Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1977, Síða 72
Reikistjörnurnar (frh.)
Lengd dagsins í jarðneskum dögum: Merkúríus 176 (meðaltal)-
Venus 117. Jörðin 1,00. Mars 1,03. Júpíter 0,41 (við miðbaug)-
Satúmus 0,43 (við miðbaug). Úranus 0,45. Neptúnus 0,66. Plútó 6,4.
Fjöldi tungla: Merkúríus 0. Venus 0. Jörðin 1. Mars 2. Júpíter 14.
Satúmus 10. Úranus 5. Neptúnus 2. Plútó 0.
Vetrarbrautarkerfið.
Breidd: 100 þúsund ljósár (1 ljósár = 9,5 milljón milljón km).
Fjarlægð sólar frá miðju vetrarbrautarinnar: 30 þúsund Ijósár.
Brautarhraði sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 250 km/s.
Umferðartími sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 200 milljón ár.
Meðalfjarlægð milli stjama í vetrarbrautinni: 5 ljósár.
Fjöldi stjama í vetrarbrautinni: hundrað þúsund milljónir.
Alheimurinn.
Meðalfjarlægð milli vetrarbrauta: 5 milljón Ijósár.
Útþensla alheimsins: 17 km/s fyrir hver milljón ljósár.
Fjarlægðin til endimarka hins sýnilega heims: 15 þús. milljón ljósár.
Fjöldi vetrarbrauta í hinum sýnilega heimi: hundrað þúsund
milljónir.
Aldur alheimsins: 15 þúsund milljón ár.
BIRTUFLOKKUN STJARNA
Þeim fastastjörnum sem sýnilegar eru berum augum var að fornu
skipt í sex flokka eftir birtu. Björtustu stjömurnar töldust í 1. flokki
en þær daufustu í 6. flokki. í nútíma stjömufræði er þessi hugmynd
lögð til grundvallar en birtustigin skilgreind með nákvæmni eftir
mældum Ijósstyrk. 1. stigs stjama er sem næst 2,5 sinnum bjartari
en 2. stigs stjarna, sem er aftur 2,5 sinnum bjartari en 3. stigs stjarna,
o.s.frv. Til að tákna miilistig eru notaðar brotatölur, t.d. 1,5 eða
2,7. Samræmis vegna hefur orðið að gefa nokkrum björtustu stjöm-
unum stigatöiur sem eru lægri en 1, jafnvel lægri en 0 (mínusstig)-
FTærri stigatölur en 6 eru hins vegar notaðar um stjörnur sem eru
svo daufar að þær sjást aðeins í sjónauka.
Fjöldi fastastjama í mismunandi flokkum er u.þ.b. þessi:
Birtustig: —1 0123456
Fjöldi stjarna: 2 7 13 69 190 600 1800 5400
Tilgreint birtustig miðast ávallt við að stjarnan sé beint yfif
athuganda. Sé hún lægra á lofti, devfist ljósið vegna þess að það
þarf að fara lengri leið gegnum gufuhvolf jarðar. Deyfingin er all-
breytileg en nemur á að giska 0,1 birtustigi þegar stjaman er í 45
hæð, 1 stigi við 10° hæð, 2 stigum við 4° hæð, 3 stigum við 2° hæð,
4 stigum við 1° hæð og 6 stigum við sjónbaug.
(70)