Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 11
ísland fínt
fyrir viðskipti
ísland lendir í 9. til 10.
sæti af 150 ríkjum í saman-
burði á viðskiptaumhverfi.
Þetta kom fram á hádegis-
verðarfundi Verslunarráðs
og viðskiptaþjónustu utan-
ríkisráðuneytisins í dag, þar
sem fjallað var um skýrsl-
una „Doing Business“.
Skýrslan sem urmin er af
Alþjóðabankanum í sam-
vinnu við VÍ og VUR gerir
góð skil á viðskiptaum-
hverfi 150 ríkja víða um
heim. Úttekt er gerð á mik-
ilvægum þáttum í við-
skiptaumhverfi viðkomandi
ríkja og tekur mið af laga-
legu tunhverfi og áhrifum
þess á viðskiptalífið.
Ónýt barna-
kerra í Eyjum
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum hefur átt frekar ró-
lega viku. Þó var tilkynnt -
um ein eignaspjöll á
Eyjunni í viktmni. Var JL
það barnakerra sem JB
skemmd var þar sem JSv
hún var í kerru-
geymslu við Kirkju- ™
gerði. Einhverjir ákváðu að
taka kerruna sem síðar
fannst við Hamraskóla og
reyndist hún þá vera ónýt.
Málið er í rannsókn hjá lög-
reglu og eru engar vísbend-
ingar um hver hafi verið að
verki. Þeir sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um
hver þarna var að verki eru
vinsamlegast beðnir að
hafa samband við lögreglu.
Kajakar
bannaðir í
Elliðaánum
Orkuveita Reykjavíkur
hefur ákveðið að banna
kajakróður hverskonur á
Elliðaánum. í bréfi frá
Orkuveitunni til Kayak-
klúbbsins segir að bannið
taki gildi nú þegar auk þess
sem Orkuveitan sendi afrit
af bréfinu til lögreglunnar.
Þorsteinn Guðmundsson,
formaður Kayakklúbbsins
segir þessa ákvörðun óskilj-
anlega þar sem lög landsins
heimila siglinga á öllum ám
landsins. I svarbréfi Þor-
steins biðlar hann til félags-
manna Kayakklúbbsins um
hjálp í þessu erfiða máli.
Reiðir kajak-
menn
Ákvörðun
Orkuveitunnar
hefur vakið mikla
reiði meðal fé-
lagsmanna
Kayakklúbbsins. Á heima-
síðu klúbbsins segjast fé-
lagsmenn tilbúnir að láta
reyna á bannið og mæta
lögreglunni ef svo ber und-
ir. Aðrir taka ekki eins
sterkt til orða og benda á
að rannsóknir sýni að
kajakróður sé ekki skaðleg-
ur fiskistofninum í ánni.
Orkuveitan á veiðiréttinn í
Elliðánum og heldur ffarn
því gagnstæða; að kajak-
róður geti haft áhrif á fiski-
stofninn. Deilan um Elliða-
árnar virðist í hnút.
Agnes Bragadóttir fær ótrúleg viðbrögð við hugmynd sinni um félag almennings sem
geri tilboð í Símann. Yfir Agnesi rignir tölvupósti þar sem fólk fagnar frumkvæðinu. Er
hún kölluð „refsivöndurinn“ og „þjóðarsamviskan“. Orri Vigfússon athafnamaður segir
framkvæmdina gerlega og hyggst annast hana.
Sauðsvarlur almúginn
fylkir sér um Agnesi
Agnes Bragadóttir má heita, sem viðskiptaritstjóri Morgun-
blaðsins, heldur ólíklegur byltingarleiðtogi. En ákall hennar í
viðhorfsgrein Moggans undir fyrirsögninni „Halló! Halló! Vakn-
ið, íslendingar!" hitti heldur betur í mark.
Agnes Bragadóttir segir sér
blöskra hversu mjólkurkýr í þjóðar-
eign hafa verið færðar sérvöldum
einstaklingum fyrir slikk í anda
einkavæðingar. Megi þar nefria Sfld-
arverksmiðjur ríkisins, Áburðarverk-
smiðjuna, bankana og jafnvel fiski-
miðin.
Agnes sér fyrir að hið sama sé að
gerast núna þegar selja eigi Símann.
Hún kemur fram með þá hugmynd
að stofnað verði félag af almenningi
á íslandi til að gera tilboð í stóran
hluta Símans.
Viðbrögðin eru ótrúleg. Athafn-
armaðurinn Orri Vigfússon hefur
tekið að sér að ganga í málið.
Marktækur kjölfestuhópur
skapaður
Þegar DV náði tali af Agnesi í gær
hafði hún ekki haft vinnufrið því
tölvupóstum rigndi yfir hana og
símtölum - hlutafjárloforð nema nú
þegar 20 milljörðum. „Við þurfum
að finna sérfræðinga og fjármála-
stofnanir til að athuga hvort þetta er
gerlegt," segir Agnes.
Flestir fjölmiðlar hafa fjallað um
máfið með einum eða öðrum hætti.
í hádegisfréttum útvarps sagði
Jafet Ólafsson að þetta væri vel ger-
legt. Og Orri Vigfússon segist, í sam-
tali við DV, ekki hafa nokkrar efa-
semdir um að svo sé.
Almenningur græði líka
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að
þetta er gerlegt. Vera kann að eitt-
hvað, sem ég ekki þekki hvað er,
gæti staðið í vegi. En í dag og á
morgun munum við halda fundi
með sérfræðingum og þá liggja línur
ljósar fyrir. Hvernig þetta verður
best framkvæmt," segir Orri.
Brynjólfur Bjarna
son forstjóri Sím-
ans Ljóst erað ef
fram fersem horfir
verður fyrirtækið ekki
fsert valinkunnum
vinum ríkisstjórnar-
innar á silfurfati.
—
Fyrr er ekki hægt að greina frá því
hvernig framkvæmdin verður. „En
við stefnum að því að í fyrstu um-
ferð, þegar útboð fer fram, þá fái
almenningur að fullu að taka þátt
eða hlutfafislega og njóta ávaxtanna
strax. Ekki að bíða þess í tvo til þrjú
ár að gengið jafhvel þrefaldist. Við
erum að safna liði til að vera gjald-
gengir þátttakendur og ætlum að
skapa marktækan kjölfestuhóp,"
segir Orri.
Talað hefur verið um að Síminn
muni kosta um 60 milljarða.
Þjóðarvakning gegn einka-
vinavæðingu
Agnes er agndofa yfir hinum
gríðarlegu viðbrögðum sem hún
segir afskaplega skemmtileg. í póst-
um sem hún fær er hún kölluð
„refsivöndurinn" og „þjóðarsam-
viskan“... „Já, og ég veit ekki hvað. Ég
á nú kannski ekki þessar nafngiftir
skifið en mér berst nú tölvupóstur
frá sauðsvörtum almúganum, sér-
fræðingum, hagfræðingum, lög-
mönnum, kennurum, afgreiðslu-
fólki, verkamönnum... Já, fólk er
búið að fá nóg. Sú hlýtur að vera
ástæðan fyrir því að viðhorf mitt
hittir svona í mark,“ segir
hún.
Svo virðist sem hér sé
verið að leggja drög að
þjóðarvakningu, að al-
menningur rísi upp til að
mótmæla því að verðmæti
í þjóðareign séu seld á út-
sölu. „Þetta gæti orðið
þjóðarvakning," segir Agnes. „Þessi
viðbrögð eru með ólíkindum. Og ég
hef aldrei upplifað annað eins."
jakob@dv.is
Orri Vigfússon At-
hafnamaðurinn hef
urtekiðaðsérað
hrinda þeim áform-
um i framkvæmd að
stofna almennings-
félag sem myndar
marktækan hóp
kjölfestufjárfesta.
Agnes Bragadóttir
Yfir hana rignir nú
tölvupósti þar sem fólk
tekur undir með hug-
myndum hennar. Er
Agnes ýmist kölluð
„refsivöndurinn " eða
„þjóðarsamviskan“ - i
afar jákvæðri merk-
ingu.
Lífeyrissjóðsmaðurinn áréttar orð sin
Sjóðsfélagar líkt og varnarlaus dýr
„Það má segja að ég hafi átt við
glæpsamleg vinnubrögð samein-
aða lífeyrissjóðsins en ekki allra
lífeyrissjóða í landinu," segir Jens
Elíasson verkamaður sem kært
hefur lífeyrissjóðinn vegna millj-
óna starfslokasamnings Jóhannes-
ar Siggeirssonar.
Jens sagði í DV á mánudaginn
að um glæpagengi væri að ræða
sem léki sér með lífeyrissjóði
landsmanna en átti þar einungis
við sameinaða lífeyrissjóðinn.
Engu að síður er Jens ósáttur
með stjórnir lífeyrissjóða í land-
inu.
„Sjóðsfélagar lífeyrissjóða eru
eins og varnarlaus dýr innilokaðir í
krókódílagarði þar sem stjórnir
sjóðanna eru krókódílarnir," segir
Jens og spyr hvað stjórnvöld ætli í
raun og veru að gera. „Þetta er
spurning um lýðræðislegar stjórn-
ir lífeyrissjóða og stjórnvöld verða
að gera eitthvað svo trúverðug-
leika lýðræðisins verði ekki
hnekkt."
í þessu sambandi nefnir Jens að
menn virðist geta dælt út tugum
milljóna á kostnað lífeyrissjóða
sem eru gjörsamlega varnarlausir.
„Það hefur verið farið illa með fé
lífeyrissjóða í gegnum árin og fjöl-
mörg dæmi sína að menn hafa
verið að braska með fé sjóðsfélaga
sem geta ekkert gert," segir Jens og
bætir við:
„Lífeyrissjóðir eru ekkert annað
en barn síns tíma. Það hljóta að
vera til aðrar aðferðir fyrir fólk til
þess að festa lífeyrisfé sitt á örugg-
ari máta."
Hvattur í vara-
formanninn
Framkvæmdastjórn Ungra
jafnaðarmanna, ungliðahreyf-
ingar Sam-
fylkingarinn-
ar, sendi í
gærfrásér
fréttatilkynn-
ingu þar sem
Ágúst Ólafur
Ágústsson al-
þingismaður
er hvattur til
þess að bjóða
sig fram til
varaformanns Samfyltóngarinn-
ar á komandi landsfrtndi. Fram-
kvæmdastjórnin segir þar fara
þroskaðan stjórnmálamann og
telur það sterk skilaboð að kjósa
mann sem allan sinn stjórn-
málaferil hefur verið innan Sam-
fylkingarinnar. Ekki náðist í
Ágúst Ólaf áður en blaðið fór í
prentun.