Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Helgarblað DV <íkt snu/*ti/mcuuinci Elskar rakakrem „Mér þykir mest til rakakrema koma af öllum snyrtivörum. Ég elska góð rakakrem sem eru með mildri lykt. Ég er nýbúin að klára eitt alveg frábært frá Lancome, það er bara svo dýrt að ég ætla að bíða þar til einhver fer til útlanda og getur keypt það fyrir mig í fríhöfn- Fyrsta púörið glatað „Ég átti púður frá Clinique sem vinkonur mínar úr leiklistarskólan- um gáfu mér og það var mitt fyrsta púður en ég týndi því þegar ég flutti svo núna á ég ekkert." Vill þurra maskara „Ég á þennan fína Max factor maskara, hann er þurr þannig að hann klessist ekki. Eg þoli ekki þeg- ar maskarar eru blautir og maður má ekki blikka augunum í lengri tíma eftir að hann er settur á.“ Gullfallegur augnskuggi „Ég fór síðasta sumar með Unni Stefáns dóttur vinkonu minni á snyrti- stofu þegar hún var að fara í brúnku sprautun fyrir Hárið. Meðan ég beið keypti ég þennan gullfallega græna augnskugga sem er ansi ólíkt mér en ég er ekki frá því að þetta hafi verið ein bestu kaup mín í langan tíma, nota hann oft og iðulega." Blýantur fyrir glataða púðrið „Ég fann þennan blýant frá Lancome þegar ég flutti, ég tel að hann haft komið í staðinn fyrir glataða púðrið og hef aðeins verið að leika mér með hann. Það gengur bara vel, gaman að prófa eitthvað nýtt." Ólffuolía allra meina bót „Það er algert búst fyrir húðina að nota ólífuolíu. Bera hana á sig og leyfa henni að vera í nokkra klukkutíma þannig að hún fari vel inn í húðina. Svo er hún ekki verri fyrir hárið, ég er með þurrar krullur og það er eins og besta djúp- næring að láta ólífuolíu í hárið og setja blautt handklæði yfir. Hollráð fyrir alla með þurrt hár.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla fslands árið 2003. Síðan þá hefur hún leikið í stuttmyndum og sjónvarpsmyndum. Hún lék í Hinum útvalda í leikstjórn Gunnars Helgasonar og var í sýningu sem sett var upp á Hótel Sögu svo fátt eitt sé nefnt þannig það hefur verið nóg að géra. Fyrir viku síðan frumsýndu Marfanna og Sólveig Guðmundsdóttir leikritið Kaktusmjólk en það er spuni sem unninn er upp úr nokkrum verkum. Þær stöllur eru meðlimir í leikfélaginu Kvenfélagið Garpur og er leikritið sýnt f Klink og Bank. Maríanna úti- lokar ekki að verkið verði jafnvel flutt út fyrir landsteinana. „Þetta er hrá og ein- föld sýning og við erum auðvitað bara tvær að leika þannig að það er auðvelt að uppfæra hana hvar sem er," segir Maríanna. f stórskemmtilegu spjalli sagði Marfanna okkur frá innihaldi snyrtibuddunnar sinnar. Guðmundur Bragason þulur í Sjónvarpinu hefur líklega starfað lengst allra þula. Guðmundur verður alltaf að hafa nóg að gera og hefur nú hellt sér út í markaðsstarf fyrir bandaríska símafyrirtækið Ubi fone. „Ég verð alltaf að hafa nóg fyrir stafni, það er það sem heldur mér gangandi," segir Guðmundur Braga- son sem íslendingar kannast við úr Sjónvarpinu þar sem hann les fyrir okkur sjónvarpsdagskrána. Guð- mundur hefur starfað sem þulur í Sjónvarpinu í tæp níu ár og er þessa dagana eini karlinn í þessu kvenna- veldi. „Ég datt inn í þetta starf fyrir slysni. Ég sótd um sem fréttamaður fyrir um níu árum síðan en fékk starf sem þulur í kjölfarið," segir Guð- mundur og bætir við að hann hafi afar gaman af þessu starfi. Lítur allt öðruvísi út í raun- veruleikanum „Ef ég hefði ekki gaman af þessu væri églöngu hættur. Starfið er mjög þægilegt og ég vinn með frábæru fólki." Guðmundur neitar því að hann setji sig í einhverjar ákveðnar stellingar áður en hann birtist á skjánum, svona komi hann einfald- lega fyrir. Hann viðurkennir þó að margir kannist við hann úti á götu en segir fæsta vita hvaðan. „Sem betur fer lítur maður allt öðruvísi út í raunveruleikanum. Krakkarnir mínir eru löngu hættir að taka eftir því þegar ég birtist á skjánum enda er þetta bara starf." Frí símtöl Starfið sem þulur er aukastarf Guðmundar, en hann starfar sem tryggingaráðgjafi hjá Alliance og er nýbyrjaður að markaðssetja banda- ríska símafyrirtækið Ubi fone. „Mér var bent á þetta af félögum mínum og leist vel á. Fyrirtækið stefnir á að bjóða alltaf upp á lægstan taxta og er eina fyrirtæki sem bíður upp á al- þjóðlega lausn ásamt mörgum öðr- um fídusum sem fólk hefur ekki séð hingað til. Til dæmis er hægt að senda svokallaðan hringihnapp með tölvupóstinum. Þá getur sá sem fær tölvupóstinn hringt frítt til baka úr tölvunni. Þennan hnapp geta svo fyrirtæki og einstaklingar sett á heimasíður sínar til að auðvelda viðskiptavinum sínum að hafa sam- band." Netsími er framtíðin Guðmundur er bjartsýnn fyrir hönd fyrirtækisins og hann segir símaheiminn afar spennandi vett- vang. „Þetta er það sem koma skal enda er reiknað með að 75% símtala muni koma í gegnum netið árið 2007. Hérna eru miklar breytingar í gangi og sími og net eru smám saman að renna saman í eitt. Ég hef mikla trú á því að þetta eigi eftir að verða mjög stórt, það eru miklar svipdngar í gangi í þessum heimi og ég tek spenntur þátt enda hef ég gaman af ögrunum, “ segir hann og bætir við að það sé líka gaman að geta strítt hin- um símafyrirtækjunum aðeins. „Ef fólk vill kynna sér þetta betur hvet ég það til að kíkja á heimasíðuna www.- ubitel.ws og ef einhver hefur áhuga á að markaðssetja þetta með okkur þá er um að gera að hafa samband. Miðað við viðtökurnar hingað tii reikna ég með að þetta muni ganga vel. Þetta er afar hentugt, sérstaklega fyrir þá sem hringja mikið til údanda. Allir meðlimir Ubi Fone hringja líka frítt sín á milli og því fleiri sem nota þetta kerfi því fleiri fri sfrntöl." Gluggar í stjörnuspeki Guðmundur þrífst greinilega ekki nema hafa nóg að gera en hann keppir einnig í keilu með fé- lögum sínum. Hann hefur líklega unnið lengst allra þula í sjónvarp- inu og segir kannski tíma kominn að kveðja. „Ég á örugglega eftir að finna mér eitthvað meira að gera í framtíðinni. Ég er bara þannig gerður, þykir gaman að koma víða við og taka þátt í ögrandi verkefn- um. Kannski er þetta bara einkenni bogamannsins," segir hann og við- urkennir að hann hafi gaman af þvr að glugga í stjörnuspeki þó hún stjórni ekki lífi hans. Guðmundur býr ásamt fjölskyldu sinni í Mos- fellsbænum en hann er uppalinn á Hellissandi á Snæfellsnesinu. „Ég er Sandari í eðli mínu og stoltur af því." indiana@dv.is Þegar Jenný Jóakimsdóttir útskrifaðist með gráðu í alþjóða markaðsfræði vissi hún ekki hvað hún ætti að gera. Hana dreymdi um að vera sinn eigin herra og í dag hefur sá draumur ræst. Jenný er umboðs- maður fyrir Magic Tan sem hefur slegið í gegn út um allan Brúnkuklefar eru framtíðin „Ég var að leita að einhverju til að gera og datt niður á þeria," segir ienný Jóakimsdóttír umboðsaðili fyrir brúnkuklefana Magic Tan hér á landi. „Ég vil meina að brúnkuklefar séu framtíðin, þeir hafa tekið við af ljósabekkjunum. Þessir klefar eru ofboðslega sniðugir, nú getur maður farið inn í klefa og orðið brúnn á einni mínútu." Jenný er 36 ára tveggja barna móðir. Árið 2002 kláraði hún alþjóða markaðsfræði við Tækni- háskóla íslands og vantaði eitthvað að gera. Hún segir drauminn alltaf hafa verið að gera eitthvað sjálf. „Það kom alveg til greina að vinna hjá einhverjum öðrum en það var alltaf eitthvað í mér svo sagði mér að gera eitthvað sjálf. Mig langaði ekki að vera 9 tíl 5 manneskja og bíða eftir launaseðlinum um mán- aðarmótin. Ég á tvo stráka og þó það geti stundum verið erfitt að sameina móðurhlutverkið við bisnesinn þá er ég þó frjálsari með þessu móti. Ég hef líka svo margt annað að gera. Ég er til dæmis félagi í JCI og er farin að leiðbeina á námskeiðum þar. ICI er félagsskapur fyrir fólk yngra en fertugt og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt. Við förum á nám- skeið, lærum aukið sjálfsöryggi og ræðutækni," seg- ir Jený og bætír við að í framtíð- inni sé rriarkmið hennar að koma brúnkuklefunum á sem flesta staði. „Þetta er mjög stórt fyrir- tæki í útlöndum og við stefnum á að fá sem flestar snyrtistofur á landinu til að bjóða upp á þessa þjónustu." Jenný Jóakimsdóttir „Mig langaði ekki að vera 9 til 5 manneskja og biða eftir launaseðlinum um mdnaðamótin. Eg d tvo strdka og þó það geti stundum verið erfitt að sameina móðurhlutverkið og bisnesinn þá er ég þó frjálsari með þessu móti."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.