Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1975, Blaðsíða 59
Bræðsluvarmi vatns = 3,33 • 105 J/kg = um 80 kaloríur/g.
Suðuvarmi vatns = 2,26 • 106 J/kg = um 540 kaloríur/g.
Eðlisvarmi lofts við 20°C = 1006 (J/kg)/°C = um 0,24 (kalor./g)/°C.
Afl.
1 vatt (W) = það afl sem skilar vinnunni 1 júl á hverri sek. W = J/s.
1 kílógramm(kraft)-metri á sekúndu (kgm/s) = 9,806 65] W.
1 hestafl (metrakerfishestafl) = 75 kgm/s = 735,5 W.
1 hestafl (Br. og U.S.) = 745,7 W.
1 hestafl (rafvélahestafl, Br. og U.S.) = 746 W.
Rafstraumur.
1 amper (A) = sá straumur sem þyrfti að vera í óendanlega löngum,
örmjóum beinum vír, til þess að hann verkaði á hvern lengdar-
metra af öðrum straumi jafnmiklum í sams konar vír samsíða
hinum í 1 metra fjarlægð í tómu rúmi með kraftinum 2 • 10'7
njúton, þegar báðir straumarnir eru stöðugir.
Rafspenna.
1 volt (V) = spennumunurinn milli tveggja staða í leiðara sem 1
ampers jafnstraumur fer um, þegar orkutapið milli staðanna
er 1 vatt. V = W/A.
Rafviðnám.
1 óm (ohm, íí) = viðnámið milli tveggja staða í leiðara ef spennu-
munurinn 1 volt milli staðanna skapar strauminn 1 amper þar,
þegar svo háttar til, að engin íspenna myndast í leiðaranum
sjálfum. Q = V/A = W/A2.
Viðnám í 1 m af koparvír, 1 mm2 í þverskurð, við 0°C = 0,016 fi.
Rafhleðsla.
1 kúlomb (coulomb, C) = rafhleðslan sem straumurinn 1 amper
flytur framhjá hverjum stað í leiðara á hverri sek. C = A ■ s.
1 amper-stund (Ah) = 3600 kúlomb.
1 rafeindarhleðsla = 1,60 • 10'19 kúlomb.
Rafrýmd.
1 farad (F) = rýmd þéttis sem þarf hleðsluna 1 kúlomb (á hvort
skaut) til að spennumunurinn milli skautanna verði 1 volt.
F = C • V.
Spanstuðull.
1 henry (H) = spanstuðull lokaðrar rafrásar sem spanar upp íspenn-
una 1 volt ef straumnum í rásinni er breytt jafnt og þétt um
1 amper á hverri sekúndu. H = V • s/A.
Segulstyrkur.
1 tesla (T) = segulstyrkurinn homrétt á beinan vír sem straumurinn
1 amper fer um, þegar krafturinn frá segulsviðinu er alls staðar
jafn og nemur 1 njúton á hvem lengdarmetra vírsins.
T = N/(A • m).
(57)