Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Side 40
40 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Helgarblað DV
fOYFRENb
Veislur eru sérfag Kökumeistarans.
Hversu stór, lítil eöa framandi ósk þín er
þá leggjum við okkur í líma við að uppfylla óskina.
Ertu að ferma?
Kíktu á www. kokumeistarinn. is eða hafðu
samband í síma 555-6655
Kökumeistarinn hefur í gegnum tíðina unnið til margra verðlauna
fyrir kökugerð hérlendis og erlendis.
Þú getur treyst honum fýrir veislunni þinni.
Verslun Kökumeistarans l Firði, Hafnarfirði er opin:
mánudaga til fóstudaga 8:00 - 19:00 laugardaga frá 8:00 - 17:00
sunnudaga frá 10:00 - 17:00
Tanja Sif Árnadóttir er útskrifaður við-
skipta- og markaðsfræðingur frá HA.
Hún hefur vakið athygli fyrir módelstörf
gegnum tíðina en núna er hún að undir-
búa umsókn sína í Listaháskóla íslands
en draumurinn er að komast í fatahönn-
un. Það sem fæstir vita er að Tanja er
húðflúruð víða um líkamann. Hún leyfði
okkur að kíkja á tattúin og sagði okkur
söguna á bak við þau.
„Ég fékk mér fyrsta tattúið mitt
þegar ég var að verða 17, þá fékk ég
mér á ökklann," segir Tanja Sif en
síðan hefur hún fengið sér fjögur
tattú í viðbót, á hnakkann, aftan á
hálsinn, á mjóbakið og undir iiina
sem er það nýjasta. Aðspurð að því
hvort hún sjái eftir einhverju af þeim
segist hún alls ekki gera það. „Ég sé
ekki eftir neinu þeirra en ef ég á að
nefna eitt þá verð ég að segja það
sem ég fékk mér í Bandaríkjunum,
það var bara svo illa gert en ég hef
látið laga það svo ég er ánægð með
það í dag." Hvað sársaukann varðar
er Tanja ekki í vafa um það hvað var
verst. „Það sem ég fékk mér á hnakk-
ann var alveg hræðilega vont, það
var eins og verið væri að bora ein-
hverju lengst í hausinn á mér. Fyrsta
tattúið var líklega sársaukaminnst,
ég man ekki eftir að hafa fundið
neitt sérstaklega fyrir því,“ segir
Tanja.
Deitar bara krabba
Stærsta tattúið hennar er mynd
af krabba á mjóbakinu en hún er
krabbi sjálf. „Ég fékk mér krabbann
sem er á flmmtíukalhnum. Svo tók
ég líka meðvitaða ákvörðun ekki alls
fyrir löngu að deita bara menn sem
eru krabbar og ég hef staðið við það.
Kærastinn minn, Börkur Hrafh Birg-
isson er til dæmis krabbi," segir
Tanja og tekur fram að henni þyki
mjög vænt um öll tattúin sín. „Mér
Goðið Þengur Fyrsta tattúið hennar, nett
rún á hægri ökkla
Annar krabbi Þetta merkir krabbann en að
sögn Tönju var þetta virkilega sársaukafuilt
Jarðarber Nýjasta tattúið, iítið og sættjarð-
arber undir ilinni.
þykir fallegast að vera með listræn
og smekkleg tattú og mér finnst mín
tattú öll flokkast undir það, þau eru
ekki of stór eða flókin. Annars er ég
ánægð með alla staðina sem ég hef
valið, ég get hulið þá en þeir eru
heldur ekki á einhverjum huldum
stöðum sem enginn sér nokkurn
tímann. Ég get vel hugsað mér að fá
mér fleiri í framtíðinni," segir hún
og bendir á að það séu vissir for-
dómar í þjóðfélaginu í garð þeirra
sem eru með stór og mikh tattú.
Lukka sem fylgir tattúunum
„Ég hef ahtaf verið með ein-
hverjum þegar ég hef fengið mér
tattú, ég var til dæmis með systur
minni þegar ég fékk mér fyrsta
tattúið og mömmu þegar ég fékk
mér á hnakkann og það nýjasta á il-
inni fékk ég mér með með írisi Ann
vinkonu minni svo þau öll skipta
mig miklu máli," segir Tanja en öll
tattúin hefur hún fengið sér á orku-
staði líkamans. „Eitt af tattúunum
er rún sem merkir goðið Þengur og
annað er Auga Ra sem táknar eg-
ypska sólguðinn Ra. Ég trúi því að
þau tvö hafi alltaf veitt mér mikla
gæfu og lukku gegnum tíðina," seg-
ir Tanja og bætir við að lokum að
henni finnist sumir krakkar í dag fá
sér tattú ahtof snemma, ungir
krakkar hafi ekki þroska í að velja
sér eitthvað sem mun fylgja þeim
alla tíð.
Fimmtíukallskrabbinn Tanja erkrabbi og
deitar bara menn sem eru krabbar.
Auga Ra Tákn egypska sólguðsins hefur
verið Tönju til heilla.