Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Helgarblað DV
Nú er vor í lofti og
margir farnir að hugsa
um sumarfrí. Sumir
eru búnir að panta
ferð til útlanda á með-
an aðrir skipuleggja
ferðalag um landið. DV
ræddi við nokkrar þjóð-
þekktar konur og for-
vitnaðist um hvernig
þær ætla að eyða sinu
sumarfríi.
BAKPOKAR
Mikið úrval
af bakpokum
á tilboðsverði
Erum einnig meo
stærri tiöld
SVEFNPOKAR
Erum einnig með
gott úrval af:
r* Cönguskóm
• Hitabrúsum
• Sjónaukum
Kuldaþol: -8
Þyngd: 1,7 kg
2 lltlr
/wte
SKATABUÐIN
( Verð fró 4.995 kr
FERÐAVERSLUN
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727
Fellihýsi, tjaldvagnar og húsbílar
/ *
OPIÐ:
laugardag kl.12-16
sunnudagkl. 13-17
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Verslaðu við traustan aðUaíl
SJAÐU
NYJASTA!
OPlÐVJiw
HEV-GlNA
EYJARSLÓÐ 7 • SÍMI 511 2203 • www.seglagerdin.is
Nýt sumarsins
heima
„Síðasta sumar fórum við fjölskyldan til
Noregs að heimsækja bróður minn sem var al-
veg fróbært," segir Elin María Björnsdóttir
þóttastjórnandi Brúðkaupsþóttarins Jó.„Við
lágum bara á ströndinni og nutum lífsins i
faðmi fjölskyldunnar. Um haustið fórum
við hjónin í rómantíska ferð um Karíba-
hafið, það var líka alveg yndislegt. Við
spókuðum okkur um á eyjunum þarna og
höfðum það ótrúlega gott með öðrum pör-
um sem höfðu unnið ferð í gegnum þátt-
inn þannig að þetta var mjög rómantiskt
og gaman.
Isumar ætlum við aðallega að vera inn-
anlands, njóta sumarsins hérna heima.
Ég ætla að vinna i garðinum mínum,
mála og ferðast út á land og fara i
útilegur, við höfum alltafverið dugleg
við það. Það verður þá helst að við för-
um í vetrarferð næsta vetur til að brjóta
upp skammdegið hérna heima."
Ævintýraferð um Evrópu i
„Síðasta sumar fór ég ásamtsyni minum, sem er sex ára, til Portúgals í
afslöppunarferð, það var mjög notalegt. Við vorum i þrjár vikur og höfðum
það rosalega gott," segir Katrín Júlíusdóttir alþingiskona.,,1 sumar ætlum
við mæðginin að fara i ævintýraferð. Ég er
búin að panta flugfar til Þýskalands þar
sem við ætlum að vera í einhvern tíma og
heimsækja til dæmis bróður minn sem
býr í Berlín. Þaðan ætlum við til Belgíu
þarsem vinkona mín býr og svo er
draumur hjá syni mínum að fá að gista í
kastala eina nótt. Við ætlum síðan að
enda ferðina í Danmörku og þar ætlum
við að fara í Legoland, sonur minn er
ofsalega spenntur fyrir þvi og ég reynd-
ar líka, ég ætla að finna barnið i sjálfri
mér íþessari ferð. Ég fór I Legoland
þegar ég var lítil en man ekkert eftir
því en ég get bara ekki sagt annað
en að ég sé spennt yfir þessari
ferð þó að planið sé frekar óljóst,
hvernig við ætlum okkur að kom-
ast á milli landa og annað slíkt.
En það er líka gaman því þetta á
eins og ég segi að verða alger
ævintýraferð."
v' ? S 'Jtr .
Ég tók ekkert eiginlegt sumarfrí siðasta sumar
þar sem ég var að leika ísöngleiknum Fame en
það kom pása um verslunarmannahelgina og
þá fórum við hjónin hringveginn," segir Mar-
ía Heba Þorkelsdóttir leikkona.„Við vorum í
um það bil viku og gerðum ýmislegt, fórum
f út í Drangey og klifruðum yfir eyjuna, stopp-
uðum í Neskaupsstað til að fara i brúðkaup
og gistum i Vik í Mýdal þar sem við giftum
okkur fyrir fimm árum síðan. Það sem við
vissum ekki á þessum tima var að það var lítil
baun í maganum," rifjar María hlæjandi
upp.„Ég komst að þvíþegar ég kom heim
og var farin að leika í Fame aftur á fullu
en brjóstahaldararnir mínir voru
orðnir óeðlilega þröngir. Þá kom
þetta í Ijós og ég á að eiga eftir
nokkrar vikur og er mjög spennt. Eðli
málsins samkvæmt ætlum við ekki að
fara íneitt rosalegt frí en erum samt
að reyna að komast I bústað með-
fram ströndum Wales og þá tökum
við litla krilið auðvitað með."