Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Helgarblað DV
Borg fyrir bíla
Um daginn talaði á ráðstefnu hjá
Verkfræðingafélaginu Bandaríkja-
maður sem heitir Scott Rutherford.
Verkfræðingarnir íslensku sátu op-
inmynntir og hlustuðu á þennan
kunna sérfræðing segja að það vanti
ekki fleiri umferðarmannvirki hér í
Reykjavík. Umferðin hérna sé ekkert
vandamál. Verkfræðingar ættu að
hætta að leita lausna á ímynduðum
umferðarvandamálum.
•* ^
Útþenslumörk borgar
Rutherford lýsti reynslunni frá
heimaborg sinni, Seattle, sagði að
þar væru menn löngu hættir að
byggja ný umferðarmannvirki. Þar
mótmæltu íbúarnir mislægum
gatnamótum og hraðbrautum.
Borgararnir Seattle hafa gert sér
grein fyrir að þeir hafa ekki efni á að
þenja út gatnakerfið meira en orðið
er - þeir rétt ná að halda við því sem
fyrir er. Þannig hefur Seattleborg
sett sér það sem kallast „growth
boundary" - útþenslumörk - það er
dreginn hringur kringum borgina og
ákveðið að ekki skuli byggt utan
hans. Innan hringsins er lögð
áhersla á að bæta almenningssam-
'göngur og íbúarnir hvattir til að
ferðast ekki einir í bflum.
í Bandaríkjunum er almenn sóun
og eyðilegging á náttúrunni slík að
menn eru loks að vakna til vitundar
um umhverfisáhrif borga - það sem
heitir „urban sprawl." Borg sem
þenur sig út um allar grundir er talin
vandamál. Henni fylgir óskapleg
orkusóun, bruðl með dýrmætt land
og óhófleg eyðsla á tíma borgar-
anna.
Egill Helgason toíKÉ
skrifar um
skipulagsmál í *
Reykjavík jb
Laugardagsk j allar i
Við getum skoðað borgarbyggð-
ina á suðvesturhorni íslands í þessu
samhengi. Eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd hefur útþensla borg-
arinnar verið óskapleg, miklu meiri
en íbúafjöldinn kallar á. íbúafjöld-
inn hefur íjórfaldast en landþörfin
fertugfaldast. Ef fer sem horfir er
ekki langt í að almennilegt bygg-
ingaland á svæðinu verði uppurið -
þá erum við farin að byggja lengst
uppi á heiðum eða í rokinu á Kjalar-
nesi.
Múlbundnir þingmenn
Nú í vikunni fór fram umræða
um Reykjavíkurflugvöll á Alþingi.
Eins og venjulega hættu fáir sér til að
tala fyrir þeirri hugmynd að hann
verði látinn fara. Tveir þingmenn frá
Suðurnesjum sem vilja af byggða-
pólitískum ástæðum fá innanlands-
flugið til Keflavíkur fóru í pontu - sá
eini sem hélt ræðu af þingmönnum
Reykjavíkur var Helgi Hjörvar.
Ungum sjálfstæðisþingmanni varð
að orði meðan umræðan stóð yfir að
þarna töluðu bara þeir flokksfélagar
hans sem búa lengst frá þessu
svæði. Ég verð að geta mér til hvers
vegna hann stóð ekki upp sjálfur -
flokksaginn er jú býsna sterkur í
Sjálfstæðisflokknum.
brostinn í liðið? Það virðist vera að
borgin láti hérumbil allt en fái ekkert
í staðinn. Það er talað um að fækka
flugbrautunum; Steinunn Valdís
kynnir það sem einn kost samkomu-
lagsins að hægt verði að notast við
flugbraut. Svo kemur Sturla Böðv-
arsson upp í þinginu fáum dögum
síðar og segir að ekki sé hægt að
komast af með færri flugbrautir.
Hverju á maður að trúa?
Höndin étin af
Einn borgarfulltrúi orðaði það
svo við mig að það væri varasamt að
rétta þessu liði fingur - menn kæmu
út úr því með hálfétna hönd. Heim-
ildamaður sem hefur fylgst með
undirbúningi samgöngumiðstöðv-
arinnar tjáir mér að það hefði komið
mest á óvart hversu meðfærilegur
borgarstjórinn var í samningunum.
Viðsemjendurnir hefðu búist við því
að hún seldi sig miklu dýrar, enda
væri þeim fullvel í ljóst hversu bygg-
ingarétturinn í Vatnsmýri er verð-
mætur.
Talnabrellur
Eitt af því sem er sérlega óheppi-
legt í þessu máli er hversu upplýs-
ingarnar eru alltaf lélegar - maður
getur í raun engu treyst. í skýrslunni
um samgöngumiðstöðina er reynt
að fela hversu óhagkvæm hún er.
Þetta er kynnt sem einkafram-
kvæmd - þá er kannski ekki eins
áberandi hversu fáránlega kostnað-
arsamt fyrirtækið er. Samt er ekki
hægt að leyna því að ríkið mun þurfa
að greiða hundruð milljóna með
samgöngumiðstöðinni. Einkaaðilar
sem eiga að reka þetta munu þurfa
að fá mikla meðgjöf.
Við höfum oft fengið að kynnast
ómerkilegum brellum af þessu tagi.
í bæklingi sem flugmáiastjórn og
samgönguráðuneytið gáfu út stuttu
fyrir flugvallarkosninguna 2001 var
því haldið fram að 750 þúsund far-
þegar myndu fara um Reykjavíkur-
flugvöll árið 2020. Þessar tölur voru
hreinn skáldskapur. Á sama hátt
hefur þurft að ýkja farþegafjöldann í
tengslum við byggingu samgöngu-
miðstöðvarinnar þegar staðreyndin
er sú að farþegarnir eru nú um 1000
á dag. Ekkert bendir til annars en að
þeim muni enn fara fækkandi -
aðallega af þeirri einföldu ástæðu að
íbúafjöldi á landsbyggðinni er að
dragast saman. Fólksfækkunin er
meira að segja einna mest á stöðum
sem er flogið reglulega til, Vest-
mannaeyjum og ísafirði.
Rakalítið og yfirborðskennt
Það er erfitt að ræða mál á þess-
um nótum. Undireins og stungið er
upp á einhverjum lausnum - eins og
til dæmis að koma upp litlum flug-
velli utan við bæinn eru fundin á því
öll tormerki. Sveinn Guðmundsson
heitir maður sem eftir „áratuga
verkfræðistarfsemi" á Keflavíkur-
flugvelli skrifar ágætar greinar um
skipulagsmál í Morgunblaðið.
Sveinn ræðir um hversu erfitt er að
fá upplýsingar um flugtæknileg at-
riði sem þó eru notuð þegar þarf að
skjóta niður hugmyndir. I framhaldi
af þessu nefnir hann dæmi um
hversu „rakalítil og yfirborðskennd"
umræðan er. Hann skrifar að þegar
flugmálastjóminni henti séu hliðar-
vindmörk sögð vera 13 hnútar, en
telur eftir starf sitt á Keflavíkurflug-
velli að Fokkerflugvélar í innan-
landsflugi þoli allt að 26 hnúta/klst
þvert á flugstefnu.
Ég ætla ekki að þykjast hafa vit á
flugtækni, en þetta vekur efasemdir
um þá talnaleikfimi sem er stunduð.
Eins og amerískar bílaborgir
Nú er lagt til að ráðin verði bót á
húsnæðiseftirspurn í borginni með
því að útdeila lóðum í Geldinganesi
og Gunnunesi - við stefnum óðfluga
upp á Kjalarnes. Hin dreifða borg
mun enn breiða úr sér - á meðfylgj-
andi skýringarmynd má glöggt sjá
hvert við stefnum. Það er líkast því
að tíminn sem fólk eyðir í bflum sín-
um á leið milli staða skipti engu
máli.
Þéttleiki byggðarinnar í Reykjavík
stefnir í að verða álflca mikill og í
mestu bflaborgum Ameríku. Við get-
um nefnt sem dæmi Los Angeles.
Hún er svo dreifð að talið er að með-
alíbúinn þar eyði fimmtán sólar-
hringum á ári í bfl á leið til og frá
vinnu, ef ekki er tekinn inn í mynd-
ina annar akstur.
Unga fólkið í úthverfin
I slíkri borg er óhugsandi að
byggja umferðarmannvirki sem full-
nægja kröfum borgaranna - það er
ekki til landrými og samfélagið
stendur einfaldlega ekki undir því.
Almenningssamgöngur verða ónot-
hæfar eða leggjast af. í Los Angeles
hafa bflaframleiðendur raunar með-
vitað grafið undan almenningssam-
göngum. Það er enginn valkostur við
bflinn - en um leið er næstum
ómögulegt að komast sína leið á
honum. Þetta er vítahringur sem
ógjörningur er að komast úr.
Hér í höfuðborginni virðist stefn-
an vera sú að hola unga fólkinu nið-
ur langt fyrir utan bæinn, lfkt og
menn séu ekki enn farnir að skilja að
það eru lífsgæði að búa nálægt skól-
anum sínum eða vinnunni. Maður
gæti haldið að hin frumstæða bif-
reiðadýrkun sé slík að það sé álítið
spennandi að vera í eilífum bfltúr.
Lífsgæði að láni
Hér þurfum við þó ekki að eiga
við annan vanda sem herjar í borg
eins og Los Angeles. Hið ofboðslega
vonda loft. Eina ástæðan er raunar
sú að hér blæs mengunin á haf út.
Útblásturinn héðan fer út í and-
rúmsloftið rétt eins og í LA. Það hlýt-
ur að standa upp á okkur að sýna
ögn meiri ábyrgðarkennd - er ekki
talið að gróðurhúsaáhrif geti valdið
einna mestum spjöllum hér á norð-
urhveli jarðar? Við sjáum jöklana
beinlínis bráðna fyrir augunum á
okkur. Viðsnúningur Golfstraums-
ins er hrollvekjandi tilhugsun í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Þetta er ekki flókið dæmi: Við
erum að taka eitthvað sem við met-
um sem lífsgæði að láni frá komandi
kynslóðum, börnunum okkar. Við
erum lflca að taka frá íbúum fátækari
landa - í þeim skilningi að ef þeir
tækju upp svipaða lífshætti og við
myndi fljótlega blasa auðlindaþurrð
og óviðráðanleg mengun. Þetta ger-
um við meðal annars vegna þess að
við erum orðin háð bflaflota sem sí-
fellt stækkar og bifreiðum sem verða
stærri og stærri? Hvað varð um lexí-
ur olíukreppunnar? Áttu bflarnir
ekki að minnka, ganga fyrir nýjum
orkugjöfum? Hversu lengi lifum við í
svona lygasögu áður en við horfum
fram á almenna hnignun?
Skammsýnir stjórnmálamenn
Það er talað um að einn hluti
vandans séu stjórnmálamenn sem
ekki geti séð stórt samhengi hlut-
anna, hugsi bara í kjörtímabilum.
Raunar er til kenning um að póli-
túcusar hugsi einungis í níutíu daga
tímabilum - ef þeir geti sloppið heil-
ir í gegnum níutíu daga í senn séu
þeir ánægðir. Eftir á að hyggja dáum
við samt pólitíkusa sem taka erfiðar
ákvarðanir, segja óþægilegan sann-
leika. Churchill er hetja, Chamber-
lain fáráðlingur.
Svikin umhverfisstefna
Annars eru þetta ekki tíðindi, hér
á landi er búið að setja þetta allt nið-
ur í Staðardagskrá 21 sem er eins
konar umhverfisstefna fyrir sveitar-
félögin. Þar voru fyrirheit um minni
akstur og bætta nýtingu lands.
Henni er bara ekki fylgt. Eins og er
virðast menn ætla að sættast á að
prumpa niður byggingum kringum
flugvöllinn án skipulags, allt í stfl
iðnaðarhverfa, umkringt bflastæð-
um og túnbleðlum. Byggja svo íbúð-
arhúsnæði lengst fyrir utan bæinn.
Þannig verður fljótlega búið að
klúðra öllu skipulagi í höfuðborg-
inni.
Ég talaði í upphafi greinarinnar
um Scott Rutherford, verkfræðing-
inn frá Seattle. Lykilorðið í máli hans
var landnýting, ekki meiri sóun -
„smart growth", „growth mana-
gement", „transportation plann-
ing". Við eigum að skilja oddvitana í
borginni eftir, röflandi í sínum um-
ræðuþætti og fara að tala um al-
mennilegar hugmyndir.
STJÓRNLAUS OTÞENSLA BYGGÐAR FRÁ1940
FRÁ1940 TIL 2000 FJÓRFALDAÐISTIBÖAFJÖUDI
Á SAMA TlMA FERTUGFALDAÐIST LANDÞÖRFIN
1
S
~9~
I
9
B
B
e i I
b I a
a B R
• B 8
• B *
• 8 8
• -!“»
sg§jgi
«. i i m's i *
I 1 jil i j! í| ! ííl aiil if
Stórsóknarfórn
borgarstjóra
Maður er enn
að melta sam-
komulag Sturlu
Böðvarssonar og
Steinunnar Valdís-
ar Óskarsdóttur
um flugvöllinn.
Ein skömmin er
náttúrulega að
þetta skyldi kom-
ast upp þegar því
var lekið í frétt-
irnar á Stöð 2.
Hvenær stóð til að
kynna samninginn
fyrir borgarbúum?
Steinunn hefur að
vísu reynt að halda
því fram að þetta
sé „minnisblað" -
þeir sem hafa lesið
plaggið fá samt
ekki betur séð en
að það sé bona
fide-samningur.
Hvað á maður
svo að kalla þettg:
Skipulagt undan-
hald? Stórsóknar-
fórn? Flótta sem er
Brúttóþéttleiki byggðar - helsta kermistærð í skipulagi borga
H&fu6bnrain 2024 svtsöitítipdafl Sl 2024 14(búar/ha HO{uK»igh2003 16 Ibfa/ha Evríjwknr botflir2003 eoibdar/ha Bercsfana 2003 225(400)íbð3f/ha
• ♦ © © ) © © ♦ © « « « • « © i • « © Rncncnnncoonncn
© © • © © « ; O « • nnrinnnnnnnnnnnn
• © © © © ♦ • « © « © « 2 « © © nncnnnnnnncnnnn
• • « © © T © • « cncnnanncacnncn
O © © © : © © © cnnnnnnnnnnnnnn
• • © * • © © « • l ' © • o © ♦ cnnnnnnnnnnnnon nnnnnnnnnnnnnnn
© « • « • © • nnnnnnnrínnnnncn
• • © • © • © o © • © © © ♦ i © « □□DDaDDUanDQOIjO
© « « • © 2 © o nnnnnnnnnnnnnnn nnnnnnnnnnnnnnn
fteslð, bfðun ti vaatura oMpulegiUlsga 02020 231búar/ha L£gmcytedjeidi íbúa á hsklara tsvo öádsr öinnúnningfiöcmgör^ur þrTflEt 60 fbúary ha 101 Ræyfcjavlk 2003 TOBúar/ha RayKJsvIk 1040 170 Ibtor/ha
• © © © © • © © © © « • © « • • « © © • nnonnnnnnnnnn anonnannnnana
• « © © © © © © © © © ft © « « © © « « « □aoaaaannnann
© « « V « • © « nnnnnnnnnnnnn
" aanaaaaaoaaaa
© © © © © © © « © « © © © « • •
« • • €> © ♦ © • © © © « « © © O • © © © aaoaaaaaaaaaa
© 0 © © © © © © © © « © « • « © O ♦ « « « □□Döonnnnnncn
© © & © © « « « © « ♦ © © « « 0 DnanaaanaDana
« « © • © « © © « nnnannnnnnnnn
« © © ©
© © © © © © © « © © « « • aonnanoaaanna aaDnaanaaaana
BrtUóþéffloWbrtBaiu-af íin haferto kannístíafa 1 «Mpulagl boitja Ham ermæWurl DútoalbQe áhvomha. btUalld hafcrafgorard ihrifí ulll H ö F UÐ BORGARSAMTÖKI f IBúg btofl bafgnrbúö. 1 nbjálli byppð flyst I vereknamlMGðvar. Sldpiiafl áhrilá t/nahag tbiinnna, hnihuþolrra oruallífflslðlrlBngar. eiunchmllurr/rir byppiSarinnnr mifiiut við þariir biMns. og mannlngu. Blteamlálsaie heiur net nhstrl almwinlnauamsangna bnratur Vttthrtngur bllatamMlrvehs bHnar 6 HvssS ðhrif a iweld og msnntun yngrt db ýmlsa hatðbundn, daglas Hðnuste ðlu mannlltl af tUUum þunoa, hsttr 111 kyratðða. v»Mur fltrhflu og shangnxi. 1 - ORN SiGURÐSSON ARKITEKT - 561 0683 - 822 0683 arkom@talnetiS - Aprfl 2003