Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Klasasérfræði
á Akureyri
Einn þekktasti sérfræð-
ingur heims í starfsemi
klasa til nýsköpun-
ar og atvinnuþró-
unar, Ifor Willi-
ams, flutti aðaler-
indið á ráðstefnu
um fyrirtækjaklasa
og tengslamyndun
í atvinnulífinu á
Akureyri í gær.
Williams hélt einnig nám-
skeið um málefnin í fyrra-
dag. Var það vel sótt af fólki
úr atvinnulífinu og opin-
bera geiranum sem var að
kynna sér hugmyndir að
baki samvinnu í atvinnu-
greinum. Álit manna er að
hugmyndir Williams hafi
verið nýstárlegar og komi
til með að nýtast norðan-
mönnum vel í flestu sem
tengist atvinnulífinu.
L-ll{ í'_
“....
. | f S
Flestar löggur
á ísafirði og í
Eyjum
Fæstir íbúar voru á
hvern lögreglumann á ísa-
flrði og í Vestmannaeyjum
og flestir í Kópavogi á síð-
asta ári. Þetta segir í
skýrslu Jónmundar Kjart-
anssonar yfirlögregluþjóns
hjá ríkislögreglustjóra. 1.
febrúar 2004 voru starfandi
á ísafirði 13 lögreglumenn
og voru því 335 íbúar að
baki hverjum lögreglu-
manni. Sama íbúatala var
að baki hverjum lögreglu-
manni í Vestmannaeyjum.
Flestir voru íbúar að baki
hverjum lögreglumanni í
Kópavogi, 903.
fylIplfS
Kjarafundir
ganga vel
Verkalýðsfélag Akraness
fundaði með forsvarsmönn-
um Norðuráls í gær og fóru
samningsaðilar yfir kröfúr
stéttafélaganna. Launaliðir
samningsins hafa enn ekki
verið ræddir en vonast er til
að farið verði í þær viðræð-
ur fljótlega. Vaktavinnu-
menn hafa gert kröfu til
þess að fá fimmta vakthóp-
inn inn og hefur því verið
komið vel til skila til for-
svarsmanna Norðuráfs,
SamningsaðUar hefja eflaust
viðræður um fimmta vakt-
hópinn fljótlega. Enn hafa
launaliðir samningsins ekki
verið ræddir en úr þeim ver-
ið skorið í bráð.
Fyrrum sjúkraliði á elliheimilinu Víðinesi, Eiríkur Bjarnar Kjartansson, var í gær
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir árás á háaldraða konu. Árásin er sögð hafa
verið til þess fallin að valda ósjálfbjarga gamalmenni mikilli vanlíðan og ótta enda
á stað sem hún átti að teljast óhult. Refsingin er skilorðsbundin til þriggja ára.
Dæmdur íyrir aö ráðast á
ósjálibjarna gamalmenni
„Hann sleppur því við refsingu fyrir að ráðast með hrottalegum
hætti á gamla konu.“ Sjiikraliðinn Eiríkur Bjarnar Kjartansson
var í gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á há-
aldraða konu, vistmann á öldrunar-og sjúkraheimilinu að Víði-
nesi. Dómurinn segir að árásin hafi verið til þess fallin að valda
ósjálfbjarga gamalmenni mikilli vanlíðan og ótta.
Þrátt fyrir þessi orð dómarans er
fullnustu refsingar frestað ef Eiríkur
heldur skilorð næstu þrjú árin. Hann
getur því sloppið við refsingu fyrir að
ráðast með hrottalegum hætti á
gamla konu. Eiríkur var ákærður
fyrir að hafa slegið gömlu konuna,
sem lést áður en málið var þingfest,
margsinnis í andlitið og misþyrmt
henni með þeim afleiðingum að hún
hlaut slæmt mar og glóðarauga. Tvö
vitni urðu að árásinni, starfsfólk á
Víðinesi, sem var fyrir utan herberg-
ið þar sem árásin átti sér stað.
Óttaðist dauðann
Fyrir dómi sögðu vitnin að þau
hefðu heyrt gömlu konuna kalla
hvað eftir annað: „Hjálp, hjálpið
mér. Ég er að deyja." Þau hafi staðið
í brunastiga fyrir utan álmuna og séð
inn um glugga þar sem Eiríkur sló
gömlu konuna með flötum lófa hvað
eftir annað og sagt ógnandi: „Hættu
tmmi..
þessu, hættu þessu. Ætlarðu ekki að
fara að hætta þessu?"
Sjálfur bar Eiríkur því við að
gamla konan hefði sturlast þetta
kvöld og haft ítrekaðar hægðir sem
hann hefði reynt að þrífa upp. Hann
hafi reynt að gefa henni róandi en
það ekki virkað. Ástæðan fyrir
meiðslunum sagði Eiríkur að konan
hefði runnið tii í eigin skít. Hann við-
urkenndi þó að hafa slegið hana
utan undir eða „klappað henni" eins
og hann orðaði það fyrir dómnum.
Slíkt „klapp“ sagði hann tákn-
ræna athöfn sem í þessu tilviki hafi
virkað.
Níðst á eldra fólki
Víðinesmálið vakti mikla athygli
þegar það kom fyrst í fréttir í febrúar
árið 2004. Ættingjar gömlu konunnar
sem lést lögðu fram kæru á hendur
Eiríki föstudaginn 6. febrúar en
tveim dögum áður hafi hjúkrunar-
heimilið lagt fram kæru. Varð mál-ið
til þess að vekja athygli á aðbúnaði
gamals fólks á hjúkrunarheimilum
og er sú umræða enn í gangi.
Til dæmis hefur starfsfólk Hrafn-
istu í Reykjavík verið fundið sekt um
mistök þegar eldri maður hlaut
hefiablæðingu eftir að hafa dottið á
steingólf en var ekki komið tfi
hjálpar. Vakin hefur verið athygli á
ómannúðlegri aðstöðu á hjúkrunar-
heimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Að-
stöðu sem bæjarfulltrúi þar í bæ
sagði ekki sæmandi á 21. öldinni. Og
DV fjallaði um mann sem flúði elli-
heimilið Grund vegna þess að-
stæðna sem hann taldi vega að frið-
helgi einkalífs síns.
Fengu ekki skaðabætur
í dómnum yfir Eiriid Bjarnari
segir að það auki á alvarleika árás-
arinnar að hún átti sér stað við að-
stæður þar sem gamla konan átti
að teljast óhult. Vekur þetta mál,
eins og þau sem framan greinir
upp spurningar um þá aðstöðu
sem gömlu fólki er boðið
upp á í dag. Tekið er
inn í dóminn að
Eiríkur
, \.
er með hreint sakavottorð og að ekki
tókst að sanna að misþyrmingar,
aðrar en höggin á gömlu konuna,
hefðu átt sér stað.
Ættingjar gömlu konunnar vfija
skaðabætur vegna þess ofbeldis sem
hún varð fyrir. Þar sem konan er látin
var það dánarbúið sem gerði kröf-
una. Þá kröfu féllst dómurinn ekki á
og segir að slík krafa hafi fallið niður
við andlát konunnar.
simon@dv.is
Breyttir tímar hjá Hitaveitu Suðurnesja
Ánægður með útboð
Nær öll verk Hafnarfjarðarbæjar,
Orkuveitunnar og Hitaveitu Suður-
nesja fyrir árið 2005 verða í útboði.
Gunnar Svavarsson bæjarfulltrúi
segir þetta breytta tíma. Á síðasta ári
mótmælti Gunnar, sem situr í stjórn
Hitaveitu Suðurnesja, því að ekki
hefði verið farið í útboð á stórum
verkefnum. Það hefði getað sparað
hitaveitunni 300 til 500 milljónir
króna.
I kjölfarið komst DV að því að for-
stjóri Hitaveitunnar hefði lýst því
yfir í bréfaskriftum að þjónustu-
samningur, sem íslenskir aðalverk-
takar eru með,
hefði átt að fara í
útboð fyrir
mörgum árum.
Ekkert slíkt út-
boð hefur enn
farið fram.
Samningurinn
mun vera millj
arðavirði.
Gunnar Svavarsson
bæjarfulltrúi
„Við höfum veriö á tveggja daga forystusveitarfundi hjá Landsvirkjun til þess að ræða
um þær breytingar sem hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu og munu eiga sér stað vegna
nýrra raforkulaga, “ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. „ Við erum ákafíí
ýmsum verkefnum og þar ber auðvitað hæst Kárahnjúkavirkjun. Á þessum bæ hafa
menn heilmikið að gera. Sem betur fer.“
Útvarpsráð beygði sig fyrir undirmönnum
Eurovision-draumar
útvarpsráðs slökktir
„Það var ekki út-
varpsráð sem stoppaði
það að farin yrði sú leið
að halda forkeppni.
Þvert á rnóti," segir í
harðorðri bókun Ingv-
ars Sverrissonar í út-
varpsráði í gær.
Áhugamenn um
Eurovision eru margir
gramir Ríkissjónvarp-
inu fyrir að ætla ekki
að halda forkeppni til
að velja lag og fulltrúa
í söngvakeppnina í ár. Æðstu starfs-
mönnum stofnunarinnar mun þykja
betri kostur, ekki hvað síst af pen-
ingalegum ástæðum, að handvelja
einfaldlega lagahöfund.
Ingar segir í bókun sinn að á
Ingvar Sverrisson Allirí
útvarpsráði létu undan of-
uráherslu stjórnenda RÚV.
tveimur fundum útvarps-
ráðs hafi tfilögur stjórnenda
fyrirtækisins verið ræddar.
„Á þessum fundum lögðu
allir meðlimir útvarpsráðs
mikla áherslu á að leitað yrði
leiða til að halda forkeppni
þar sem allt að 15 flytjendur
gætu keppt sín á mfili um
hylli þjóðarinnar sem fengi
að velja lagið í símakosn-
ingu. Allir sem sátu síðari
fundinn sem fjallaði um
málið lýstu yfir að þeir vildu
fara þá leið að halda for-
keppni en útvarpsráð stóð þó saman
um það að fara hina leiðina vegna
mikfilar áherslu yfirmanna fyrirtæk-
isins. Þetta hefur ekki komið nægi-
lega skýrt fram," bókaði Ingvar.