Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Fréttir DV Forða börnum frá offitu Reykjanesbær býður börnum á leikskólaaldri að notfæra sér íþróttamann- virki bæjarins svo forða megi þeim frá offitu. Leik- skólastjórar í Reykjanesbæ eru hvattir til að nýta lausa tíma, sérstaklega á morgn- ana, í íþróttamannvirkjun- um. Er þetta sagt gert í ljósi nýlegra rannsókna sem sýni að íslensk böm séu aíltpf þung. „Því þarf að leita allra ráða til að auka ' hreyfingu þeirra," segja bæjaryfirvöld sem ítreka að boðið.gildi líka fyrir þau börn sem em yngri en fimm ára en em ekki í leikskóla. Kasparov hættur Skákmeistarinn Gary Kasparov er hættur að keppa í skák. Þetta tilkynnti hann eftir að hafa borið sigur úr býtum á hinu fræga skákmóti í Linares á fimmtudaginn. Kasparov tapaði reyndar síðustu skák sinni á mótinu - og þeirri síðustu á ferlinum - en stóð engu að síður uppi sem sig- urvegari. Ástæðan fyrir þess- ari ákvörðun sem kom öll- um á óvart sagði Kasparov vera óánægju sína með skákheiminn en miklar deil- ur eruinnan FIDE-skák- hreyfingarinnar. Sagði hann að engu stefna og því hefði hann hætt. Ekið á dreng á reiðhjóli Drengur á reiðhjóli lenti í samstuði við bíl við Þver- holt í Mosfellsbæ á milli klukkan fimm og sex í gær- dag. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var talið að drengtrrinn hefði fót- brotnað. Það fékkst þó ekki staðfest. Þegar lögregla kom á vettvang var faðir drengsins þegar búinn að aka honum á heilsgæslu- stöðina í Mosfellsbæ. Að sögn lögreglunnar em til- drög slyssins ekki ljós. Þaö heyrir til undantekninga að skipanir stjórnmálamanna í störf á vegum ríkisins séu hafnar yfir vafa um að eðlilegra vinnubragða sé gætt. Að minnsta kosti tíu skipanir pólitíkusa í stöður á vegum ríkisins síðasta árið hafa getið af sér umræðu um vafasama starfshætti. Stjórnmálamenn Ma Jijónum sínum í stöður fram hja reglum Skipan Auðunar Georgs Ólafssonar í fréttastjórastarf Ríkisútvarps- ins er ekki fyrsta pólitíska skipunin sem er talin orka tvímælis. Síð- asta árið hefur leikið vafi á að stjómmálamenn hafi fylgt lögum og reglum um rétt vinnubrögð í að minnsta kosti tíu málum. Allt hefur logað í illdeilum á Rík- isútvarpinu eftir að fulltrúar Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í pólitískt kjörnu útvarpsráði töldu Auðun Georg Ólafsson sem síðast starfaði sem sölu- og markaðsmað- ur hjá Marel í Asíu, hæfari öllum þeim fréttamönnum sem sóttu um starf fréttastjóra á fréttastofu út- varpsins. Pólitískt skipaður útvarps- stjóri, Markús Örn Antonsson valdi Auðun síðan til starfans og hefur uppskorið vantraust frá fréttamönn- um og áskorun frá flestum starfs- mönnum um að draga ákvörðunina til baka. í tilefni af þeirri umræðu riQaði Jónatan Þórmundsson laga- prófessor upp í viðtali á Morgunvakt Ríkisútvarpsins, að nýlega hefðu tvær konur verið skipaðar í mikilvæg embætti á vegum ríkisins þar sem ekki hafi verið farið að reglum og aðrar umsóknir en þeirra sem hand- valdar voru í störfin, hafi ekki verið skoðaðar. Skyndiráðning umboðs- manns Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra skipaði Ingibjörgu Rafnar hæstaréttar- lögmann sem umboðsmann barna aðeins þremur dögum eftir að um- sóknarfrestur um embættið rann út. Aðrir umsækjendur kölluðu á skýr- ingar og töldu sýnt að ákveðið hefði verið að Ingibjörg fengi starfið. Um- sækjendur gáfu í skyn að þeirra um- sóknir hafi ekki verið skoðaðar. Þjóðleikhús og Hæstiréttur Tinna Gunnlaugsdóttir var skip- úð þjóðleikhússstjóri fyrir skömmu af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Jónatan gaf í skyn í viðtalinu að þarna hefði ekki verið ástunduð rétt stjómsýsla. Hann tók einnig dæmi af Hæstarétti þar sem hann sagði að hæfasta um- sækjandanum hafi verið refsað fyrir að vera ekki nógu fylgispakur í fjöl- miðlamálinu. Þar var Jón Steinar Gunnlaugsson, einkavinur Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráð- herra skipaður af símavini sínum Geir H. Haarde, en ári áður hafði Björn Bjarnason skipað náfrænda Davíðs, Ólaf Börk Þorvaldsson í Hæstarétt. í bæði skiptin var hæfhis- mat Hæstaréttar sjálfs að engu haft. Tinna Gunnlaugsdóttir var skipuð þjóðleik- hússstjórí fyrirskömmu afÞorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Jónatan gafl skyn I við- talinu dð þarna hefðí ekki veríð ástunduð rétt stjórnsýsla. Ráðuneytisstjórar og upplýs- ingafulltrúar Síðastliðið ár hafa ráðherrar framsóknarmanna skipað tvo ráðu- neytisstjóra, annan í félagsmála- ráðuneytið og hinn í forsætisráðu- neytið. Mikið sjónarspil var í kring- um skipanina í félagsmálaráðuneyt- ið þar sem umsóknarfrestur var lengdur til að fá fleiri umsóknir en þær sem höfðu borist. Ein þeirra var frá Helgu Jónsdóttur, framsóknar- konu til langs tíma. Hún kærði að Árni Magnússon skyldi hafa valið Ragnhildi Arnljótsdóttm-, milli- stjórnanda í heilbrigðisráðuneytinu, til umboðsmanns Al- þingis. í forsætisráðuneytið valdi Halldór Ásgrímsson Bolla Þór Bolla- son og sótti hann í fjármálaráðu- neytið án þess að auglýsa stöðuna. Með sömu túlkun þarf ekki að aug- lýsa stöður hjá ráðuneytum ef ráð- herra getur fundið í einhverju ráðu- neyti mann sem honum líkar. í for- sætisráðuneytið var líka ráðinn upp- lýsingafulltrúinn Steingrímur Ólafs- son án auglýsingar. Davíð Oddsson utanríkisráðherra skipaði annan upplýsingafulltrúa, í þetta sinn fyrir NATO fram hjá öllum listum sem fs- lenska friðargæslan hefur á síntim snærum. Davíð útvegaði líka góð- vini sínum, Júlíusi Hafstein, sendi- herrastöðu í utanrikisráðuneytinu. Ekki deilur um Georg og Hildi Guðni Ágústsson fékk mikla gagn- rýni fyrir að skipa Ágúst Sigurðsson sem rektor Landbúnaðarháskólans. Aðrir umsækjendur sem töldu sig hafa ekki síðri menntun, ætluðu að kvarta til umboðsmanns. Tvær stöð- ur sem voru auglýstar nýlega á veg- um Bjöms Bjamasonar dómsmála- ráðherra hafa ekki vakið néikvætt umtal ogvifðist sem öllum skilyrðum hafi verið fullnægt um lögmætt ferli, nokkuð sem heyrir til tíðinda. Þetta vom skipanir Georgs Lámssonar í Landhelgisgæsluna og Hildar Dungal í Útlendingastofiiun. kgbé'dvti VBttíé Ragnhildur Arnljóts- TOFy- 'JBL ^ WPWSWj 1 *ír £. 1- safT'. f dóttir Hvött til að sækja um ráðuneytisstjóra- stöðu og ráðin. im Jón Steinar Gunnlaugsson ■ Flaug inn í Hæstarétt. M Auðun Georg Ólafsson ■ Pólitíkusar vildu að hann Mstýrði fréttastofu rikisins. • | J) | Tinna Gunnlaugsdóttir Allar um- m sóknir um þjóðleikhússtjóra skoðaðar? ■ I Ingibjörg Rafnar Fékk stöðu F umboðsmanns barna þremur j H dögum eftir umsókn. Búslóöageymsla fór á hausinn og eigendur búslóðanna finnast ekki. Ovíst hvað verður um 40 búslóðir „Okkar bissness er ekki að vera í búslóðageymslu, segir Vilhelm Bem- höft hjá fasteignafélaginu Eik sem vinnur nú hörðum höndum að því að koma um fjörutíu búslóðum í hendur sinna réttu eigenda. Talsverð vandræði hafa skapast vegna þessara búslóða. Eigendur þeirra höfðu komið þeim fyrir í geymslu hjá Búslóðageymslu Baldurs Þorleifssonar í Skeifunni 5. Þar er nú dekkjaverkstæðið Nýdekk. Hvað liggur á? Vilhelm Bemhöft hjá fasteignafé- laginu Eik segir að fyrirtækið hafi fest kaup á húsnæðinu þar sem Búslóða- geymsla Baldurs Þorleifssonar var áður. Búslóðageymslan sé ekki starf- rækt lengur og skrár um eigendur búslóðanna virðist glataðar. Fyrir skömmu birtist auglýsing frá Eik í Fréttablaðinu þar sem tilkynnt var að eigendur búslóðanna hefðu til 10. apríl að setja sig í samband við Eik og nálgast búslóðir sínar. „Eik eignaðist fasteignina í októ- „Það liggur mest á að hægja á umsvifum ísamfélaginu og fyrír fólk að njóta þess að vera til," segirÁrni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri íFjarðabyggð og fyrrverandi þingmaður.„Það liggur á að hætta að trylla fólk með einnar krónu mjólk og svoleiðis brjálæði. Það liggur með öörum orðum á fyrir mig og alla aðra aö slaka á og njóta lífsins." ber og óskaði þá eftir upplýsingum um hverjir ættu búslóðimar sem vom í húsnæði Baldurs Þorleifssonar svo hægt væri að hafa samband við eig- endur þeirra og rýma húsnæðið af búslóðunum. Þær upplýsingar feng- ust ekki frá Baldri. Þá hafi verið gripið til þess ráðs að pakka saman búslóð- unum og flytja þær í annað húsnæði," segfrVilhelm. Að sögn Vilhelms höfðu aðeins þrír haft samband við Eik og fengið búslóðir sínar áður en félagið auglýsti eftir fleiri eigendum. En eftir auglýs- inguna hafi nokkrir bæst við: „Ég get ekkert sagt hvað verður um þessar búslóðir eftir 10. apríl," segir Vilhelm einnig og gefur ekki upp hvort búslóðunum verði fargað eða þær gefnar til góðgerðamála, segist aðeins vonast til að sem flestir komi og sæki búslóðimar sínar. Skeifan 5 Hér var búslóðageymsla Baldurs Þorleifssonar til húsa. Ekki náðist í Baldur Þorleifsson en þeir sem áttu búslóðir í geymslu hjá honum geta sem sagt enn haft sam- band við fasteignafélagið Eik til þess að nálgast þær. andri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.