Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Page 6
6 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005
Fréttir EW
Þjófar iðrast á
Sauðárkróki
Helgina 8.
og 9. janúar
var brotist inn
í um 20 bif-
reiðar á Sauð-
árkróki, hlutir í
þeim teknir ófrjálsri hendi
og sumir bílanna skemmdir
lítilsháttar. Lögreglan rann-
sakaði málið og reyndust
hinir seku vera þrír ungir
Sauðkrækingar. Eitthvað
hefur samviskan nagað
drengina því á fimmtu-
dagskvöldið fóru þeir
ásamt foreldrum sínum og
báðu hlutaðeigandi afsök-
unar á framferðinu. Fólk
kunni vel að meta heim-
sóknirnar og sumir föðm-
uðu jafnvel piltana að sér
og óskuðu þeim hins besta
í framtíðinni. Frá þessu
segir á vefsíðunni skaga-
Qordur.com.
Jarðskjálftar
á Reykjanes-
hrygg
Jarðskjálftahrina varð á
laugardaginn í hafinu við
Eldey um 5 til 10 kílómetra
suðvestur af Reykjanesi.
Hrinan hófst rétt fyrir
klukkan 9 um morguninn
og var stærsti skjálftinn 3,7
á richter og sá næsti 3,3
stig. Eftir hádegi fór að
draga úr skjálftavirkninni
en þá höfðu um 20 skjálftar
mælst. í fyrrinótt mældist
skjálfti upp á 2,5 stig á
svæðinu og annar í gær-
morgun upp á 2,4 á Richter.
Kosningar í
írak 30. janúar?
Haukur Logi Karlsson,
formaðurSUF.
„Það munu eflaust fara fram kosn-
ingari einhverri mynd. Hvortþær
eiga eftirað endurspegla vilja allr-
arþjóðarinnar er hins vegar erfitt
að segja til um og veltur reyndar á
þdtttökunni. Það er Ijóst að ekki
ætla allir hópar í landinu sér að
taka þátt i kosningunum en mað-
ur veröur i raun að biða og sjá
hvað gerist i framhaldi afkosning-
unum, um það snýst málið."
Hann segir / Hún segir
„Ég veit ekki, en ég vona þaö. Ann-
ars er innrásin og þessi blessaða
tiltekt tilgangslaus. Ég heflitla trú
á þessum umbótum I þeirri mynd
sem nú er, þvi miður. Auðvitað
væri það best efþetta gengi allt i
þessum kosningum en ástandið er
eldfimt og bardagar enn i fullum
gangi þó reyntsé að telja okkur
trú um annað."
Brynja Magnúsdóttir, varafor-
maður Ungra jafnaðarmanna.
Þrír þrettán ára piltar úr Hveragerði gerðu vel þegar þeir björguðu 11 ára vini
sínum úr snjóflóði við fjallið Hamar í síðustu viku. Einn bjargvættanna, Hugi
Kristinsson, segist hafa verið skíthræddur þegar hann og félagar hans, Arnar Már
og Ágúst Kaj Björnsson, grófu vin sinn úr metersdjúpu flóðinu.
Þrettán árn hetjur í Hvern-
jjerði björguðu vini sínum
ur snjuflóði
Sleðaferð fjögurra unglingspilta í fjallið Hamar við Hveragerði
tdk heldur óvænta stefnu síðastliðinn miðvikudag þegar snjó-
hengja gaf sig undan 11 ára félaga þeirra og hleypti í kjölfarið af
stað litlu snjóflóði. Pilturinn þaut niður hlíðina í miðju flóðinu
meðan vinir hans horfðu skelfingu lostnir á. Hann grófst undir
flóðinu en húfa sem hann hafði haft á höfðinu vísaði vinum
hans á staðinn.
„Þetta var alveg slatta flóð, tók
alveg hálfan Hamarinn," segir
Hugi Kristinsson, einn fjórmenn-
inganna í samtali við DV í gær.
Hugi sem býr í Hveragerði hafði þá
jafnað sig eftir raunina enda harð-
ur jaxl eins og hetjudáð hans og
félaga hans ber glöggt vitni um.
Grófu hann upp þrír
„Þetta var þannig að ég og
nokkrir vinir mínir vorum uppá
Hamrinum sem er fjall fyrir ofan
Hveragerði. Frændi minn labbaði
óvart á hengju og hún hrundi af
stað og setti af stað smá snjóflóð,"
sagði Hugi um atburðinn í fjallinu
síðasta miðvikudag.
Hugi fylgdist með vini sínum
berast með flöðinu nokkurn spöl
niður hlíðina ásamt tveimur jafn-
öldrum sínum. Vinurinn vill ekki
að nafns hans sé getið.
„Ég og Arnar Már stukkum nið-
ur í snjóflóðið þegar við sáum hvað
var að gerast," segir Hugi en hann
og Arnar sáu ekki hvað varð af vin-
inum í flóðinu. Við fórum óvart
framhjá en sem betur fer var Ágúst
vinur okkar enn uppi og gat bent
okkur á húfuna hans og hljóp strax
og byrjaði að grafa. Við hjálpuðum
honum svo. Hann var alveg á met-
ersdýpi," segir Hugi sem kveðst
hafa orðið nokkuð skelkaður líkt
og þremenningarnir allir.
„Við vorum náttúrulega skít-
hræddir. Ég var með tárin í augun-
um þegar við vorum að grafa hann
upp," segir Hugi.
„Við höfum oft verið þarna áður
að renna okkur eins og fullt af öðr-
um krökkum og ætluðum nú bara
að gera það þegar þetta gerðist,
sagði Hugi við DV í gær. Faðir
Huga er líka ánægður með
strákinn sinn og vini hans.
Harðir jaxlar
„Þeir voru auðvitað
nokkuð skelkaðir, greyin,
enda ekki nema von," seg-
ir Kristinn Harðarson,
faðir Huga um björgun-
arafrek sonarins og fé-
laga hans. „Strákurinn
var að mér skilst nokk-
uð blautur eftir volkið
en bar sig þó vel. En
þetta eru ungir menn
og harðir svo þeir virð-
ast hafa jafnað sig
fljótt," bætir Kristinn
við, stoltur af strákun-
um.
Drengnum sem
lenti í flóðinu virðist
ekki hafa orðið meint
af spýjunni sem gróf
hann allan á meters-
dýpi en þegar DV
ræddi við félaga hans í
gær var hann fjarri
góðu gamni að keppa í
fótbolta, en hann
stundar boltann stíft
með sínum mönnum í
Hamri í Hveragerði - félagi
sem skírt er í höfuðið á fjall-
inu sem félagarnir leika sér
svo oft l'.
helgi@dv.is
Við vorum nátt-
úrulega skít-
hræddir. Ég var
með tárin í aug-
unum þegar við
vorum að
grafa
hann
upp.
Þrettán ára hetjur „Pet/o varalveg slattc
flód, tók alveg hálfan Hamarinn, * segir
Hugi Kristinsson um upphafævintýris hans
og þnggja vina hans isiðustu viku. Félagar
hans og samvetkamenn i björgun vinar
þeirra, Arnar Már og Ágúst, voru uppteknir
i bio þegar Ijósmyndara bar að.
Ekkert stoppar brottflutta Raufarhafnarbúa
Rútur frá Akureyri á þorrablótið
„Fólki frá svona stað þykir tveir
og hálfur tími í rútu ekki neitt miðað
við alla skemmtunina sem í vænd-
um er,“ segir Guðný Hrönn Karls-
dóttir, sveitastjóri á Raufarhöfn.
Hreppurinn hefur auglýst sætaferðir
frá Akureyri á þorrablótið sem hald-
ið verður 4. febrúar.
„Þetta er bara hluti af stemning-
unni. Þeir sem fljúga frá Reykjavík
eiga oft erfitt með að redda sér fari
hingað en nú er engin afsökun. Rút-
an fer svo ekki fyrr en á sunnudag
svo þeir sem komu keyrandi til Ak-
ureyrar ættu þá að vera komnir í
ökufært ástand," segir GuðnýHrönn
og bætir við að það sé nægt
gistipláss fyrir alla í bænum.
Samkvæmt Guðný Hrönn er
mikilvægt að ná góðu þorrablóti
enda er mikil vinna lögð í þetta. Hún
hefur þó engar áhyggjur af mæting-
unni en segir að því fleira fólk, því
skemmtilegra.
„Hér komum við sjálf með trogin
og sjáum sjálf um skemmtiatriðin
þar sem við gerum grín
að öðrum og okkur sjálf-
um. Þetta hefur alltaf
tekist voðalega vel og er
svakalega skemmtilegt.
Eitt sem einkennir
þorrablótið er að þá er
alltaf buliandi loðna og
Guðný Hrönn Karisdóttir
sveitarstjóri „Eitt sem einkennir
þorrablótið er að þá er alltafbull-
andi loðna og það er alltafjafn
gaman að koma á ballið og finna
loðnulyktina leggja yfir bæinn."
það er alltaf
jafn gaman
að koma á
ballið og
finna
loðnu-
lyktina
leggja yfir
bæinn."
Reiðhöll á
Egilsstaði?
Guðgeir Ragnarsson, bæjar-
fulltrúi í hinu nýsameinaða
Fljótsdalshéraði, áður Austur-
Héraði, bar í vikunni upp tillögu á
fundi bæjarráðs sveitarfélagsins
þar sem hann fór þess á leit að
skipaður yrði starfshópur til að
kanna rekstur og fjármögnun á
reiðhöll í sveitarfélaginu. Er það
hugmynd Guðgeirs að reiðhöllin
myndi þjóna sem reiðhöll á fjórð-
ungsvísu og þar með nýtast öllum
Austfirðingum. Tillagan um skip-
an hópsins var samþykkt einróma
á fundinum.