Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Page 11
DV Fréttir
Öryrki að
eigin sök
Manni á þrítugsaldri
voru dæmdar tæpar þrjár
milljónir í bætur fyrir
vinnuslys í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Féll
maðurinn eina flmm metra
niður í gegnum glugga á
húsþaki með þeim afleið-
ingum að hann lamaðist og
hlaut 100% örorku. Krafðist
maðurinn 11 milljóna
króna í bætur fyrir slysið.
Segir í dómnum að maður-
inn hafl sjálfur átt nokkra
sök á hvernig fór, hann hafi
vitað af glugganum og gert
sér grein fyrir hættunni. Því
fær hann ekki fullar bætur.
Tekinn fyrir
of hægan
akstur
Lögreglan á ísafirði
stöðvaði ökumann fyrir að
aka of hægt á ísafirði í
fyrradag. Bílalest hafði
safnast fyrir aftan bifreið
mannsins og taldi lögreglan
réttast að taka hann úr um-
ferð tímabundið og ræða
við hann. Auk þess var til-
kynnt um umferðaróhapp á
ísafirði þegar bifreið tók
firam úr annarri með þeim
afleiðingum að möl og
grjóti rigndi yfir bílinn. Slflct
gerist stöku sinnum, en
best er að forðast það með
því að hægja á sér þegar
annar tekur ffam úr.
Lyfjafyrirtæki borgi 32 milljónir í bætur
Dæmt fyrir örorku floga-
veikrar konu
Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline
og Líf hf. hafa verið dæmd til að
borga flogaveikri konu 32 milljónir
króna vegna örorku sem hún hlaut
eftir inntöku lyfsins Lamictal.
Konan, sem er 49 ára, lá í öndun-
arvél á spítala í Bandaríkjunum í
rúman mánuð. Hún fékk svokölluð
Steven-Johnson heilkenni sem hrjá
einn af hverjum 1000 sem taka inn
lyfið. Aðeins háþróuð tækni og góð
læknisfræðileg kunnátta björguðu
lífi konunnar.
Bandaríska lyfjaeftirlitið varaði
við lyfinu árið 1997 vegna hliða-
Hjörleifur
Þórarinsson
Framkvæmda-
stjóri Glaxo-
SmithKlinel.
verkanana. Aðvaranir á umbúðum
voru ekki á íslensku.
Hjörleifur Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri GlaxoSmithKhne á ís-
landi, segir búið að laga aðvaranir.
„Það er löngu búið að laga merking-
arnar. Þar kemur fram hvatning til
fólks að leita til læknis ef það finnur
fyrir einkennum hliðarverkana."
FERMINGAR
& tí I' lCt' %:s$' '.
Erum með mikið úrval
fermingargjafa.
Vandaðar vörur í i
hæsta gæðaflokki :
Gjafakort
:a
£
DÓRA JÓNSDÓTTIR |
GULLSMIÐUR
FRAKKASTfG 10 SlMI 551 3160
Opið virka daqa 14:00 - 18:00 oq Lau. 11 :OQ - 14:00
Hörkuáreksf-
ur í Ármúla
Tveir bílar óku saman í
Ármúla um klukkan þrjú í
gærdag. Lögregl-
an í Reykjavík
segir að um
hörkuárekstur
hafi verið að
ræða. Farþegi í
öðrum bílnum
var fluttur á
slysadeild. Hann
mun þó aðeins hafa hlotið
minniháttar meiðsli. Aðrir
sluppu með skrekkinn. Að
sögn lögreglu eru bflarnir
hins vegar mikið skemmdir
og þurfti að flytja þá af vett-
vangi með kranabfl.
Jj JJJJ3 Í3jhsJJJ 'JJ/JJJ Jj&djj'jjjjjJ
Geirmundur
Valtýsson
Háskólasetur
stofnað
Háskólasetur Vestfjarða
verður stofnað við hátíð-
lega athöfn í Vestrahúsinu
á Isafirði klukkan
eitt í dag. Þor-
gerður Katrín
Gunnarsdóttir
menntamálaráð-
herra flytur ávarp
ásamt viðskipta-
ráðherra, sam-
gönguráðherra
og fulltrúa sjávarútvegsráð-
herra. Ný stjórn háskólaset-
ursins verður kjörin í kjöl-
farið- Háskólasetur er fyrsti
áfanginn í baráttu ísfirð-
inga, með Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóra í farar-
broddi, til að koma á fót
háskóla í fjórðungnum.
laugardagskvöldið 12. mars.
KLÚBBURINN