Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Side 33
r
Helgarblað DV
LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 33
(/(fí/ftt*
S s /y/í y
( it/vmi/ui>
ekki meira en þá kom enn meira stuð í hóp-
inn þegar tengdapabbi fór að syngja gaman-
vísur svo það var brjálað stuð og tjúttað í
kjólnum fram eftir nóttu."
Um nóttina gistu brúðhjónin í sumarbú-
stað f eigu pabba Evu Lindar. „Þegar við
vöknuðum var búið að taka allar rósirnar úr
brúðkaupinu og klippa af þeim stönglana og
setja ofan í heita pottinn. Okkar beið því kaffi
og rósabað um leið og við fórum á fætur.
Þetta er alveg yndisleg minning en strákarnir
okkar tveir fengu að leiða mig upp að altar-
inu. Þeir voru náttúrulega út um ailt og stálu
eiginlega af okkur senunni og
gjömmuðu yfir prestinn en það tj^gpNpsí
var bara gaman af því. “ WimEká
„Ég var svo heppin að heyra af brúðar-
kjólaleigu sem var að hætta svo ég náði að
kaupa faUegan kjól á góðu verði," segir Eva
Lind Jóhannesdóttir en hún og Þröstur
Bragason gengu upp að altarinu þann 5. júni
í fyrra í Reykholtskirkju í Borgarfirðinum.
„KjóUinn var rosaiega flottur, hvorki með
slóða né slöri en allur perlusaumaður og sí-
gildur og ég er mjög ánægð með að eiga
hann,“ segir Eva Lind en hún og Þröstur eru
meðlimir í mótorhjólaklúbbnum Röftum í
Borgarnesi. Hjólaklúbburinn spilaði stórt
Uutverk þennan stóra dag og skapaði
skemmtilega stemningu. Mótorhjólagengið
mætti í fullum skrúða í kirkjuna og keyrði svo
á undan og á eftir brúðhjónunum í veislusal-
inn við mikinn fögnuð sveitunganna í Borg-
arfirðinum. Eva Lind segir bónorðið hafa
verið rómantískt. „Þröstur fór á hnéin og bað
mín á aðfangadagskvöld þegar börnin voru
sofnuð og við bara tvö ein. Brúðkaupsdagur-
inn var svo alveg frábær. Við fengum ótrú-
lega gott veður og frábæran mat. Þegar
klukkan var að nálgast 11 hélt ég að ég gæti
• uiuonjon..Kjollmn varroso-
lega flottur, hvorki med slúða né slöri
en allur perlusaumaður o g sígíldur
og ég er mjög ánsegd með að eiga
hann," segir Eva Und.
Öðruvísi stemning Mótorhjólagengið mætti
fullum skriiða í kirkjuna og keyrði svo á undan
og á eftir brúðhjónunum i veislusalínn við mik-
í inn fögnuð sveitunganna í Borgarfírðinum.
Skemmtilegur brúðkaupsdagur
Mótorhjólaklúbburinn Raftar tók virkan
þátt í að gera daginn sem eftirminni-
legastan fyrir Evu Lind og Þorstein.
Hl'-’ 4m?
Utla fjolskyldan Jóhanna Berglindoq
Magnús gengu I það heilaga í brjáluðu
veðri ájóladag. Hér eru þau ásamt Gunn-
ari Val og Agli Má stóra bróður hans.
Gifting í brjáluðu veðri á jóladag
„Þetta var einstaklega skemmtilegur dagur," segir Jóhanna Berglind Bjarnadóttlr en
hún og Magnús Sæmundsson gengu í það heilaga í brjáluðu veðri á jóladag. „Kirkjan átti
að vera klukkan 13.30 en færðist til klukkan 19 um kvöldið vegna veðurs. Þetta var mikið
ævintýri og spennan jókst bara með hverjum klukkutímanum," segir Jóhanna Berglind
þegar hún rifjar upp stóra daginn. „Við þurftum að berjast í gegnum snjóinn, í kirkjuna og
úr en það gerði daginn bara eftirminnilegri."
Systir Jóhönnu Berglindar er klæðsskeri og saumaði brúðarkjólinn handa Jó-
hönnu. „Hún bjó í Englandi og við hönnuðum kjólinn í sameiningu í gegnum tölv-
una en svo kom hún heim og lagði lokahöndina á hann með mig til staðar."
Jóhanna og Magnús eru bæði frá Akureyri en þau kynntust þegar hún tók
þátt í keppninni um Ungfrú Norðurland. Magnús var annar mannanna sem sá
um að leiða stúlkurnar upp á sviðið. „Við vorum líka í sömu vaxtarrækt og
kynntumst þar, síðan höfum síðan verið óaðskiljan-
leg,“ segir Berglind en hún og Magnús eru búin
að vera saman síðan í apríl 2001. Þau eignuðust
lítinn strák 25. nóvember sem var skírður
Gunnar Valur í sömu athöfn og auk þess á
Magnús 8 ára strák sem heitir Egill Már.
„Við erum búin að kaupa okkur fallegt
hús hér á Akureyri og erum alveg rosalega
ánægð. í framtíðinni mun Gunnar Val-
ur svo eignast yngra systkini en ekki
alveg stax. Hann er náttúrulega bara
3 mánaða en vonandi verður það í
framtíðinni ef guð og gæfan leyfir."
DV mynd Myndrún
__A________________