Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1981, Blaðsíða 142
vélbátnum Sif frá Hvammstanga stýrimanni bátsins, sem
fallið hafði útbyrðis. 1. febrúar unnu nokkrir menn frækilegt
afrek, er þeir björguðu tveimur smátelpum úr bíl, sem farið
hafði í sjóinn við Kópavogsbrú. Gekk þar einkum fram
Jóhann S. Marteinsson lögregluþjónn í Kópavogi. Um
sumarið bjargaði fimm ára drengur, Ottó K. Ottósson,
þriggja ára íslenzkum dreng, sem fallið hafði í djúpa sund-
laug á sumardvalarstað í Grikklandi. Var hann heiðraður
fyrir þetta af Slysavarnafélagi Islands. í sambandi við slysið á
Mosfellsheiði 18. desember vann Skúli Karlsson í hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík frækilegt afrek, er hann með miklu
snarræði slökkti á höfuðrofa þyrlunnar og hindraði með því,
að eldur breiddist út í henni. Hlaut hann fyrir þetta æðsta
heiðursmerki skátahreyfingarinnar.
Stjómmál o.fl.
Stjórn Ólafs Jóhannessonar sat að völdum fram í október.
8. október ákvað flokksstjóm Alþýðuflokksins, að flokk-
urinn skyldi hætta þátttöku í ríkisstjórninni, og 12. október
baðst Ólafur Jóhannesson lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
15. október var mynduð minnihlutastjórn Alþýðuflokksins
með hlutleysi Sjálfstæðisflokksins. Benedikt Gröndal var
forsætis- og utanríkisráðherra, Bragi Sigurjónsson land-
búnaðar-, iðnaðar- og orkumálaráðherra, Kjartan Jóhanns-
son sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, Magnús Magnússon
félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, ennfremur
samgönguráðherra, Sighvatur Björgvinsson fjármálaráð-
herra og Vilmundur Gylfason mennta-, dóms- og kirkju-
málaráðherra. 16. október var Alþingi rofið og efnt til kosn-
inga 2. og 3. desember. Prófkjör innan flokkanna fóru fram í
mörgum kjördæmum. Talsvert var um það, einkum í kaup-
stöðum, að frambjóðendur gengju á vinnustaði ogstundum á
einkaheimili til að kynna kjósendum viðhorf sín. I kosn-
ingunum í desember fékk Alþýðubandalagið 24.390 atkvæði
og 11 þingmenn kjörna (1978: 27,962 atkvæði og 14 þing-
menn), Alþýðuflokkurinn 21.578 atkvæði og 10 þingmenn
(140)