Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.2007, Page 72
MYRKVASTJARNAN ALGOL
Meðfylgjandi tafla sýnir hvenær stjarnan Algol (|3 Persei) myrkvast á
árinu 2007. Birtubreytingin nemur um það bil einu birtustigi (frá
+2,1 til +3,4) og er stjarnan um 5 klst. að myrkvast og aðrar 5 klst.
að lýsast aftur. Tímarnir í töflunni eiga við hámyrkvann.
Dags. Kl. Dags. Kl. Dags. Kl. Dags. Kl.
JAN 2. 11 38 MAR 3. 16 53 SEP 3. 05 01 NÓV 2. 10 04
— 5. 08 27 — 6. 13 42 — 6. 01 50 — 5. 06 52
— 8. 05 16 — 9. 10 32 — 8. 22 38 — 8. 03 41
— 11. 02 06 — 12. 07 21 — 11. 19 27 — 11. 00 30
— 13. 22 55 — 15. 04 10 — 14. 16 16 — 13. 21 19
— 16. 19 44 — 18. 01 00 — 17. 13 04 — 16. 18 08
— 19. 16 33 — 20. 21 49 — 20. 09 53 — 19. 14 57
— 22. 13 23 — 23. 18 38 — 23. 06 41 — 22. 11 46
— 25. 10 12 — 26. 15 27 — 26. 03 30 — 25. 08 35
— 28. 07 01 — 29. 12 16 — 29. 00 19 — 28. 05 24
— 31. 03 51 APR 1. 09 06 OKT 1. 21 07 DES 1. 02 13
FEB 3. 00 40 — 4. 05 55 — 4. 17 56 — 3. 23 02
— 5. 21 29 — 7. 02 44 — 7. 14 45 — 6. 19 51
— 8. 18 18 — 9. 23 33 — 10. 11 33 — 9. 16 40
— 11. 15 08 — 12. 20 22 — 13. 08 22 — 12. 13 29
— 14. 11 57 — 15. 17 12 — 16. 05 11 — 15. 10 18
— 17. 08 46 — 18. 14 01 — 19. 02 00 — 18. 07 07
— 20. 05 36 — 21. 22 48 — 21. 03 57
— 23. 02 25 ÁGÚ 25. 14 35 — 24. 19 37 — 24. 00 46
— 25. 23 14 — 28. 11 24 — 27. 16 26 — 26. 21 35
— 28. 20 04 — 31. 08 13 — 30. 13 15 — 29. 18 24
STJÖRNUKORT
A stjörnukortum er staða hverrar stjörnu sýnd í stjörnubreidd, sem
reiknast í gráðum frá miðbaug himins til norðurs (+) eða suðurs (—),
og stjörnulengd, sem venjulega er talin í stundum og mínútum rangsæl-
is frá 0' upp í 24‘ talið frá baug sem liggur gegnum vorpunkt himins,
þar sem sólin er stödd um vorjafndægur. Pegar stjarna sem hefur
stjörnulengdina 5* er í hásuðri á einhverjum stað, er sagt að stjörnutími
staðarins sé 5 stundir. Ef gangur klukku er stilltur þannig að hún sýni
stjörnutíma, flýtir hún sér um tæpar 4 mínútur á dag miðað við venju-
lega klukku, en sýnir ávallt hvaða stjörnur eru í hágöngu.
Mánaðarnöfnin við jaðra kortanna á bls. 72-73 sýna hvenær ársins
viðkomandi stjörnur eru í suðri á miðnætti (lágnætti). Um miðjan
desember er stjörnumerkið Oríon í hásuðri um miðnæturskeið, svo að
dæmi sé tekið. Á einum mánuði flýtir stjörnuklukkan sér um tvær
stundir miðað við venjulega klukku. Af því leiðir, að um miðjan janúar
er Oríon í hásuðri tveimur stundum fyrir miðnætti.
(70)