Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2005, Page 35
RA FRAMLEIÐENDUM
www.sambioin.is
lceland International
Film Festival
7. - 30. apríl 2005
instDIESEL
Gerib ykkur klár.
...fyrir peiann!
KIDMAN
JgL
1 {rmá
; VF
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK
KRINGLAN
BOOGEYMAN
SVAMPUR SVEINSSON ftl. !al
SVAMPUR SVEINSSON onskt tal
THE PACIFIER
THE PACIFIER VIP
LIFE & DEATH OF PETER SELLERS
LIFE & DEATH OF PETER SELLERS
KL 6-8-10 B.1.16
KL4-6
KL 4-6-8-10.10
KL 4-6-8-10.10
KL 8-10.10
KL8
KL. 5.30
MISS CONGENIALITY 2
THE RING TWO
BANGSÍMON OG FRÍLLINN ftl. tal
KL 3.30-5.40-8-10.20
KL 10.20 b.Í.16
KL 4
RINCÍ'Á'N C 588 0800
THE PACIFIER KL8-10
MILLION DOLLAR BABY KL 8-10.30
AKUREYRI
BOOGEYMAN KL 6-8.30-10.30 B.l. 16
SVAMPUR SVEINSSON fsl. tal KL 6
THE INTERPREDER FORSÝNING KL 8
THE PACIFIER KL 6-10.30
THE RING TWO KL 10.30 B.1.16
BOOGEYMAN
SVAMPUR SVEINSSON
THE PACIFIER
MISS CONGENIALITY 2
AKUREYRI C ‘461 4666
KEFLAVÍK ( 421 iUO
KL8-10 B.1.16
KL 6
KL 6-8
KLIO
JjTiUIBPl':
Margverðlaun uð
og stórkostleg
kvikmynd tem
hefur hrifið
gagnrýnendur og
áhorfendur um
allan heim.
MAFOA
FULLOF
GFÍACE
Vera Drake kl. 5.30,8 og 10.30
Maria Fuii of Grace kl. 6 og 10 b i. 14
AHoleinmyHeart kl.8 b.i.16
Education of Shelby Knox V‘* kl. 5.30
LaSierraV kl.8
The Motorcyde Diaries kl. 10
Don't Move kl. 5.30 og 10.30
LifeAquaticwithSteveZissou kl.5.45 b.L12
LifeandDeathofPeterSellers kl.8og10.30
Million Dollar Baby kl.8 b.i.14
* Enskttal-ekkitexti/" Myndinersýndaf skjávarpa
STÆRSTA KVIKMYNDAHUS LANOSINS • HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolobio.ti
Nýjasta kvikmynd Þorgeirs Guðmundssortar er Bítlabærinn Keflavík sem veröur
frumsýnd í Keflavík á föstudaginn.
„Þetta er mynd um rætur ís-
lenskrar dægur- og unglingamenn-
ingar og rokksögu, sögð út frá þeim
vinkli að sérhvert land geti átt sér sitt
Liverpool," segir Þorgeir Guðmunds-
son um nýjustu kvikmynd sína, Bítla-
bærinn Keflavík, sem verður frum-
sýnd í Sambíóinu í Keflavík á föstu-
daginn. Þaðan fer myndin á Kvik-
myndaiiátíðina sem nú stendur yfir í
Reykjavík. Þorgeir hefur áður leikstýrt
myndinni um hljómsveitina Ham
„LÍfandi dauðir" og verðlaunastutt-
myndunum „BSÍ" og „Memphis".
Kanaútvarp og kanabis
„Við fengum þessa hugmynd fyrir
iimm árum, ég og Óttarr Proppé og
hringdum í Rúnar Júlíusson. Hann og
María Baldurs buðu okkur út að
borða á Glóðinni, en þar var vísir að
Poppminjasafni á þeim tíma. Þar
komumst við í snertingu við söguna
og boltinn byrjaði að rúlla."
í ársbyrjun í fyrra byrjuðu kvik-
myndagerðarmennirnir að sinna
heimildarvinnunni og hittu kefl-
vísku popparana. Nálægð Kanans
kemur nokkuð við sögu - „Myndin
snýst að miklu leiti um kanaútvarp,
kanasjónvarp, kanabjór og kana-
bis,“ segir Þorgeir. Það kom honum
nokkuð á óvart hvað popparanir
voru opinskáir; „Myndin er ekki ein-
tómt klapp á bakið heldur förum við
líka yfir árekstra og átök í bransan-
um. Menn voru upp til hópa mjög
hreinskilnir, töluðu bæði um súrt og
sætt og voru ekki bara í því að fegra
sig. Margir keflvísku popparanna
áttu ákveðið hnignunarskeið á 9.
áratugnum og Rúnar talar um það
sem „lamaða áratuginn sinn". En
hann segir nú líka að það sé oft dul-
búin gæfa í áföllunum."
Opna sig við samherja
Það er fyrst og fremst skæður
rokkáhugi sem rekur Þorgeir áfram í
að búa til rokkheimildamyndir. Hann
hefur spilað með Funerals og Singa-
pore Sling og er nú í pönkhljómsveit-
inni Rass sem er tilbúin með plötu
sem ætti að koma út fljótlega. „Það
kemur sér vel í kvikmyndagerðinni að
hafa spilað rokk því ég held að við-
mælendur mínir opni sig meira fyrir
samheija:" segir hann.
Þorgeir rekur framleiðslufyrirtæk-
ið Glysgimi með Óttari Proppé og
Bimi Blöndal, kennda við Ham. Hann
segir að fyrirtækið hafa lengi haft
augastað á að gera leikna kvikmynd í
fullri lengd - „En það tekur tíma og
aðallega peninga". Nokkur handrit
eru í vinnslu, flest að tragíkómedíum.
„Það kemur bíómynd á endanum og
það eina sem er öruggt er að hún
verður ekki rómantísk gamanmynd!,"
fuilyrðir Þorgeir.
Heil sért þú María!
Einhverja konu heyrði ég tala um
hvað henni leiddust kvikmyndahá-
tíðir. Ástæðuna sagði hún vera þá að
hún nennti ekki öllu þessu raunsæi,
þar sem öll böl heimsins eru sett á
svið. Hún vildi bara fá sitt
Hollywood og ekkert kjaftæði. Ég
get að mörgu leyti skilið afstöðu
konunnar, þó svo að ég sé ekki sam-
mála henni um að raunsæi þurfi
endilega að vera leiðinlegt. Þvert á
móti getur það verið hinn bestí
flóttí. Flóttí frá því raunsæi sem við
sjáum dags daglega. Þetta er
kannski orðið full djúpt.
Maria Full of Grace er mjög
raunsæ mynd um lífið í Kólumbíu.
Það líf er nota bene allt, allt öðruvísi
en það líf sem við lifúm hér á ís-
landi. Þar er fátækt mikil og fá tæki-
færi fyrir ungt fólk.
Maria er átján ára gömul stúlka
sem starfar í blómaverksmiðju. Hún
býr í lítilli íbúð með móður sinni,
ömmu, systur og bami hennar. Hún
er ólétt eftír kærastann sem henni
finnst vera óttalegur lúði. Hann er til
í að giftast henni af skyldurækni, en
Maria vill ekki giftast neinum sem
ekki elskar hana. Hún er sjálfstæð og
lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Þegar henni býðst tækifæri til að
fara í ferðalag til New York ákveður
hún að slá til, þó svo að hún þurfi að
gleypa um sextíu poka af kókafrtí og
flytja innvortís með flugi.
Myndin er gerð af Joshua Mar-
ston, fyrrum blaðamanni sem farið
hefur víða um heim og komist að
ýmsu misjöfnu um mannskepnuna.
Maria Full of Grace er hans fyrsta
leikna mynd í fullri lengd og verður
að segjast að honum hefur tekist
ágætlega upp. Catalina Sandino
Moreno sem leikur Maríu á mjög
fínan leik sem þessi viljasterka og
okkur hvað heimurinn er orðinn lít-
m.
Það vantar semsagt ekki raunsæ-
ið í Maria Full of Grace, en bless-
unalega er það kryddað með
sambataktí, góðri tónhst og per-
sónusköpun. Þessvegna mæli ég
óhikað með þessari mynd, líka fyrir
konuna sem leiðast kvikmyndahá-
tíðir.
Siguijón Kjartansson
heilsteypta stúlka sem við sjáum
taka þroskakipp á nokkrum vikum
lífs síns.
Myndin ku segja sögu 1.000 kól-
umbískra kvenna sem smygla kóka-
íni til Bandaríkjanna innvortís. Þetta
er stórhættuleg iðja því ef hylki
springur innan í manneskju er hún í
bráðri lífshættu. Óneitanlega riíjast
upp, við áhorf þessarar myndar,
samskonar mál sem kom upp hér á
landi fyrir rúmu ári síðan sem sýnir
Maria Full of Grace
SýndállFF
Leikstjóri: Joshua
Marston. p-~*~~**
Aðalhlutverk: £
Catarina Sar.d- (
ino Moreno, \
Yenny Paola
vega, Guilied
Lopez.
Siqurjón fór í bíó
The Toxic Avenger
SýndállFF
Leikstjórar: Lloyd Kaufman og
Michael Herz.
Aðalhlutverk:
Andree Maranda,
Mitch Cohen, . mEjMí
Mark Torgl, Ro- 'ýM
bert Pritchard.
Subbulega
fyndin
The Toxic Avenger er frægasta
mynd Troma, fyrirtækis Lloyds
Kaufman, sem er nokkurskonar
Mikki mús þess félags. Hann er
andlit fyrirtækisins og er notaður
við hvert tækifæri. Myndin er sú
eina í heiminum sem hefur haft
atriði þar sem keyrt er yflr höfuð-
ið á barni og seinna verið gerð
teiknimyndasería fyrir börn eftir
henni.
Hún flallar um nörd sem
breytist í ofurhetju eftir að lík-
amsræktardólgar leggja hann í
einelti og hann lendir í tunnu af
geislavirkum úrgangi. Ofurhetjan
er hryllileg í útliti en góðhjörtuð
inn við beinið. Hún berst á mótí
glæpum og spillingu í Tromaville
og svo verður hún ástfangin af
blindri stúlku í þokkabót. Glæpa-
menn bæjarins, þar á meðal
borgarstjórinn vilja koma
hetjunni fyrir kattamef og hefjast
mildl átök um að klekkja á
skrímslinu góða.
Myndin gerir út á subbuskap,
ofbeldi, nekt og húmor og tekur
sig svo sannarlega ekki alvarlega.
Hún er greinilega gerð af vanefn-
um en það er það sem gerir hana
svo skemmtílega og hún verður
svona „svo vond að hún verður
góð“-mynd. En þrátt fyrir að sýn-
ast ódýr subbumynd sem gerir
mikið úr viöbjóði og júllum þá er
boðskapur bakvið alla drulluna
og hún fjallar um spillingu stór-
fyrirtækja og um náttúruvemd.
Myndin er stórskemmtíleg og
algjör klassflœr sem mun lifa
áfram í þrjátíu ár í viðbót því að
boðskapur hennar er tímalaus.
Ómar öm Hauksson
Ómar fór í bíó