Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Qupperneq 21
DV Helgarblað
LAUGARDAOUR 12. MARS 2005 21
„Það eru náttúrulega öll stór verkefni freistandi. En ég verð að vera al-
veg einlæg með þá skoðun mína að þegar ég hætti hér í Garðabæ,
hvort sem það er stutt eða langt í það, þá fari ég frekar að snúa mér að
verkefnum á öðrum vettvangi en ípólitík."
riðaholti fyrir ofan Vífilstaði í
Garðabæ. Hvers vegna þessi
„flugeldasýning" núna?
„Þetta er allt saman búið að
vera í undirbúningi lengi. Eins og
þessi sýn í skólamálunum, gerðist
bara, skref fyrir skref. Fyrst var
ákvörðun tekin um valfrelsi milli
skólanna í Garðabæ, síðan var
ákvörðun tekin um að stofna
einkaskóla, síðan var ákvörðun
tekin um að láta peningana fylgja
krökkunum sama hvert þau færu.
Svo var ákveðið að láta börnin
ekki innritast í hverfisskóla heldur
yrði fólk að velja eftir að skólarnir
væru búnir að kynna þeim náms-
framboðið. Það er kannski vegna
þess hvernig þetta hefur verið gert
sem átökin og umfjöllunin hefur
ekki verið meiri í kringum þetta,
með því að gera þetta skref fyrir
skref. Nú eru öll púslin að smella
saman. Það er orðin breyting og
við erum farin að finna árangur-
inn. Núna er fólk að sjá heildar-
myndina sem við erum búin að
vera að stefna að í fjögur til fimm
ár. Mesti tíminn hefur nú farið í
nýja sýn á framtíðarskipulag
Garðabæjar. Við ætlum að leyfa
meiri fjölbreytileika í byggðinni
með meiri þéttleika sums staðar
til þess að skapa svona skemmti-
legt mannlíf og góðan þéttleika til
þess að fá almennilega verslun og
þjónustu. Vekja svolítið bæinn,
sem þú og fleiri kalla svefnbæ, en
samt að halda karakternum sem
hefur einkennt Garðabæinn sem
er fyrst og fremst þessi frábæra
tenging við náttúruna og um-
hverfið sem er mjög dýrmæt og
við þurfum að varðveita."
(samkeppni við Reykjavík
Nú hafið þið unnið mikla und-
irbúningsvinnu við að fá Háskól-
ann í Reykjavík í Garðabæ og
ætlið að kynna undirbúningshug-
myndir að háskólahverfi á Urriða-
holti ínæstu viku. Er samkeppnin
mikil á milli sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu? „Við mát-
um það fyrir nokkrum árum að
Tækniháskólinn þyrfti lóð í fram-
tíðinni og það kæmi hugsanlega
að því að Tækniháskólinn og Há-
skólinn í Reykjavík myndu sam-
einast. Við byrjuðum því undir-
búning og hugsuðum með okkur
að ef af sameiningu verður ætluð-
um við að vera tilbúin með lóð. í
fyrra sumar þegar sameining
skólanna var tilkynnt höfðum við
strax samband við báða skólana
og buðum þeim að koma í Garða-
bæ. Þegar skólarnir sýndu þessu
áhuga fórum við strax í að þróa
hugmyndir um hvernig háskóla-
þorp gæti litið út í Urriðaholtinu
og við stöndum frammi fyrir því
að í næstu viku munum við kynna
þessar hugmyndir okkar á sama
tíma og Reykjavíkurborg mun
kynna sínar hugmyndir um lóð-
ina við flugvöllinn í Vatnsmýr-
inni. Skólinn mun síðan taka sér
tvær til þrjár vikur í að ákveða
annan hvorn kostinn. Við vonum
auðvitað að Urriðaholtið fái að
njóta þess hversu faglega hefur
verið staðið að undirbúningnum.
Samkvæmt okkar áætlunum gæti
skólinn opnað hérna árið 2007,
verði það niðurstaðan að Urriða-
holt verið valið sem framtíðar-
staður fyrir skólann. IKEA mun
opna stórverslun þarna á svæð-
inu sumarið 2006 og það eru eng-
ar fyrirstöður frá okkar hendi að
skólinn gæti hafið starfsemi
þarna ári seinna."
Öll stór verkefni freistandi
Ert þú ekki lausnin á leiðtoga-
krísu sjálfstæðismanna í Reykja-
vík? „Nei, alls ekki. Ég hef ekki
náð þessum árangri hér ein. Ég
kom hér inn í umhverfi sem er til-
búið í jákvæðar breytingar. Kem
inn í samstarf í meirihluta sem er
algerlega samstíga. í samstarfi við
embættismenn hér sem eru svo
hundraðprósent áhugasamir, ná-
kvæmir og einbeittir í því sem
þeir eru að gera. Þannig að ég get
ekki sagt að ég muni eða gæti gert
það sama í Reykjavíkurborg. Þetta
er ofsalega mikil spurning um
umhverfið sem maður starfar í og
ég hef verið heppin að fá að njóta
þess að vera í Garðabæ þegar um-
hverfið er svona eins og það er.
Frábær grunnur til að byggja á,
góður rekstur, ekki skuldahali,
ekki háir skattar, ekki allt í tómu
rugli. Þetta eru í raun forréttindi
fyrir mig." Hefur komið til tals að
þú verðir næsta borgarstjóraefni
D-listans í Reykjavík? „Nei. Ég á
gott samstarf við sjálfstæðismenn
í Reykjavík og við vinnum saman
að allskonar hugmyndum. Ég les
stöðuna í Reykjavíkurborg þannig
að R-listinn sé liðinn undir lok og
að það sé nú mjög gott tækifæri
fyrir sjálfstæðismenn til þess að
sýna hvað þeir hafa fram að færa,
sýna skýra stefnu og ég hef trú að
því að meðal borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins séu einstaklingar
sem geti leitt flokkinn til sigurs.
Ég hef mjög mikla trú á ákveðn-
um einstaklingum sem þar eru og
verð þá sérstaklega að nefna
Hönnu Birnu sem er góð vinkona
mín og samstarfskona. Ég væri til
í að vinna með henni að ýmis-
konar málefnum. En ég ætla mér
ekki að fara sjálf í forystu í Reykja-
víkurborg. Ég veit að Hanna Birna
er ekki sátt við að ég tali svona um
væntingar mínar til hennar sem
borgarstjóraefnis, en þetta er mín
skoðun". Gætir þú hugsað þér að
fara fram í Reykjavík? „öll stór
verkefni eru freistandi en ég verð
að vera alveg einlæg með þá
skoðun mína að þegar ég hætti
hér í Garðabæ, hvort sem það er
stutt eða langt í það, þá fari ég
frekar að snúa mér að verkefnum
á öðrum vettfangi en í pólitík.
Væri til í að takast á við verkefni í
atvinnulífinu í einhverju kraft-
miklu fyrirtæki þar sem ég get lát-
ið hluti verða að veruleika á til-
tölulega skömmum tíma. Ég er
búin að vera það lengi viðloðandi
pólitík að ég tel mig vera komin á
þá niðurstöðu að það henti mér
best að vera á stað þar sem hlut-
irnir geti gerst hratt. í augnablik-
inu sé ég ekki fyrir mér annað en
að ég komi til með að halda áfram
hér í Garðabæ."
freyr@dv.is