Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1977, Page 87
norðanlands. Alls var kartöfluuppskeran 63 049 tunnur
(árið áður 134 182). Gulrófnauppskeran var 2871 tunna
(6431). Tómataframleiðslan var 339 lestir (300), gúrku-
framleiöslan 317 lestir (270), hvítkálsframleiðslan 149 lest-
(r (190), gulrótauppskeran 70 lestir (85), blómkálsfram-
leiðslan 29 000 stykki (71 000). — Mikið var unnið að
landgræðslu og skógrækt. 35 kílómetra löng landgræðslu-
Sirðing var gerð við Sandkluftavatn við Uxahryggja-
Veg. Mikið var unnið við landgræðslu á Biskupstungna-
afrétti, á Þorlákshafnarsvæðinu og á Hólmsheiði við
ffeykjavík. Haldið var áfram að dreifa áburði og gras-
fræi úr flugvélum á uppblásturssvæði. Mikið var unnið
að skógrækt víða um land, og hafinn var undirbúningur
að byggingu nýrrar skógræktarstöðvar á Mógilsá. Berja-
sPretta var víða á landinu mjög rýr, en þó góð sums stað-
ar norðan- og norðaustanlands. Færri landbúnaðarvélar
v°ru fluttar inn en árið áður, t.d. 460 dráttarvélar (679)
°g 384 sláttuvélar (565), einnig færri snúningsvélar og
múgavélar, en svipuð tala af heyhleðsluvögnum og hey-
bindivélum.
Slátrað var 959 941 fjár (907 161). Af því voru 871 059
úilkar (827 190) og 88 882 fullorðið fé (79 971). Meðal-
fallþungi dilka var 14,64 kg (14,30). Alls var kindakjöts-
framleiðsla 14 670 lestir (13 571). Er þetta ein mesta sauð-
fjárslátrun á íslandi. Framleiðsla alifugla- og svína-
kjöts fór vaxandi. Unnið var áfram að skipulegri endur-
byggingu sláturhúsakerfisins í landinu. Mjólkurfram-
ieiðsla var 3,8% minni en 1974. Talsvert bar á garna-
Ve*ki, bæði í sauðfé og nautgripum. Enn var unnið að því
a^ koma upp í Hrísey sóttvarnastöð vegna innflutnings
boldanauta, og var því verki langt komið. Mörg hesta-
mannamót voru haldin um sumarið. Evrópumót íslenskra
besta var haldið í Austurríki um haustið.
Búnaðarþing var haldið í Reykjavík í febrúar. Aðal-
undur Stéttarsambands bænda var haldinn á Laugar-
Vatni í ágústlok. Var þar ákveðið, að konur bænda skyldu
afa kosningarétt og kjörgengi innan sambandsins. 60
(85)