Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 Fréttir DV Selja íbúðirá Hverfisgötu Þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Kjartan Magnússon borgar- fuiltrúi sem saman sitja í stjórn Skipulagssjóðs Reykjavíkur samþykktu á stjórnarfundi á mánudag að selja tvær íbúðir borgar- innar á Hverfisgötu. Taka á 40,8 milljóna króna kauptil- boði í 279 fermetra íbúð á Hverfisgötu 32 og 14,9 milljóna króna tilboða í 71 fermetra íbúð á efstu hæð Hverfisgötu 34. Tölvum stolið úr leikskóla Lögreglan í Reykjavík var kölluð að leikskóla við götuna Arkvörn um klukkan hálfátta í gær- morgun vegna innbrots. Við athugun reyndist tveimur tölvum hafa ver- ið stolið. Að sögn lög- reglunnar voru tveir menn handteknir í ná- grenninu með tölvurnar í farteski sínu. Mennirnir eru grunaðir um verkn- aðinn og voru þeir teknir til yfirheyrslu hjá rann- sóknardeild lögreglunn- ar. Báðir hafa komið við sögu mála hjá lögregl- unni. Tölvum stolið í innbroti Tilkynnt var um innbrot í Keflavík aðfaranótt þriðju- dagsins. Brotist var inn í tölvufyrir- tæki við Hring- braut um þrjúleytið um nóttina og þaðan stolið tveimur far- tölvum. Að sögn lögregl- unnar í Keflavík var farið inn um glugga. Ekkert skemmdist við innbrotið fyrir utan gluggann sem spenntur var upp. Ekkert hefur komið í ljós um hver eða hverjir voru að verki og er máiið í rannsókn hjá rannsóknarlögreglunni í Keflavík. nokkuð brattir," segir Sigur- geir Kristgeirsson hjá Vinnslustöðinni ÍVestmanna- eyjum. „Við erum búnirmeð neta- vertíð- Landsíminn maog önnur vertíð tekur við afann- arri. Nú förum við að snúa okkur að humrinum og svo er það slldin i haust. Fyrsti bátur- inn átti að fara í humarinn í gær en bilaði, hann fer vænt- anlega á morgun og þá förum við að sjá einhvern humar." Ásdís Þórólfsdóttir auglýsir eftir kúbverskum eiginmanni í Lögbirtingablaðinu. í um þrjú ár hefur Ásdís barist við að fá opinberan skilnað við manninn sem fer huldu höfði í kommúnistaríki Fidels Castro. Ásdis segir stríðið við kerfið hafa tek- ið á sálina. Hún eigi í dag börn með nýjum manni en sé enn gift á pappírunum. Auglýsir eftir kúbverskum, manni Ásdís Þórólfsdóttir segii inmanninn ekki vilja iáta finna viö týndan Kúbumann Logbírtingablaðið Málið er reifað á forsíðu blaðsins. íslenskar konur sem giftast mönnum af erlendum uppruna geta lent í miklum vandræðum ef sækja þarf um skilnað. íslensk kona hefur nú barist í þrjú ár fyrir skilnaði við kúbverskan eiginmann sem fer huldu höfðu í heimalandi sínu. Ekkert gengur og auglýs- ir hún nú eftir manninum í Lögbirtingablaðinu. „Alberto vill ekki láta finna sig,“ segir Ásdís Þórólfsdóttir sem barist hefur fyrir skilnaði við kúbverskan eiginmann sinn síðan árið 2002. Ásdís segist hafa viljað fá dvalar- leyfi hans framlengt hér á landi en sú ákvörðun hafi reynst henni dýr- keypt. Hún eigi nú börn með öðr- um manni en sé þó enn gift Kúbverjanum Alberto á pappírun- um. Brestir í hjónabandi Mál Ásdísar er reifað í nýjasta tölublaði Lögbirtingablaðsins. Þar segir að Ásdís og Kúbverjinn Alberto Sanchez Castellon hafi gifst hér á landi þann 28. desember 2001. Þau hafi búið á íslandi til september 2002 þegar þau fluttu til Kúbu. Fljót- lega eftir komu þeirra þangað hafi alvarlegir brestir verið komnir í hjónabandið. Svo alvarlegir að Ásdís treysti sér ekki til að dvelja lengur á „Þetta er eitt það ieiðinlegasta sem ég hef upplifað." Kúbu. Hún hafi því komið aftur til íslands seint á árinu 2002. Svarar ekki skilaboðum Þann 7. apríl 2003 fékk Ásdís skilnað frá Kúbverjanum að borði og sæng. Hún segir að það mál hafi tek- ið um ár í dómskerfinu þar sem ekki var hægt að ná í manninn. Síðan hefur liðið meira en ár frá skilnaðin- um að borði og sæng. Kúbverjinn fer enn huldu höfði og svarar ekki skila- boðum. Ásdís þarf því að fá dómsúr- skurð til að ganga frá lögskilnaðin- um en fyrst þarf hún að auglýsa stefnu á hendur manninum í Lög- birtingablaðinu. Laga- og sálarflækjur Allar þessar lagaflækjur hafa tek- ið á sálarlíf Ásdísar. Hún segir mál- ið sérstaklega erfitt því hún sé kona og eigi í dag börn með manninum sem hún elski. Hún sé þó enn gift Kúbverjanum og þykir miður að geta ekki feðrað börn sín rétt. „Þetta er eitt það leiðinlegasta sem ég hef upplifað," segir Ásdís, sem vill vara konur við því að giftast er- lendum mönnum nema að hugsa dæmið til enda. simon@dv.is Starfsmenn í Búnaðarbankanum duttu í lukkupottinn með kaupréttarsamningum Þrjú hundruð þúsund krónur urðu að fimm milljónum „Það er ágætt fyrir bæði starfs- menn og bankann sjálfan að þeir fái að kaupa hlut í sínum banka,“ segir Bjöm Tryggvason, formaður starfs- mannafélags KB banka. Haustið 1998 hófst einkavæðing Búnaðarbanka íslands með sölu hlutabréfa til starfsmanna bankans og lífeyrissjóðs þeirra. Bauðst hverj- um og einum starfsmanni að kaupa allt að 250 þúsund hluú í bankanum á genginu 1,26. Allflestir starfsmenn nýttu sér tilboðið og keyptu yfirleitt hámarkshlut. Fyrir hann greiddu þeir 315 þúsund krónur. í dag em þessir starfsmannahlutir orðnir fimm milljóna króna virði, miðað við núverandi gengi hluta- bréfa í KB banka, sem til varð efúr sameiningu Búnaðarbankans og Kaupþings. Ávöxtunin á því sex og hálfa ári sem liðið er ffá kaupum starfsmannanna er þannig tæplega sextánföld, eða með öðrum orðum nærri 1500 prósent. Þess má geta að verðlag hefur hækkað um 31,5 prósent á þessum tíma. Hefðu 315 þúsund krónumar sem starfsmennimir vörðu til hluta- íjárkaupanna aðeins venð lagðar inn á verðtryggðan reikning væri and- virði þeirra í dag um 414 þúsund krónur. Samkvæmt lauslegum útreikn- ingum DV nema arðgreiðslur vegna starfsmannahlutanna um 190 þús- und krónum ffá því kaupin fóm ffam. Á móti því vegur að starfs- mönnum var efúr kaupin gert að greiða tekjuskatt af þeim hagnaði sem þeir nutu með því að fá bréfin á genginu 1,26 aðeins um tveimur mánuðum áður en almenningi bauðst að kaupa hluti á genginu 2,52. Upphæðin sem starfsmennirnir greiddu í skatt slagaði upp í þá upp- hæð sem nú hefur verið greidd þeim í arð. Björn segist ekki vita hversu margir starfs- menn hafi nýtt sér kaupréttinn. „Kaup- réttur á þessu gengi stóð starfsmönnum til boða í nokkur ár. Eftir því sem gengið á al- mennum markaði hækk- aði óx áhuginn," segir Bjöm Tryggvason. Björn Tryggvason Margir starfsmenn nýttu kauprétt á hagstæöu gengi eftir að markaösverðiö hækkaði, segir formaöur starfs- mannafélags KB banka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.