Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Page 61
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 61
Eddie Izzard
Broadway
Miðvikudaginn 9. mars 2005
Uppistand
Ég eins og margir aðrir hafði ekki
hugmynd um hver Eddie Izzard var
þegar hann kom hingað til landsins
fyrst íyrir um átta árum. Eftir það sá
maður hann bara á sjónvarpsskján-
um og hann briUeraði alveg sem
grínistí. Stíllinn hans er alveg einstak-
ur og hef ég aldrei áður séð annað
eins. Hann vakti fyrst athygli sem
klæðskiptingur en sem betur fer hef-
ur sú staðreynd verið sett í aftursætíð
enda er bara svo mikið sem hægt er
að gera grín að því.
Ég var fljótur að fá mér miða á
fyrra kvöld grínistans enda ætlaði ég
ekki að gera sömu mistök aftur.
Margir hafa haft sömu hugmynd
enda húsið alveg stappað.
Ég mættí rétt fyrir m'u og sá þá
strax hversu illa Broadway hentar fýr-
ir svona sýningu. Ef maður er niðri þá
byrgja fjölmargar súlur manni sýn og
svo var sviðið nánast fyllt af fólki
þannig að allir þeir sem sám fyrir
Eddie Izzard Það besta við uppistands-
sýningu hans á Broadway á miðvikudags-
kvöldið varþegar hann ræddi um hasar
klæðaskiptinga og Svarthöfða ikaffiteri-
unni f Dauðastirninu.
neðan sviðið sjá ekki rass-
gat. Reynt er að bæta úr því með því
að hafa skjái beggja vegna sviðsins en
þeir virkuðu varla og slokknaði og
kviknaði á þeim til skiptís með reglu-
legu millibili. Mjög pirrandi.
Sem betur fer var biðin eftír hetj-
unni ekki löng. Þorsteinn Guðmunds
og Pétur lóhann voru fengnir til að
hita upp liðið en voru svo stutt að
það tók því varla. Svo steig lagsi á svið
við mikinn fögnuð áhorfenda og
byrjaði gamanmál sitt. Hann hélt sér
við nýtt efhi að ég held, en ég hafði
ekki heyrt neitt af þessu áður. Hann
talaði um Þorskastríðið, dýr sem
mættu missa sín, hasar klæðaskipt-
inga og Svarthöfða í kaffiteríunni í
Dauðastiminu sem var tvímælalaust
það besta í sýningunni. Izzard briller-
ar alveg I samtölum við sjálfan sig og
hvemig hann getur farið frá einum
brandara í annan og aftur til baka
þannig að allt virðist vera ein saga.
Maður liló alveg stanslaust frá
byrjun til enda en ég bjóst við að mig
myndi verkja í andlitíð eftir sýning-
una. Svo var ekki. Dýrapælingamar
vom sennilega veikastí hlekkur sýn-
ingarinnar en þær vom einnig þær
lengstu. Ég hef sennilega verið með
of miklar væntingar til kvöldsins en
maður hefur bara séð of mikið af
hans bestu atriðum á DVD og maður
bjóst við einhveiju af því. En ég sé
ekki eftir því að hafa fengið mér
miða. Ómar öm Hauksson
X