Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2005, Blaðsíða 29
DV Lifiö
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2005 29
Þeir sem fylgjast með bókmenntaumræðu og flakka um netið hafa ekki farið var-
hluta af því að Eiríkur Örn Norðdahl og Ágúst Borgþór Sverrisson eru engir perlu-
vinir. Þeir hafa skotið ótt og títt hvor á annan og nýverið sauð upp úr þegar Ágúst
tók sig til og dæmdi Hugsjónadruslu Eiríks...
Eirfkur Örn Norðdahl Nú
spyrja menn hvort afar nei-
kvæður dómur Ágústs Borg-
þórs erkifjanda Eiríks færs si
dómasafni hans.
Agúst Borgþór Hefuráttístæl-
um viö Eirík Örn Norðdahl á net-
inu og tók sig svo til I kjölfarið og
dæmdi svo Hugsjónadruslu Eiríks
Honum þótti ekki mikið til koma.
„Og svo ég hefhi mín nú á helvít-
is melnum, þá eru mér fáar tilhugs-
anir jafn óspennandi og að eyða
meiri tíma í að lesa þessar mynd-
rænu smásögur hans," skxifar Eirík-
ur Örn Norðdal rithöfundur og
sendir erkifjanda sínum og kollega,
Ágústi Borgþóri smásagnahöfundi,
tóninn.
Tveir af öflugustu bloggurum
landsins eru þeir tveir og hafa nú um
hríð stundað að andskotast hvor
öðrum lesendum síninn til nokkurr-
ar skemmtunar.
Ágúst Borgþór
hefur fengist við
að gagnrýna
bækur á kist-
an.is og fyrir
síðu sína. Og
loks kom röðin
að Hugsjóna-
druslu Eiríks.
Skemmst er frá
að segja að
honum þótti ekki mikið til koma.
Hér eru nokkrar stiklur úr dómi
Ágústs Borgþórs:
Hugsjónadruslan rembings-
legur bloggvaðall
„Ég varð fyrir miklum vonbrigð-
um með Hugsjónadrusluna [...] afar
smá og fábreytt: ungur maður frá fsa-
firði fær sér að ríða nokkrum sinnum,
um borð í Norrænu og í Kaupmanna-
höfn m.a. Frásögnin af tilþrifalitlum
ástamálum hans er síðan margklofin
af vægast sagt rembingslegum
heimsmála-, þjóðmála-, heimspeki-
og kynjapælingum. Hlutí af því er
dagbók aðalpersónunnar sem er
kostulega rembingsleg [...] Stíllinn á
hugleiðingunum er mjög svipaður
hugleiðingum á bloggsíðu höfundar,
þær njóta sín ekki illa þar en skáld-
verk krefst meira en svo kæruleysis-
legra vinnubragða. Fyrir utan að vera
blóðhrár er stfllinn mjög staglkennd-
ur og endurtekningasamur. - Ég veit
eiginlega ekki hvort hægt er að kalla
þessa bók skáldsögu [...] Höfundur
[...] veður bara á súðum, uppfullur af
sínum bloggvaðli; og persónusköpun
er varla fyrir hendi. Ég er eigirflega
hálfiniður mín eftir þessa lestrar-
eynslu og held í þá von að bókin hafi
þrátt fyrir allt eitthvað til að bera sem
ég hafi ekki komið auga á [...] það er
ansi erfitt að kyngja Norðdahlnum,
maður getur eiginlega ekki annað en
klórað sér í hausnum yfir upphefð
hans.“
Fær dómur „Bloggþórs" sess
í dómasafni Eiríks Arnar?
Eiríki Erni er greinilega ekki
skemmt: „Fátt hefur nú reyndar
komið mér minna á óvart en þetta.
Það væri vanþakklæti og í aigeru
ósamræmi við gang veraldarinnar
að Bloggþórnum þættu mín
skrif skemmtilegri en mér þykja
hans.“
Eiríkur Örn hefur þann hátt á að
birta ritdóma um Hugsjónadrusl-
una á vef sínum og eru þeir orðnir
nokkrir. Hann, þessi ungi og vak-
andi rithöfundur, þóttist reyndar á
sínum tíma græða meira á illskilj-
anlegum dómi Jóns Yngva í Kast-
ljósinu, sem Eiríkur kallar reyndar
sinn gamla skátaforingja, en „lof-
rulla" dómur í DV og lakari í Mogg-
anum. Nú er að sjá hvort „Blogg-
þórinn“ hafi fengið hann til að
hugsa og mun dómur hans fá sess í
dómasafni Eiríks Arnar?
jakob@dv.is
Eiga vonástelpu
Oavid og Victoria Beckham eiga von á
stelpu, samkvæmt spænska dagblaðinu
La Razon. Fyrir eiga hjónin tvo syni en vin-
irþeirra segja þau afar spennt yfir að
eignast dóttur en hún hefur þegar fengið
nafnið Luna. Victoria á von á sér siðar I
mánuðinum og verður tekin með keisara-
skurði. Posh var þegar búin að kalla barn-
ið Luna.jafnvel þótt hún byggist við aö
það væri strákuc.Ég elska þetta nafn en ef
þetta verður strákur
þá verðég baraað
nota það næst."
Kate Moss
flottust
Ofurfyrirsætan lágvaxna
Kate Moss hefur verið
valin bestklædda
konan aflesend-
um breska
tímaritsins
Glamour. Leik-
konan unga og
kærasta Judes Law,
Sienna Miller, lenti I
öðru sæti en fjölmiðlar
kölluðu hana„hina nýju
Kate Moss“ allt slöasta
árið.Sienna klifraði upp
heil 47 sæti frá síðasta
ári og hefur greinilega
náð að heilla lesendur
Glamour.
„Kate nær þessu
alltaf rétt. Klæöan-
aöurhennarer
ótrúlegur/vareinn
vitnisburðurínn um fyrír-
sætuna.„Sienna er ekki
bara best klædda konan i
landinu heldur einnig sú kynþokkafyllsta,“
sagðiannar.
Leikkonan Sarah Jessica
Parker var I þriðja sæti
og Victoría Beckham í
þvi fjórða. Leikkonan
Jennifer Aniston varð í
fimmta og Nicoie Kid-
man í þvi sjötta.
Söngkonan Gwen
Stefani og leik-
konan Gwyneth
Paltrow komust
einnig inn á topp
tiu listann.
að karakterinn sem hann er búinn
að leika í 40 ár. Hann sýnir okkur lfka
nýja hlið. Ég man ekki eftir því að ég
hafi séð hann gráta áður. Það gerir
hann nokkuð sannfærandi. Free-
man er lflca klassískur Freeman.
Milllion Dollar Baby er eiginlega
tvær ólíkar myndir. Það má segja að
fyrstu 100 mínútumar sé Million
Dollar Baby ein af bestu myndum
Eastwoods, en þessum síðustu 40
mínútum ætía ég að reyna að
gleyma sem fyrst. Rétt eins og síð-
ustu mínútunum í leik íslendinga og
Slóvena á dögunum.
Sigurjón Kjartansson
Million Dollar Baby
Sýnd í Sambíóunum og Há-
skólabíói. Leikstjóri:
Clint Eastwood Aðal- r
hlutverk: Clint East- áLg^j
wood, Hillary Swank,
Morgan Freeman.
/ mmm
★★☆☆
Sigurjón fór í bíó
Eastwood grætur
Clint Eastwood er orðinn gamall
maður og á sennilega ekki eftír að
gera margar myndir í viðbót. Hann
einbeitír sér nú að vönduðum
myndum sem velta upp stórum sið-
ferðislegum spurningum, eins og sjá
máttí í Mystíc River sem hann gerði
fyrir tveimur árum. Hann er Iflca bú-
inn að læra inn á óskarsakademí-
una. Það virkar t.d. vel á akademí-
una að láta Morgan Freeman mala
rólega sem sögumann yfir allri
myndinni, eins og sannaðist í
Shawshank Redemption, Unfor-
given og nú f Million Dollar Baby,
nýjustu mynd Eastwoods. Og vití
menn, þessi seiðandi rödd sögu-
mannsins Freemans hefur skilað
myndinni sjö tilnefningum í hús.
Eastwood leikur gamlan box-
þjálfara sem hefur þjálfað margan
góðan boxarann. En flestír hafa þeir
yfirgefið hann rétt áður en þeir
vinna títil. Freeman er sá eini sem
var honum trúr, en hann missti líka
augað og vinnur nú hjá sínum gamla
þjálfara sem húsvörður í æfingasal.
Inn kemur Hillary Swank, 31 árs
gengilbeina af hillbilla-ættum, sem
á sér þann draum æðstan að verða
boxmeistari og fá þjálfun hjá þess-
um aldna snillingi. Hann lætur til
leiðast, með eastwoodískum sem-
ingi, og upp hefst mikil og spenn-
andi sigurganga. Maður man varla
eftir öðru eins síðan Rocky var og
hét.
En þá kúvendist myndin allt í
einu og breytist í þunglyndislegt og
leiðinlegt melódrama. Hvað gerðist?
Er Eastwood að reyna að segja okkur
eitthvað? Er honum eitthvað illa við
okkur? Höfum við gert honum eitt-
hvað?
Þarna sýna bæði Clintarinn og
Hiliary Swank fantafínan leik. Clint
Eastwood hefur algerlega fullkomn-
S
r