Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005
Sport DV
Ellefu af sextán bandarískum körfuboltamönnum sem spila í Intersport-deildinni
eru að skila minna til sinna liða á nýju ári heldur en þeir gerðu áður en þeir fóru
heim í jólafrí. Þessi tölfræði er vatn á myllu þeirra sem vilja að leikmenn fari ekk-
ert um hátíðarnar og verði því í formi þegar deildin fer af stað á nýjan leik.
BREYTING Á FRAMLAGI
Cameron Echols, KR +8,0
Jeb Ivey, Fjölni +5,4
Anthony Lackey, Njarðvík +1,1
Theo Dixon, fR + 1,1
Terry Taylor, Grindavík 0
Joshua Helm, KFÍ -1,5
Chris Woods, Hamar/Selfoss -2,7
Bethuel Fletcher, Tindastóll -3,4
Darrel Flake, Fjölni -3,9
Nick Bradford, Keflavík -5,2
Anthony Glover, Keflavfk -6,8
Damon Bailey, Hamar/Selfoss -7,2 |
Grant Davis, (R -7,4
Matt Sayman, Njarðvík -10,9
Clifton Cook, Skallagrími -11,7
John Waller, Haukum -15,1
Hér er notuð framlagsjafna NBA-
deildarinnar, NBA Efficiency Wsm
Formula.
Nú eru fímm umferðir búnar að Intersport-deildinni á nýju ári
og þegar hafa tveir bandarískir leikmenn fengið að fjúka. Annar
þeirra, John Waller úr Haukum, er sá sem hefur lagt minnst fram
til síns liðs eftir áramót en Waller skilaði aðeins 36% af því til
Haukaliðsins í janúar sem að hann gerði í 11 fyrstu leikjum tíma-
bilsins. Hann á það þó sameiginlegt með mörgum löndum
sínum að hafa mætt í slöku formi eftir hátíðarnar. Það er greini-
legt á tölfræðinni að þessir atvinnumenn eru augljóslega ekki
alltof duglegir við að halda sér í formi um hátíðarnar.
leiki og
Hauk-
Það hefur við og við
komið upp umræða
innan körfubolta-
hreyfingarinnar að
stytta jólafríið sem er
nær því að vera þrjár
vikur en hálfur mán-
uður eða í það minn-
sta að sjá til þess að
atvinnumenn liðsins
stingi ekki afí það
marga daga að það
hafi stór áhrif á þeirra
getu inn á vellinum.
Bandarískir atvinnumenn í
körfuboltanum eru nú sem fyrr í
aðalhlutverki í Intersport-deildinni
og það er liðunum afar mikilvægt að
þeir skili sínu í leikjunum. Það voru
sextán bandarískir leikmenn sem
sneru aftur eftir jólafríið að þessu
sinni en aðeins fjórir þeirra hafa
bætt leik sinn frá því í fyrri umferð-
inni. Hér notum við framlagsjöfnu
NBA-deildarinnar sem tekur inn í
það sem leikmenn leggja til sinna
íiða í formi stiga, frákasta, stoðsend-
inga, stolna bolta og varinna skota á
móti því sem það kostar liðið í mis-
heppnuðum skotum og töpuðum
boltum.
Echols fremstur
KRingurinn Cameron Echols fer
hér fremstur en framlag Echols á
nýja árinu er átta stigum hærra en
það var fyrir jól og hefur Echols
skorað 30,6 stig og tekið 15,2 fráköst
að meðaltali í fimm leikjum KR-inga
í janúar. Hér hefur koma Aarons
Harper til liðsins mikið að segja en
fyrir vikið hefur KR-liðið unnið fjóra
af þessum fimm leikjum sínum eftir
áramót. Fjölnismaðurinn Jeb Ivey
hefur einnig bætt sinn leik verulega í
leikjum nýja ársins en Ivey hefur
meðal annars hækkað skotnýtingu
sína um rétt tæp 10%, skorað 1,8
fleiri stig í leik og gefið 2,3 fleiri
stoðsendingar.
Grindvíkingar og Haukar hafa
rekið erlenda leikmenn á síðustu
dögum, Grindvík-
ingar ráku Tar-
on Baker eftir
aðeins sex
voru ekki sáttir með framlög John
Waller sem var nánast óþekkjan-
legur eftir áramót.
Grindavíkurliðið lék sex leiki með
Barker innanborðs og tapaði fimm
þeirra, þar af tvisvar fýrir Ham-
ar/Selfoss í sömu vikunni, bæði í
deild og bikar. Barker skoraði 9,7
stig og gaf 5,3 stoðsendingar að
meðaltali í leik en hann nýtti aðeins
33,3% skota sinna, 20 af 60, í leikjun-
um sex.
Waller sem lék vel fýrir jól og var
meðal annars efstur í þriggja stiga
skotnýtingu í deildinni eftir fyrri
umferðina hefur verið nánast
óþekkjanlegur á nýja árinu. Meðal-
skorið hans hefur meðal annars
lækkað um 10 stig í leik, hann er að
hitta 27% verr úr skotum sínum og
þá var hann að leggja til liðsins að-
eins 36% af því sem hann gerði í 11
leikjum liðsins fýrir jól.
Wallerekki sá eini
Waller er samt ekki sá eini
sem hefur misst dampinn úr
sínum leik því tveir af virtari
bandarísku leikmönnum
deildarinnar, Clifton
Cook hjá
Skallagrími
og Matt
Sayman hjá
Njarðvík
hafa skilað
mun minna til
sinna liða eftir
áramót. Skotnýting Cook
hefur hrunið um 15% eftir jól
og harm er að skora tæplega
sjö stigum minna að meðaltali og
þá hefur Sayman skorað 8,5
stigum minna auk þess sem
hann hefur gefið 4,6 færri
stoðsendingar í
leikjum Njarðvfkur
eftir áramót.
Það hefur við og
við komið upp um-
ræða innan körfubolta-
Clifton Cook
Hlnn bandarlski
leikstjórnandi
Skallagrims hefur heldur
betur gefið eftir siðan hann
kom úrjólafrii og framlag
hans til Skallagrimsliðsins hefur
hriðlækkað frá áramótum.
áip&os
Echols gefur ekkert eftir Cameron Echols, annar bandarísku leikmanna KR, hefur bætt sig mest allra útlendinga iIntersport-deildinni i
körfubolta eftir áramót. Hann átti stórleik á sunnudaginn þegar hann skoraði 28 stig og tók 27 fráköst isigurleik KR gegn Tindastóli.
hreyfingarinnar að stytta jólafríið
sem er nær því að vera þrjár vikur en
hálfur mánuður eða allavega að sjá
til þess að atvinnumenn liðsins
stingi ekki af í það marga daga að
það hafi stór áhrif á þeirra getu inni
á vellinum. Auðvitað getur margt
annað komið til en bara formleysi
leikmannana en leikjaálagið er
jafnan mikið í fyrsta mánuði ársins
og því er oft lítill tími til að laga það
sem hefur gerst um hátíðarnar.
Framundan er rólegur tími vegna
bikarúrslitanna og því þurfa flest
liðin að nýta tækifærið vel til þess að
koma sínum aðalmönnum aftur í
toppform á ný.
ooj@dv.is