Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.2007, Side 66
GRÍSKA STAFRÓFIÐ
A a alfa 1 L jóla P P ró
B p beta K K, K kappa 2 o,5 sigma
r Y gamma A X lambda T T tá
A 6 delta M mí Y V ypsilon
E E, e epsilon N V ní <Þ <t>,(p fí
Z % zeta 77 1 ksí X X kí
H 'i eta o o ómíkron lj) psí
0 o,ð þeta n Jt, G3 Pi Q co ómega
REIKISTJÖRNLIRNAR
A eftir hverjum mánuði í dagatalinu (neðst á bls. 7, 11 o.s.frv.) eru
töflur sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reiki-
stjörnurnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3.
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 2007. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12 að
sönnum sóltíma hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum, sem báðir eru merktir með
„12“ og eru í rauninni sama línan). A myndinni kemur fram hvaða af-
stöðu reikistjörnurnar hafa hver til annarrar á himinhvolfinu og hvar
þær eru miðað við sól. Þegar stjörnur eru vinstra megin á myndinni eru
þær á morgunhimni, en þegar þær eru hægra megin eru þær á kvöld-
himni. Ef reikistjarna er á svæði sem merkt er „dimmt“ sést hún á
dimmum himni. Sé hún á svæðinu sem merkt er „bjart“ er hún annað-
hvort mjög nærri sól eða kemur ekki upp í Reykjavík meðan dimmt er.
Ef markalína svæðanna er brotin lína merkir það að einhver reiki-
stjarnanna sést betur eða verr en ætla mætti af afstöðu hennar til lín-
unnar. Svigar um stjörnutákn merkja að stjarnan komi ekki upp í
Reykjavík.
Ef við viljum vita hvaða reikistjörnur muni sjást í nóvember, til
dæmis, lítum vþð á þann reit sem liggur þvert yfir kortið og afmarkast
af stöfunum NOV til vinstri og hægri. Þá sjáum við að lengst til vinstri,
þ.e. morgunmegin, er Merkúríus. Hann kemst ekki langt frá sól, en er
þó á því svæði sem telst dimmt. Næst kemur Venus, sem er mun lengra
frá sól, og svo Satúrnus. Allt eru þetta morgunstjörnur. Nær miðri
mynd kemur Mars sem er heldur til morgunhliðar, en er reyndar á lofti
bæði kvölds og morgna. Lengst til hægri er Júpíter sem er því kvöld-
stjarna, en hann er á svæði sem merkt er „bjart“ og sést því ekki. Við
hægri jaðar myndarinnar erum við aftur komin að sól.
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá íslandi á árinu
2007. Stjörnurnar eru: Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter og Satúrnus. Á
eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hinar daufari reiki-
stjörnur sem eru lengra frá sól: Uranus, Neptúnus og Plútó.
(64)