Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Fréttir DV
Forða börnum
frá offitu
Reykjanesbær býður
börnum á leikskólaaldri að
notfæra sér íþróttamann-
virki bæjarins svo forða
megi þeim frá offitu. Leik-
skólastjórar í Reykjanesbæ
eru hvattir til að nýta lausa
tíma, sérstaklega á morgn-
ana, í íþróttamannvirkjun-
um. Er þetta sagt gert í ljósi
nýlegra rannsókna sem
sýni að íslensk böm séu
aíltpf þung. „Því þarf að
leita allra ráða til að auka '
hreyfingu þeirra," segja
bæjaryfirvöld sem ítreka að
boðið.gildi líka fyrir þau
börn sem em yngri en
fimm ára en em ekki í
leikskóla.
Kasparov
hættur
Skákmeistarinn Gary
Kasparov er hættur að
keppa í skák. Þetta tilkynnti
hann eftir að hafa borið
sigur úr býtum á hinu fræga
skákmóti í Linares á
fimmtudaginn. Kasparov
tapaði reyndar síðustu skák
sinni á mótinu - og þeirri
síðustu á ferlinum - en stóð
engu að síður uppi sem sig-
urvegari. Ástæðan fyrir þess-
ari ákvörðun sem kom öll-
um á óvart sagði Kasparov
vera óánægju sína með
skákheiminn en miklar deil-
ur eruinnan FIDE-skák-
hreyfingarinnar. Sagði hann
að engu stefna og því hefði
hann hætt.
Ekið á dreng
á reiðhjóli
Drengur á reiðhjóli lenti
í samstuði við bíl við Þver-
holt í Mosfellsbæ á milli
klukkan fimm og sex í gær-
dag. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík var talið að
drengtrrinn hefði fót-
brotnað. Það fékkst þó ekki
staðfest. Þegar lögregla
kom á vettvang var faðir
drengsins þegar búinn að
aka honum á heilsgæslu-
stöðina í Mosfellsbæ. Að
sögn lögreglunnar em til-
drög slyssins ekki ljós.
Þaö heyrir til undantekninga að skipanir stjórnmálamanna í störf á vegum ríkisins
séu hafnar yfir vafa um að eðlilegra vinnubragða sé gætt. Að minnsta kosti tíu
skipanir pólitíkusa í stöður á vegum ríkisins síðasta árið hafa getið af sér umræðu
um vafasama starfshætti.
Stjórnmálamenn Ma Jijónum
sínum í stöður fram hja reglum
Skipan Auðunar Georgs Ólafssonar í fréttastjórastarf Ríkisútvarps-
ins er ekki fyrsta pólitíska skipunin sem er talin orka tvímælis. Síð-
asta árið hefur leikið vafi á að stjómmálamenn hafi fylgt lögum og
reglum um rétt vinnubrögð í að minnsta kosti tíu málum.
Allt hefur logað í illdeilum á Rík-
isútvarpinu eftir að fulltrúar Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í
pólitískt kjörnu útvarpsráði töldu
Auðun Georg Ólafsson sem síðast
starfaði sem sölu- og markaðsmað-
ur hjá Marel í Asíu, hæfari öllum
þeim fréttamönnum sem sóttu um
starf fréttastjóra á fréttastofu út-
varpsins. Pólitískt skipaður útvarps-
stjóri, Markús Örn Antonsson valdi
Auðun síðan til starfans og hefur
uppskorið vantraust frá fréttamönn-
um og áskorun frá flestum starfs-
mönnum um að draga ákvörðunina
til baka. í tilefni af þeirri umræðu
riQaði Jónatan Þórmundsson laga-
prófessor upp í viðtali á Morgunvakt
Ríkisútvarpsins, að nýlega hefðu
tvær konur verið skipaðar í mikilvæg
embætti á vegum ríkisins þar sem
ekki hafi verið farið að reglum og
aðrar umsóknir en þeirra sem hand-
valdar voru í störfin, hafi ekki verið
skoðaðar.
Skyndiráðning umboðs-
manns
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra skipaði Ingibjörgu Rafnar
hæstaréttar-
lögmann sem umboðsmann barna
aðeins þremur dögum eftir að um-
sóknarfrestur um embættið rann út.
Aðrir umsækjendur kölluðu á skýr-
ingar og töldu sýnt að ákveðið hefði
verið að Ingibjörg fengi starfið. Um-
sækjendur gáfu í skyn að þeirra um-
sóknir hafi ekki verið skoðaðar.
Þjóðleikhús og Hæstiréttur
Tinna Gunnlaugsdóttir var skip-
úð þjóðleikhússstjóri fyrir skömmu
af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra. Jónatan gaf í
skyn í viðtalinu að þarna hefði ekki
verið ástunduð rétt stjómsýsla.
Hann tók einnig dæmi af Hæstarétti
þar sem hann sagði að hæfasta um-
sækjandanum hafi verið refsað fyrir
að vera ekki nógu fylgispakur í fjöl-
miðlamálinu. Þar var Jón Steinar
Gunnlaugsson, einkavinur Davíðs
Oddssonar fyrrverandi forsætisráð-
herra skipaður af símavini sínum
Geir H. Haarde, en ári áður hafði
Björn Bjarnason skipað náfrænda
Davíðs, Ólaf Börk Þorvaldsson í
Hæstarétt. í bæði skiptin var hæfhis-
mat Hæstaréttar sjálfs að engu haft.
Tinna Gunnlaugsdóttir
var skipuð þjóðleik-
hússstjórí fyrirskömmu
afÞorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra.
Jónatan gafl skyn I við-
talinu dð þarna hefðí
ekki veríð ástunduð
rétt stjórnsýsla.
Ráðuneytisstjórar og upplýs-
ingafulltrúar
Síðastliðið ár hafa ráðherrar
framsóknarmanna skipað tvo ráðu-
neytisstjóra, annan í félagsmála-
ráðuneytið og hinn í forsætisráðu-
neytið. Mikið sjónarspil var í kring-
um skipanina í félagsmálaráðuneyt-
ið þar sem umsóknarfrestur var
lengdur til að fá fleiri umsóknir en
þær sem höfðu borist. Ein þeirra var
frá Helgu Jónsdóttur, framsóknar-
konu til langs tíma. Hún kærði að
Árni Magnússon skyldi hafa valið
Ragnhildi Arnljótsdóttm-, milli-
stjórnanda í heilbrigðisráðuneytinu,
til umboðsmanns Al-
þingis. í forsætisráðuneytið valdi
Halldór Ásgrímsson Bolla Þór Bolla-
son og sótti hann í fjármálaráðu-
neytið án þess að auglýsa stöðuna.
Með sömu túlkun þarf ekki að aug-
lýsa stöður hjá ráðuneytum ef ráð-
herra getur fundið í einhverju ráðu-
neyti mann sem honum líkar. í for-
sætisráðuneytið var líka ráðinn upp-
lýsingafulltrúinn Steingrímur Ólafs-
son án auglýsingar. Davíð Oddsson
utanríkisráðherra skipaði annan
upplýsingafulltrúa, í þetta sinn fyrir
NATO fram hjá öllum listum sem fs-
lenska friðargæslan hefur á síntim
snærum. Davíð útvegaði líka góð-
vini sínum, Júlíusi Hafstein, sendi-
herrastöðu í utanrikisráðuneytinu.
Ekki deilur um Georg og Hildi
Guðni Ágústsson fékk mikla gagn-
rýni fyrir að skipa Ágúst Sigurðsson
sem rektor Landbúnaðarháskólans.
Aðrir umsækjendur sem töldu sig
hafa ekki síðri menntun, ætluðu að
kvarta til umboðsmanns. Tvær stöð-
ur sem voru auglýstar nýlega á veg-
um Bjöms Bjamasonar dómsmála-
ráðherra hafa ekki vakið néikvætt
umtal ogvifðist sem öllum skilyrðum
hafi verið fullnægt um lögmætt ferli,
nokkuð sem heyrir til tíðinda. Þetta
vom skipanir Georgs Lámssonar í
Landhelgisgæsluna og Hildar Dungal
í Útlendingastofiiun. kgbé'dvti
VBttíé
Ragnhildur Arnljóts- TOFy- 'JBL ^ WPWSWj 1 *ír £. 1- safT'. f
dóttir Hvött til að sækja um ráðuneytisstjóra- stöðu og ráðin. im Jón Steinar Gunnlaugsson ■ Flaug inn í Hæstarétt. M Auðun Georg Ólafsson ■ Pólitíkusar vildu að hann Mstýrði fréttastofu rikisins. • | J) | Tinna Gunnlaugsdóttir Allar um- m sóknir um þjóðleikhússtjóra skoðaðar? ■ I Ingibjörg Rafnar Fékk stöðu F umboðsmanns barna þremur j H dögum eftir umsókn.
Búslóöageymsla fór á hausinn og eigendur búslóðanna finnast ekki.
Ovíst hvað verður um 40 búslóðir
„Okkar bissness er ekki að vera í
búslóðageymslu, segir Vilhelm Bem-
höft hjá fasteignafélaginu Eik sem
vinnur nú hörðum höndum að því að
koma um fjörutíu búslóðum í hendur
sinna réttu eigenda.
Talsverð vandræði hafa skapast
vegna þessara búslóða. Eigendur
þeirra höfðu komið þeim fyrir í
geymslu hjá Búslóðageymslu Baldurs
Þorleifssonar í Skeifunni 5. Þar er nú
dekkjaverkstæðið Nýdekk.
Hvað liggur á?
Vilhelm Bemhöft hjá fasteignafé-
laginu Eik segir að fyrirtækið hafi fest
kaup á húsnæðinu þar sem Búslóða-
geymsla Baldurs Þorleifssonar var
áður. Búslóðageymslan sé ekki starf-
rækt lengur og skrár um eigendur
búslóðanna virðist glataðar.
Fyrir skömmu birtist auglýsing frá
Eik í Fréttablaðinu þar sem tilkynnt
var að eigendur búslóðanna hefðu til
10. apríl að setja sig í samband við Eik
og nálgast búslóðir sínar.
„Eik eignaðist fasteignina í októ-
„Það liggur mest á að hægja á umsvifum ísamfélaginu og fyrír fólk að njóta þess að
vera til," segirÁrni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri íFjarðabyggð og fyrrverandi
þingmaður.„Það liggur á að hætta að trylla fólk með einnar krónu mjólk og svoleiðis
brjálæði. Það liggur með öörum orðum á fyrir mig og alla aðra aö slaka á og njóta
lífsins."
ber og óskaði þá eftir upplýsingum
um hverjir ættu búslóðimar sem vom
í húsnæði Baldurs Þorleifssonar svo
hægt væri að hafa samband við eig-
endur þeirra og rýma húsnæðið af
búslóðunum. Þær upplýsingar feng-
ust ekki frá Baldri. Þá hafi verið gripið
til þess ráðs að pakka saman búslóð-
unum og flytja þær í annað húsnæði,"
segfrVilhelm.
Að sögn Vilhelms höfðu aðeins
þrír haft samband við Eik og fengið
búslóðir sínar áður en félagið auglýsti
eftir fleiri eigendum. En eftir auglýs-
inguna hafi nokkrir bæst við:
„Ég get ekkert sagt hvað verður um
þessar búslóðir eftir 10. apríl," segir
Vilhelm einnig og gefur ekki upp
hvort búslóðunum verði fargað eða
þær gefnar til góðgerðamála, segist
aðeins vonast til að sem flestir komi
og sæki búslóðimar sínar.
Skeifan 5 Hér var búslóðageymsla Baldurs
Þorleifssonar til húsa.
Ekki náðist í Baldur Þorleifsson en
þeir sem áttu búslóðir í geymslu hjá
honum geta sem sagt enn haft sam-
band við fasteignafélagið Eik til þess
að nálgast þær.
andri@dv.is