Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005
Kærisáli JJV
Munkar fengu
gervihnattasjónvarp
Kaþólskir munkar sem búa í
einangrun á eyju undan strönd
Wales í Bredandi urðu sér út um
gervihnattasjónvarp til að geta
horft á útsendingu frá jarðarför
páfans í síðustu viku. Eyjan heitir
Caldey Island og á henni búa um
15 munkar sem tilheyra Cisterci-
an-regltmni sem fylgir ströngum
reglum um daglegar bænir, vinnu-
saman dag og þagnareið á kvöldin.
Þeir áttu sjónvarp fyrir sem þeir
höfðu reyndar ekki notað í langan
tíma og þurftu þeir á gervihnatta-
disk að halda þar sem mótttöku-
skilyrði eru ekki góð á eyjunni.
og komdu andlegu
heilsunni i lag
SNÚÐU
við blaðinu
Jákvæðar hugsanir
skipta máii
Vísindin hafa sýnt fram á að
hugsanir mannsins hafa áhrif á
andlega og ekki síður líkamlega
heilsu hans. Magasár, meltingar-
truflanir, hár blóðþrýstingur og
margir aðrir kvillar geta hafa
orsakast af slæmu ónæmiskerfi sem
hefur verið skaðað með slæmum
hugsunum. En alveg eins og nei-
kvæðar hugsanir hafa áhrif geta
jákvæðar hugsanir haft góð áhrif á
líkamlegu heilsuna
jafnt og hina
andlegu. Hér
eru nokkrar
leiðir til að
temja sér
jákvæðan
hugsana-
gang.
1. Gott og vont heilafæði
Tilfinningar þlnar eru I sterkum tengslum viö
hugsanir þínar. Þú þarft því að gæta vel að
því um hvað þú hugsar. Tilfinningarnar geta
ekki aðgreint hvort hugsanir þínar byggja á
raunveruiegum atburðum eða hreinum
skáldskap. Þegar þú horfir á hryllingsmynd
verður þú hrædd/ur þó svo að þú vitir aö það
sé bara plat - hugurinn þarfað segja tilfinn-
ingunum að myndin sé skáldskapur. Allt sem
við skynjum fer inn í huga okkar og veröur
hluti afokkur. Efhugur þinn er ekkert nema
rusiakista mun llfið virðast vera eintómt rusl.
2. Jákvætt viðhorf til lífsins
Reyndu aö temja þér jákvætt viðhorftil llfs-
ins. Jafnvel þegar allt virðist ómögulegt er
það kraftaverki líkast hversu áhrifarlkt það er
að ákveöa að llta jákvæðum augum á hlut-
ina.jafnvel þó að þig langi ekkert til þess.
Jákvæðnin smitar einnig út frá sér og þar að
auki hafa vísindamenn sýnt fram á að já-
kvæöir einstaklingar eru mun ólíklegri til að
næla sér til dæmis I kvefen þeir neikvæðu.
Héðinn Jónsson sjúkraþjálfari hefur leitt starfshóp Félags íslenskra sjúkraþjálfara
sem fjallað hefur um hreyfingu sem meðferðarform. Héðinn segir að sjúkraþjálfarar
hafi lengi notað hreyfingu og þjálfun sem hluta af sinni meðhöndlun. Hreyfing og
þjálfun á tvímælalaust að vera einn af valkostum innan heilbrgiðisþjónustunnar eins
og komið hefur fram í þingsályktunartillögu sem allir stjórnarflokkar standa að.
Héðinn Jónsson Segirað
sjúkraþjálfarar hafi lengi notað
hreyfingu sem meðferðarform.
„Hugmyndin um hreyfingu sem meðferðarform gengur í stuttu
máli út á það að læknir skrifar upp á hreyfingarseðil í stað eða
ásamt hefðbundnum lyfseðli," segir Héðinn Jónsson sjúkra-
þjálfari en hann hefur leitt starfshóp Félags íslenskra sjúkraþjálf-
ara sern fjallað hafa um hreyfingu sem meðferðarform.
Héðinn segir að þetta gefi fólki
aukið val með því að nota lyf og
hreyfingu eða eingöngu hreyfingu í
meðferð við sjúkdómum eða áfram-
haldandi þróun þeirra.
Héðinn segir að sýnt hafi verið
fram á jákvæð áhrif hreyfingar við
mörgum sjúkdómum og þá aðallega
svokölluðum velmegunarsjúkdóm-
um, svo sem hækkuðum blóðþrýst-.
ingi og sykursýki 2. Nýjar rannsóknir
sýni einnig að hreyfing hefur jákvæð
áhrif á þunglyndi auk fjölda annarra
kvilla. Sem dæmi má taka að læknar
í Danmörku eru nú að prófa sig
áfram með hreyfingu við meðhöndl-
un á 27 sjúkdómum.
Fyrstu skrefin
í nágrannalöndum okkar hefur
hreyfing verið notuð sem meðferð-
arform, þó í mismunandi útfærslum.
Héðinn segir að eins og þeir sem
komið hafa að þessari hugmynd hér
á landi hafi hugsað þetta, þá myndi
einstaklingur sem fengi hreyfingar-
seðil uppáskrifaðan hjá lækni, fá ráð-
gjöf um hreyfingu og þjálfun til að
byija með. Að ráðgjöfinni lokinni
stendur vahð m.a. um hvort þjálfun-
in fari fram undir handleiðslu
sjúkraþjálfara fyrstu þrjá mánuðina.
„Ég tel að siíkt sé mörgum þeim
nauðsynlegt, sem eru að koma sér af
stað og fá fýrstu viðkynningu af
hreyfingu. Jákvæð áhrif hreyfingar-
innar eru farin að láta á sér kræla og
sjúkhngurinn finnur að þjálfunin
gerir honum gott. Tel ég æsldlegt að
það séu nægar leiðir fyrir hann út í
samfélagið til að hann geti nýtt sér
þjálfunina áfram. Það væri til dæmis
möguleiki að hafa samstarf við
íþróttafélög, líkamsræktarstöðvar,
íþróttakennara og fleiri svo tryggt sé
nægjanlegt framboð á þjálfun fyrir
einstaklinga."
Hvatning til að gera betur
„Við sjúkraþjálfarar höfum nýtt
okkur hreyfingu sem hluta af okkar
meðferð í langan tíma. Því má segja
að þessi hugmynd sem nú er að
koma upp um hreyfingu og þjálfun
sem viðurkennt meðferðarform
innan heilbrigðisþjónustunnar sé í
raun nákvæmari útfærsla á því sem
hefur verið að þróast með aukinni
samvinnu lækna og sjúkraþjálfara.
Læknar hafa verið að senda sjúk-
linga í auknum mæli í sjúkraþjálfun
svo þeir geti lært að takast á við
kvilla sína með hreyfingu. Því að
með henni taka margir sjúklingar
sín fyrstu skref til betra lífs,“ segir
Héðinn en hann telur að með þeirri
tillögu sem lögð verður fyrir Alþingi
um hreyfingu sem meðferðarform
sé verið að styrkja þá meðferð sem
nú þegar er í gangi og um leið
hvatning til að gera enn betur. Því
með þessu verði hreyfing og þjálfun
kynnt sem einn af meðferðarval-
kostum innan heilbrigðisþjónust-
unnar og því verði þetta aðgengi-
legt fleirum.
Hluti af lífsstíl
Héðinn telur líka afar mikilvægt
að það sé tryggt að sjúklingur hafi
fjölbreytt úrræði til hreyfingar úti í
samfélaginu eftir að ráðgjöf frá fag-
aðila er lokið. Samfélagið verði að
bjóða upp á fjölbreyttar leiðir fyrir
einstaklinginn svo hann verði ekki
bundinn einum stað til hreyfingar.
Æskilegast sé að boðið verði upp á
tengiliði frá sjúkraþjálfuninni og út í
samfélagið svo einstaklingurinn
detti ekki út heldur haldi hann áfram
að hreyfa sig og geri hreyfingu að
sínum h'fsstíl.
„Til að þetta gangi upp þarf að
vera þverfagleg eining um þetta.
Hugmyndin er hugsuð sem svoköll-
uð annars stigs forvörn, það er fýrir
fólk sem komið er með sjúkdóma
eða sjúkdómseinkenni og kýs að
nota hreyfingu og þjálfun til með-
höndlunar á sínum kvillum. Því er
nauðsynlegt að það sé tenging frá
heilbrigðiskerfinu við svokallaða
almenningshreyfingu."
Heilsan á okkar ábyrgð
„Með þessu er ábyrgð einstak-
lingsins á eigin líðan aukin og við
teljum að með því að hjálpa fólki til
sjálfshjálpar muni draga úr heil-
brigðisvandamálum. Þegar fólk
verður meðvitaðra um sína eigin
heilsu og tekst á við hana með sínu
atgervi og atorku tel ég að við sjáum
fyrst lækkun í ýmsum útgjöldum í
heilbrigðisgeiranum. “
karen@dv.iS
Móðir sem varð ungabarni sinu að bana talar um verknaðinn
Vildi ekki skilja barnið eftir
3. Láttu streituna
vinna með þér
Streita getur I mörgum tilfellum verið hug-
læg. Margir llta á streitu sem tækifæri til að
vaxa með henni. I stað þess að kvíða ómæl-
anlega mikið fyrir einhverjum atburði eða
ástandi getur það skipt sköpum að horfast
einfaldlega i augu við vandann og takast á
við hann. Kvíði dregur úr vörnum likamans
fyrir sjúkdómum þannig að meö því að
takast á við kvíðann minnkar hættan á hvers
kyns veikindum.
4. Veldu réttan félagsskap
Hafðu fyrir því að umgangast frekar fólk sem
er jákvætt og skemmtilegt. Tilfinningar eru
mjög smitandi og er hægt að þekkja margan
á fólkinu sem hann/hún umgengst.
Fæöingarþunglyndi og almennt þunglyndi
geta dregið stóran dilk á eftir sér efekki er
rétt að málum staðið. Það fékk hin banda-
ríska Natachia Ramsey að reyna. Fjórum vik-
um eftir fæðingu yngri sonar síns, Hunter,
kæföi hún hann I svefni og reyndi svo að
svipta sig llfi.
Fæðingin hafði gengið illa og þar aö auki
fékk hún lungnabólgu skömmu eftir hana.
Hún yfirgaf spltalann áður en hún hafði náð
fullum bata að þvi að hún taldi þörffyrir sig
heima hjá sér. Barnsfaðir hennar ognú fyrr-
verandi eiginmaður hafði grunað aðhann
væri ekki rétti faðir nýfædda barnsins og
þennan örlagarika dag fór hann að heiman
með eldrl son þeirra. Natachiu fannst hún
vera ein íheiminum og vildi svipta sig lífi.
Henni fannst að enginn myndi hugsa um
nýfæddan son sinn, þarsem faðir hans vildi
ekki gangast við honum. Þvl vildi hún sam-
einast honum i dauðanum. Það gekk ekki
eftir þar sem sjúkraliöar náðu til hennar í
tæka tíð. Þeim tókst ekki að endurlífga
drenginn. Faðernisprófleiddi siðar I Ijós að
eiginmaöurinn var rétti faðir barnsins.
Þessi atburðarrás virðist vera allt annað en
rökrétt. En á þessum degi varþettp það eina
rökrétta istöðunni Ihuga Natachiu. Hún var
fundin ósakhæf vegna geðsýki og var lögð
inn á geðsjúkrahús. Þar dvaldist hún þar til í
mars á siðasta ári er hún fékk leyfi hjá alrik-
isdómara til að búa íeigin Ibúð. í desember
síðastliðnum flutti eldri sonur hennar aftur
inn til móður sinnar.
Þunglyndi og sjálfsvíg eru mjög þekkt fyrir-
brigði í fjölskyldu Natachiu og því telur hún
löngu hafa verið þunglynda fyrir fæöingu
drengsins. En það þótti ekki við hæfi að ieita
sérfræðihjálpar og þvlhafí farið sem fór. I
dag gengsthún enn undirstranga meðferð
og tekur lyftil að halda afturafþunglynd-
inu. Það virðist bera árangur.
Algengur kvilli í kjölfar fæd-
ingar barns. Myndin tengist
ekki efni greinarinnar.