Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Page 22
22 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Helgarblað DV
<íkt
snu/*ti/mcuuinci
Elskar rakakrem
„Mér þykir mest til rakakrema
koma af öllum snyrtivörum. Ég
elska góð rakakrem sem eru með
mildri lykt. Ég er nýbúin að klára
eitt alveg frábært frá Lancome, það
er bara svo dýrt að ég ætla að bíða
þar til einhver fer til útlanda og
getur keypt það fyrir mig í fríhöfn-
Fyrsta púörið glatað
„Ég átti púður frá Clinique sem
vinkonur mínar úr leiklistarskólan-
um gáfu mér og það var mitt fyrsta
púður en ég týndi því þegar ég flutti
svo núna á ég ekkert."
Vill þurra maskara
„Ég á þennan fína Max factor
maskara, hann er þurr þannig að
hann klessist ekki. Eg þoli ekki þeg-
ar maskarar eru blautir og maður
má ekki blikka augunum í lengri
tíma eftir að hann er settur á.“
Gullfallegur augnskuggi
„Ég fór síðasta sumar
með Unni Stefáns
dóttur vinkonu
minni á snyrti-
stofu þegar hún
var að fara í brúnku
sprautun fyrir Hárið.
Meðan ég beið keypti ég þennan
gullfallega græna augnskugga sem
er ansi ólíkt mér en ég er ekki frá því
að þetta hafi verið ein bestu kaup
mín í langan tíma, nota hann oft og
iðulega."
Blýantur fyrir glataða
púðrið
„Ég fann þennan blýant
frá Lancome þegar ég flutti,
ég tel að hann haft komið í
staðinn fyrir glataða púðrið
og hef aðeins verið að leika
mér með hann. Það gengur
bara vel, gaman að prófa
eitthvað nýtt."
Ólffuolía allra
meina bót
„Það er algert
búst fyrir húðina
að nota ólífuolíu.
Bera hana á sig og
leyfa henni að
vera í nokkra
klukkutíma þannig
að hún fari vel inn í
húðina. Svo er hún
ekki verri fyrir hárið,
ég er með þurrar
krullur og það er
eins og besta djúp-
næring að láta
ólífuolíu í hárið og
setja blautt handklæði yfir. Hollráð
fyrir alla með þurrt hár.“
Maríanna Clara Lúthersdóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla fslands árið 2003.
Síðan þá hefur hún leikið í stuttmyndum og sjónvarpsmyndum. Hún lék í Hinum
útvalda í leikstjórn Gunnars Helgasonar og var í sýningu sem sett var upp á
Hótel Sögu svo fátt eitt sé nefnt þannig það hefur verið nóg að géra. Fyrir viku
síðan frumsýndu Marfanna og Sólveig Guðmundsdóttir leikritið Kaktusmjólk en
það er spuni sem unninn er upp úr nokkrum verkum. Þær stöllur eru meðlimir í
leikfélaginu Kvenfélagið Garpur og er leikritið sýnt f Klink og Bank. Maríanna úti-
lokar ekki að verkið verði jafnvel flutt út fyrir landsteinana. „Þetta er hrá og ein-
föld sýning og við erum auðvitað bara tvær að leika þannig að það er auðvelt að
uppfæra hana hvar sem er," segir Maríanna. f stórskemmtilegu spjalli sagði
Marfanna okkur frá innihaldi snyrtibuddunnar sinnar.
Guðmundur Bragason þulur í Sjónvarpinu hefur líklega
starfað lengst allra þula. Guðmundur verður alltaf að hafa
nóg að gera og hefur nú hellt sér út í markaðsstarf fyrir
bandaríska símafyrirtækið Ubi fone.
„Ég verð alltaf að hafa nóg fyrir
stafni, það er það sem heldur mér
gangandi," segir Guðmundur Braga-
son sem íslendingar kannast við úr
Sjónvarpinu þar sem hann les fyrir
okkur sjónvarpsdagskrána. Guð-
mundur hefur starfað sem þulur í
Sjónvarpinu í tæp níu ár og er þessa
dagana eini karlinn í þessu kvenna-
veldi. „Ég datt inn í þetta starf fyrir
slysni. Ég sótd um sem fréttamaður
fyrir um níu árum síðan en fékk starf
sem þulur í kjölfarið," segir Guð-
mundur og bætir við að hann hafi
afar gaman af þessu starfi.
Lítur allt öðruvísi út í raun-
veruleikanum
„Ef ég hefði ekki gaman af þessu
væri églöngu hættur. Starfið er mjög
þægilegt og ég vinn með frábæru
fólki." Guðmundur neitar því að
hann setji sig í einhverjar ákveðnar
stellingar áður en hann birtist á
skjánum, svona komi hann einfald-
lega fyrir. Hann viðurkennir þó að
margir kannist við hann úti á götu
en segir fæsta vita hvaðan. „Sem
betur fer lítur maður allt öðruvísi út
í raunveruleikanum. Krakkarnir
mínir eru löngu hættir að taka eftir
því þegar ég birtist á skjánum enda
er þetta bara starf."
Frí símtöl
Starfið sem þulur er aukastarf
Guðmundar, en hann starfar sem
tryggingaráðgjafi hjá Alliance og er
nýbyrjaður að markaðssetja banda-
ríska símafyrirtækið Ubi fone. „Mér
var bent á þetta af félögum mínum
og leist vel á. Fyrirtækið stefnir á að
bjóða alltaf upp á lægstan taxta og er
eina fyrirtæki sem bíður upp á al-
þjóðlega lausn ásamt mörgum öðr-
um fídusum sem fólk hefur ekki séð
hingað til. Til dæmis er hægt að
senda svokallaðan hringihnapp með
tölvupóstinum. Þá getur sá sem fær
tölvupóstinn hringt frítt til baka úr
tölvunni. Þennan hnapp geta svo
fyrirtæki og einstaklingar sett á
heimasíður sínar til að auðvelda
viðskiptavinum sínum að hafa sam-
band."
Netsími er framtíðin
Guðmundur er bjartsýnn fyrir
hönd fyrirtækisins og hann segir
símaheiminn afar spennandi vett-
vang. „Þetta er það sem koma skal
enda er reiknað með að 75% símtala
muni koma í gegnum netið árið 2007.
Hérna eru miklar breytingar í gangi
og sími og net eru smám saman að
renna saman í eitt. Ég hef mikla trú á
því að þetta eigi eftir að verða mjög
stórt, það eru miklar svipdngar í
gangi í þessum heimi og ég tek
spenntur þátt enda hef ég gaman af
ögrunum, “ segir hann og bætir við að
það sé líka gaman að geta strítt hin-
um símafyrirtækjunum aðeins. „Ef
fólk vill kynna sér þetta betur hvet ég
það til að kíkja á heimasíðuna www.-
ubitel.ws og ef einhver hefur áhuga á
að markaðssetja þetta með okkur þá
er um að gera að hafa samband.
Miðað við viðtökurnar hingað tii
reikna ég með að þetta muni ganga
vel. Þetta er afar hentugt, sérstaklega
fyrir þá sem hringja mikið til údanda.
Allir meðlimir Ubi Fone hringja líka
frítt sín á milli og því fleiri sem nota
þetta kerfi því fleiri fri sfrntöl."
Gluggar í stjörnuspeki
Guðmundur þrífst greinilega
ekki nema hafa nóg að gera en
hann keppir einnig í keilu með fé-
lögum sínum. Hann hefur líklega
unnið lengst allra þula í sjónvarp-
inu og segir kannski tíma kominn
að kveðja. „Ég á örugglega eftir að
finna mér eitthvað meira að gera í
framtíðinni. Ég er bara þannig
gerður, þykir gaman að koma víða
við og taka þátt í ögrandi verkefn-
um. Kannski er þetta bara einkenni
bogamannsins," segir hann og við-
urkennir að hann hafi gaman af þvr
að glugga í stjörnuspeki þó hún
stjórni ekki lífi hans. Guðmundur
býr ásamt fjölskyldu sinni í Mos-
fellsbænum en hann er uppalinn á
Hellissandi á Snæfellsnesinu. „Ég
er Sandari í eðli mínu og stoltur af
því." indiana@dv.is
Þegar Jenný Jóakimsdóttir útskrifaðist með gráðu í alþjóða markaðsfræði vissi hún ekki hvað hún ætti
að gera. Hana dreymdi um að vera sinn eigin herra og í dag hefur sá draumur ræst. Jenný er umboðs-
maður fyrir Magic Tan sem hefur slegið í gegn út um allan
Brúnkuklefar eru framtíðin
„Ég var að leita að einhverju til
að gera og datt niður á þeria," segir
ienný Jóakimsdóttír umboðsaðili
fyrir brúnkuklefana Magic Tan hér á
landi. „Ég vil meina að brúnkuklefar
séu framtíðin, þeir hafa tekið við af
ljósabekkjunum. Þessir klefar eru
ofboðslega sniðugir, nú getur
maður farið inn í klefa og orðið
brúnn á einni mínútu."
Jenný er 36 ára tveggja barna
móðir. Árið 2002 kláraði hún
alþjóða markaðsfræði við Tækni-
háskóla íslands og vantaði eitthvað
að gera. Hún segir drauminn alltaf
hafa verið að gera eitthvað sjálf.
„Það kom alveg til greina að vinna
hjá einhverjum öðrum en það var
alltaf eitthvað í mér svo sagði mér
að gera eitthvað sjálf. Mig langaði
ekki að vera 9 tíl 5 manneskja og
bíða eftir launaseðlinum um mán-
aðarmótin. Ég á tvo stráka og þó það
geti stundum verið erfitt að sameina
móðurhlutverkið við bisnesinn þá
er ég þó frjálsari með þessu móti. Ég
hef líka svo margt annað að gera. Ég
er til dæmis félagi í JCI og er farin að
leiðbeina á námskeiðum þar. ICI er
félagsskapur fyrir fólk yngra en
fertugt og við erum alltaf að læra
eitthvað nýtt. Við förum á nám-
skeið, lærum aukið sjálfsöryggi og
ræðutækni," seg-
ir Jený og bætír
við að í framtíð-
inni sé rriarkmið
hennar að koma
brúnkuklefunum
á sem flesta
staði. „Þetta er
mjög stórt fyrir-
tæki í útlöndum og við stefnum á að
fá sem flestar snyrtistofur á landinu
til að bjóða upp á þessa þjónustu."
Jenný Jóakimsdóttir „Mig langaði
ekki að vera 9 til 5 manneskja og biða
eftir launaseðlinum um mdnaðamótin.
Eg d tvo strdka og þó það geti stundum
verið erfitt að sameina móðurhlutverkið
og bisnesinn þá er ég þó frjálsari með
þessu móti."