla“, ,,byperbóla“).
(22)